Morgunblaðið - 25.10.2008, Side 36
36 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
✝ Steinþór SverrirSteinþórsson
fæddist á Brekku í
Þingeyrarhreppi í
Dýrafirði 9. júlí
1939. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi að morgni
dags 16. október síð-
astliðins af afleið-
ingum vinnuslyss á
Ísafirði daginn áð-
ur.
Steinþór var son-
ur þeirra hjóna
Steinþórs Árnason-
ar frá Brekku, bónda og sjómanns,
f. 22.8. 1902, en hann féll í skotárás
á línuveiðarann Fróða 10.3. 1941
og Ragnheiðar Stefánsdóttur, hús-
freyju, f. 27.10. 1911, d. 28.11.
1985. Systkini Steinþórs eru Guð-
rún, húsfreyja og bóndi á Brekku,
áður á Hrafnseyri f. 1938, Gunnar
eiga þau tvö börn og eitt barna-
barn. Valdimar vélstjóri, f. 31.1.
1966, maki Þóra Gunnarsdóttir, f.
10.12. 1966 og eiga þau þrjú börn.
Fóstursonur Steinþórs og sonur
Valdísar er Gunnar Gaukur Magn-
ússon véltæknifræðingur, f.
5.9.1961, maki Hugrún Krist-
insdóttir, f. 17.10. 1962 og eiga þau
þrjú börn og eitt barnabarn.
Að loknu námi í barnaskólanum
á Þingeyri árið 1953 fór Steinþór í
Héraðsskólann í Reykjanesi við
Djúp og útskrifaðist frá Núpi í
Dýrafirði árið 1956. Hann lauk
Iðnskóla Þingeyrar og sveinsprófi
í vélvirkjun í Vélsmiðju Guð-
mundar J. Sigurðssonar árið 1960.
Hann lauk vélstjóraprófi frá Vél-
skóla Íslands árið 1962 og frá raf-
magnsdeild sama skóla ári síðar.
Mestan hluta starfsævi sinnar
starfaði Steinþór sem vélstjóri,
lengst af á Guðbjörgu ÍS 46 og var
umsjónarmaður með útgerð skips-
ins meðan það var gert út frá Ísa-
firði. Hin síðari ár starfaði Stein-
þór hjá Straumi ehf.
Útför Steinþórs verður gerð frá
Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Steinþór, rafvirkja-
meistari á Ísafirði, nú
búsettur í Mosfells-
bæ, f. 1941 og Kristín
Lýðsdóttir, banka-
fulltrúi í Reykjavík, f.
1951.
Steinþór kvæntist
27.9. 1964 Huldu Val-
dísi Veturliðadóttur
bankagjaldkera, f.
6.3. 1942 á Ísafirði.
Foreldrar hennar
voru Veturliði Gunn-
ar Veturliðason frá
Úlfsá, vinnuvélastjóri
á Ísafirði, f. 3.7. 1916, d. 14.3. 1993
og Hulda Salóme Guðmundsdóttir,
húsfreyja á Úlfsá, f. 10.5. 1920, d.
14.4. 2006.
Börn Steinþórs og Valdísar eru:
Guðrún búfræðingur, f. 22.5. 1964,
maki Dagbjartur Bjarnason mat-
reiðslumeistari, f. 7.10. 1960 og
Elskulegi ástkæri pabbi minn.
Aldrei hefði mig grunað að þetta
yrðu okkar síðustu samverustundir
þegar við hlupum saman um Brekku
hlíðar fyrir tveim vikum í smala-
mennskunni. Þú varst eins og ung-
lamb hlaupandi úr dalbotninum upp
á fjallsbrún til að hjálpa Gunnu
þinni sem misst hafði ær upp fyrir
sig inn á fjall, þvílíkt þrek sem þú
hafðir.
Ég vil þakka þér, elsku pabbi
minn, fyrir allt það fallega og góða
veganesti sem þú gafst okkur syst-
kinunum í uppeldinu og yndislegu
samverustundirnar. Einnig hin síð-
ari ár með ykkur mömmu á staðnum
sem okkur þótti svo vænt um á
Brekku í Dýrafirði en það voru jú
fæðingar- og æskustöðvar þínar.
Minningarnar eru margar og góð-
ar, pabbi minn, og mun minning þín
verða ljós í lífi mínu um ókomin ár.
Okkur mömmu langar til að
kveðja þig með ljóði sem langamma
þín Sigríður Kristín orti og gaf þér
þegar þú varst ungur drengur og
lýsir svo vel hvað þú varst fallegur
maður og mikill persónuleiki.
Nú ómar í sveitum unaðarlag,
minn ástkæri, hugrakki Sverrir.
Þar allir blessa þinn afmælisdag
sem er nú að koma með þerrir.
Þú deginum fagnar með bros á brá
og blikföngnu augun þín skína
af gleði sem skugga ber engan á
og ástvini gagntekur þína.
