Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 29
Forvarnahús að ís-
lenskri fyrirmynd
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þetta var mikill heiður ogánægjulegt í alla staði,“segir Herdís Storgaard,forstöðumaður Forvarna-
húss Sjóvár. „Austurríkismenn eru
að gera góða hluti í þessum málum.
Þeir miða sitt forvarnarhús fyrst og
fremst við fræðslu fyrir börn og hús-
ið stendur á lóð sjúkrahúss í Graz.
Öllum foreldrum barna sem koma á
slysavarðstofuna er boðið að koma
við í húsinu og fá fræðslu um örygg-
ismál á heimilum.“
Tvær íbúðir og tölvuforrit
Herdís segir að þegar Sjóvá hafi
verið að móta hugmynd að verkefni
undir nafninu Öruggasta heimilið,
þá hafi hún séð fyrir sér að sniðgt
væri að setja upp varanlegt heimili í
forvarnahúsinu sem notað væri til
sýnikennslu.
„Ég leitaði til forsvarsmanna
IKEA um styrk til verkefnisins, því
ég hafði heyrt að fyrirtækið hefði
verið að styrkja slysavarnir barna
annarsstaðar í heiminum. Þetta var
auðsótt mál og IKEA kostaði að
fullu innréttingar á tveimur íbúðum í
forvarnahúsinu okkar. Önnur íbúðin
miðast við fræðslu fyrir eldri borg-
ara en hin er fyrir foreldra með ung
börn. Auk þess vann IKEA fyrir
okkur tölvuforrit sem er á vefnum
okkar, þar sem fólk getur skoðað
íbúðirnar og öryggisatriði sem hafa
þarf í huga á heimilum.“
Öllum leist vel á
íslensku leiðina
Herdís situr fyrir Íslands hönd í
sérfræðinefnd um slysavarnir barna
á vegum Evrópska efnahagssvæð-
isins.
„Þar er ég í stýrihóp sem starfar
að því að reyna að koma öllum lönd-
um innan sambandsins til að vinna
skipulega að slysavörnum barna.
Þar þurfti ég að kynna hvað væri í
gangi hér á Íslandi í þessum málum
og þegar ég sagði þeim frá forvarna-
húsinu okkar með íbúðunum tveim,
þá leist öllum vel á það. Austurrík-
ismenn fóru að okkar ráðum og leit-
uðu til IKEA sem styrkti þá um 60%
í að innrétta kennsluíbúð í nýja for-
varnahúsinu þeirra í Graz, en Rík-
isstjórnin þar í landi fjármagnaði
aftur á móti byggingu hússins
sjálfs.“
Dauðaslysum
barna hefur fækkað
Fyrrnefndur stýrihópur sem Her-
dís situr í, hélt fund á Íslandi og hún
fór að sjálfsögðu með fólkið í for-
varnahús Sjóvár og segir alla hafa
verið yfir sig hrifna. „Þetta smitar út
frá sér og nú eru Möltubúar áfjáðir í
að fara út í það að reisa heildar-
forvarnahús. Gefin hafa verið út
leyfi fyrir því að þeir noti hugmynd-
ina að vefnum okkar hér í Forvarna-
húsi Sjóvár. Nú er verið að vinna í
því að pressa á Evrópusambandið að
opna svona upplifunar- og fræðslu-
setur í öllum Evrópulöndunum.“
Slysavarnaverkefni barna á Ís-
landi, Árvekni, var alfarið hugmynd
Herdísar og Ólafs Gísla barnalækn-
is, en það er einnig notað sem fyr-
irmynd að þeim verkefnum sem
Evrópubandalagið vinnur nú við að
setja upp í öllum löndum sínum.
„Enda er árangurinn eftirtekt-
arverður, okkur hefur tekist að
fækka dauðaslysum á börnum um 50
prósent hér á landi, sérstaklega hef-
ur það verið í fyrirbyggjandi aðgerð-
um sem snúa að drukknun barna.“
„Við erum auðvitað rosalega stolt af því að fyrirmyndin að þessu flotta forvarna-
húsi í Graz hafi verið sótt til okkar. Austurríkismenn fengu hugmyndina að upp-
stillingu og áherslum í sínu nýja húsi, frá okkur hér í Forvarnahúsi Sjóvár,“ segir
Herdís Storgaard, forstöðumaður hússins, en hún var viðstödd opnun fyrrnefnds
húss í Graz í Austurríki í lok september.
Stolt Herdís Storgaard forstöðumaður
Sjóváforvarnarhússins er að vonum
ánægð með að leitað sé til Íslands eftir
fyrirmyndum að slíkum húsum í Evrópu.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Glæsilegt Forvarnahúsið í Graz í Austurríki er vel heppnað í alla staði og
fjöldi manns var við opnunina.
Í HNOTSKURN
» Allra fyrsta forvarnahúsiðí heiminum var opnað í
Ástralíu um 1990 og var það
fyrst og fremst miðað við
fræðslu til foreldra um slysa-
varnir barna.
» Forvarnahús Sjóvár varopnað árið 2006 og var í
fyrstu mjög umferðartengt,
með veltibíl, beltasleða,
árekstravog og fleiri tækjum
til að kenna betri umferð-
armenningu.
» Núna eru þar einnig tværfullinnréttaðar íbúðir sem
ætlaðar eru til fræðslu vegna
öryggismála í heimahúsum.
www.forvarnahusid.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
Skálarnar frá þýska fyrirtækinu Rösle eru
fallegar og endingargóðar en fyrirtækið hefur
framleitt hágæða eldhúsáhöld úr ryðfríu stáli
í nær hundrað ár. Rösle leggur mikla áherslu
á gæði og stílhreina hönnun.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Stál í stál