Guð blessi þitt æviskeið, ungi sveinn
og efli þinn þroska til dáða,
Hvort þröngt er um vik eða vegurinn beinn,
hans vilja lát stefnunni ráða.
(S. Kr. Jónsdóttir.)
Guð geymi þig, elsku pabbi, og við
mamma segjum takk fyrir allt
Þín dóttir,
Guðrún Steinþórsdóttir.
Elsku afi minn, ó, hvað það er sárt
að kveðja þig svona snemma. Sakna
þín svo mikið. Það er engin önnur
hönd eins og þín, sem strýkur á mér
vangan og segir meira en þúsund
orð. Ég var alltaf litla stelpan hans
afa og margar eru minningar okkar.
Ég man svo vel eftir bíltúrunum á
rauða vinnubílnum þínum inn í bláa
bragga. Þar áttum við margar góðar
stundir, elsku afi minn. Þar var allt-
af svo mikið af spennandi hlutum að
skoða og fylgjast með þér vera að
gera við bátinn okkar, Liða, sem fór
með okkur í Leirufjörðin á sumrin.
Það kemur upp í huga mér, afi,
þegar ég var að koma úr baði heima
hjá ykkur ömmu í Skipagötunni ca.
9 ára gömul, þegar ég tók mig til og
blés á mér hárið með krullubursta
sem amma átti en svo vildi svo illa til
að hann festist í hárinu mínu.
Mamma og amma héldu að það
þyrfti að klippa burstann úr hárinu
því hann var svo fastur, en þá komst
þú, afi, og bjargaðir málunum. Við
sátum í dágóða stund saman við að
leysa burstann, en það hófst. Eða
þegar þú komst fljúgandi frá Ísa-
firði til Reykjavíkur að hjálpa mér
að gera upp gömlu íbúðina mína.
Það var akkúrat þannig sem þú
varst, afi minn, þú varst þar alltaf
fyrir mig.
Ég elska þig svo heitt, afi minn.
Þú og amma hafið alltaf reynst mér
svo vel, sýnt mér svo mikla ást og
umhyggju. Sá tími sem ég bjó svo
mikið hjá ykkur er alveg ómetanleg-
ur og þakka svo fyrir þennan tíma.
Við vorum alltaf svo gott „team“, þú
og ég, mig langaði alltaf að vera með
þér, afi, og oft hringdi ég og þá
komst þú bara og sóttir mig í Eyr-
argötu 3 eða Hafraholtið. Ég man
líka þegar við áttum heima í Eyr-
argötu, þá komst þú, þetta var fyrir
jólin og ég var eitthvað stúrin yfir
því að það væru alls staðar komin jól
nema hjá mér því allir voru búnir að
setja út í glugga aðventuljós, þú
kvaddir og varst kominn fljótlega
aftur og hafðir þá farið heim í Skipa-
götu og náð í aðventuljósið hennar
ömmu úr eldhúsglugganum. Svona
varst þú, afi. Það var sama hvort við
vorum að smala í sveitinni eða bara
heima í kosý, þá var nærvera þín
alltaf svo hlý og góð.
Elsku afi minn, ég kveð þig með
miklum söknuði og bið ég guð að
geyma þig. Minningar okkar mun ég
varðveita í mínu hjarta það sem eftir
er og þakka ég svo fyrir að hafa átt
þig sem afa.
Ég bið guð að styrkja hana elsku
ömmu sem hefur misst svo mikið.
Þín
Harpa Valdís.
Það er mér enn í fersku minni
þegar ég hitti Steinþór mág minn í
fyrsta skipti. Það eru meira en 45 ár
síðan hann kom fyrst að Úlfsá,
æskuheimilinu okkar, til að heim-
sækja Valdísi elstu systur mína.
Hann var einstaklega glæsilegur
maður, bjartur yfirlitum, glaðlegur
og hress. Nýútskrifaður úr Vélskól-
anum með hæstu gráðu og með
reiknistokk í vasanum. Þau voru
glæsilegt par hún Valdís systir mín
og hann Stonni eins og hann var
alltaf kallaður.
Við bræðurnir litum upp til hans.
Stonni gat allt. Ef einhver var í
vandræðum með tæki og tól sem
ekki tókst að koma í lag, þá var bara
að fara til Stonna, hann kom því í
lag. Það leituðu margir til hans,
vinnuvélaeigendur, bændur og sjó-
menn með bilaðar vélar og ekki var
alltaf spurt um borgun. Stonni vann
mikið með föður mínum og bræðr-
um í viðgerðum á vinnuvélum og
minnist ég margra góðra stunda
sem við yngri bræðurnir áttum með
þeim í gamla ýtuskúrnum við Braut-
arholt.
Já, Stonni var einstaklega lag-
hentur maður og ekki bara við vélar,
heldur hvað sem var. Mér finnst
sagan af hænunni lýsa honum mági
mínum nokkuð vel. Þannig var að
þau hjón bjuggu á Kolfinnustöðum
nokkurn tíma og voru með nokkrar
hænur. Ein hænan missti aðra löpp-
ina og þá smíðaði Stonni gerivifót á
hænuna sem dugði vel.
Stonni var sérstaklega duglegur
maður og kyrrseta átti ekki mikið
við hann. Hann var alltaf að, ef ekki
við vinnu sína eða í verkefnum
heima við eða í sumarbústaðnum, þá
var hann að hjálpa einhverjum öðr-
um. Hann fann sér alltaf einhver
verkefni. Þau hjónin byggðu sér fal-
legt heimili í Skipagötu 6 og voru
svo nýbúin að koma sér vel fyrir á
Skógarbrautinni. Í Leirufirði áttu
þau sína paradís í um 20 ár og voru
tíðar siglingar þangað á bátnum
hans „Liða“ og nutu margir góðs af
liðlegheitum og hjálpsemi Stonna,
ekki síst tengdaforeldrarnir sem
hann sýndi alltaf einstaka ræktar-
semi. Eftir að þau seldu bústaðinn í
Leirufirði komu þau sér vel fyrir á
Brekku í Brekkudal í Dýrafirði, þar
sem hann naut sín vel á æskustöðv-
um sínum.
Það er margs að minnast frá
löngum og góðum kynnum, allt frá
barnsaldri fram á þennan dag. Við
Helga þökkum fyrir allar góðar
samverustundir og megi minningin
um góðan dreng lifa í hugum okkar.
Stefán Veturliðason.
Skjótt hefur sól brugðið sumri
þegar sá góði drengur, Steinþór
Steinþórsson, hefur verið burtkall-
aður í hörmulegu vinnuslysi í önn
dagsins á Ísafirði.
Steinþór var alinn upp á Brekku í
Dýrafirði í skugga þeirra atburða í
heimsstyrjöldinni síðari, er faðir
hans og föðurbróðir ásamt nánum
frændum úr sveitinni féllu í skotárás
kafbáts á línuveiðarann Fróða þegar
þeir voru á leið til Bretlands með
matbjörg handa þeim bresku. Styrj-
öldin varð Dýrfirðingum þung í
skauti hvað mannfall snerti á sjó, er
hvert skipið af öðru var skotið niður.
Má furðu gegna að það litla byggð-
arlag skyldi fá staðist allar þær
hörmungar. Móður þeirra systkina,
Ragnheiði Stefánsdóttur, voru
ásköpuð óvægin örlög. Hún var
hetja í þeim harmleik. Hún var hin
hugljúfa, hógværa móðir, en þó
ströng á sinn hátt, sem hvarvetna
Steinþór Sverrir
Steinþórsson
✝
Ástkær systir okkar, mágkona, föðursystir,
móðursystir og frænka,
BRYNJA RAGNARSDÓTTIR
sjúkraliði,
Vesturvallagötu 1,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 22. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn
31. október kl. 15.00.
Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir, Gísli Guðjónsson,
Ragna Kristín Ragnarsdóttir, Jan S. Christiansen,
Auður Halldórsdóttir, Birna Bergsdóttir,
Kristín Jóhanna Mikaelsdóttir, Birgir Mikaelsson,
Kristín Emilsdóttir, Sólveig Berg Emilsdóttir,
Ragnar Þór Emilsson, Bergur Már Emilsson,
Eva María Emilsdóttir, Guðjón Emil Gíslason,
Ragnar Mikael Gíslason, Bjarki þór Qvarfot,
Bryndís Emilía Qvarfot
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR BERGSTEINSSON
fyrrverandi forstjóri,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 23. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Brynja Þórarinsdóttir,
Þórarinn Gunnarsson,
Ragnhildur Gunnarsdóttir, Guðmundur Magnússon,
Bergsteinn Gunnarsson, Anna S. Björnsdóttir,
Theódóra Gunnarsdóttir, Garðar Þ. Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGIGERÐUR ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
andaðist mánudaginn 20. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn
28. október kl. 13.00.
Kristjana Björnsdóttir, Skúli Guðnason,
Kristján Björnsson, Júlíana Sigurðardóttir,
Agnes Björnsdóttir, Arnar Sigurbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku mamma, tengdamamma, amma og lang-
amma,
MARGRÉT GUÐNADÓTTIR,
Herjólfsgötu 36,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum föstudaginn 24. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Elín Gísladóttir, Gunnar Linnet,
Guðni Gíslason, Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir,
Ingunn Gísladóttir, Halldór Jónas Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Yndislega móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐFINNA BJARNADÓTTIR ÓLAFS,
Látraströnd 19,
Seltjarnarnesi,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 23. október.
Skúli Ólafs, Guðbjörg R. Jónsdóttir,
Bjarni Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.