Morgunblaðið - 25.10.2008, Page 45
45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HALLÓ?
ANSANS!
ÉG TÓK AFTUR MYND
AF EYRANU Á MÉR
NÝI
FARSÍMINN
KANN ÉG
EKKI AÐ
META
KLASSÍSKA
TÓNLIST?
SPILAÐU EITTHVAÐ FYRIR
MIG OG ÉG SKAL SEGJA
ÞÉR HVAÐ MÉR FINNST
MÉR FANNST
ÞETTA FÍNT!
HVERNIG
GENGUR
STÆRÐFRÆÐIN?
ÉG ER EKKI AÐ
LÆRA STÆRÐ-
FRÆÐI. ÉG HEF
ÁKVEÐIÐ AÐ
LEGGJA ÁHERSLU Á
ÍMYNDUNARAFLIÐ
ÍMYNDAÐU ÞÉR
ÞÁ HVERNIG ÞAÐ
VÆRI AÐ VERA
45 ÁRA Í
FYRSTA BEKK
ERTU AÐ
ÍMYNDA ÞÉR
DÆMI?
ÉG ER AÐ
ÍMYNDA MÉR
HVERNIG ÞÚ
ÆTLAR AÐ
LEYSA ÞESSI
DÆMI FYRIR
MIG
ÉG ÞOLI EKKI AÐ
BÚA Í HÚSI MEÐ
MOLDARGÓLFI
MOLDARGÓLF
ERU EKKI SVO
SLÆM...
Á MEÐAN ÉG MAN... ERTU NOKKUÐ
BÚIN AÐ VÖKVA GARÐINN?
HVAÐ
HÉT KONAN
HANS
NÓA?
JÓHANNA
AF ÖRK?
ÞANNIG AÐ
STÓRFYRIRTÆKI STAL
HUGMYNDINNI ÞINNI AÐ
KOFFÍNBÆTTRI SÚPU?
JÁ! EF ÉG
HEFÐI FENGIÐ
EINKALEYFI
ÞÁ HEFÐI ÉG
ORÐIÐ RÍKUR
EN ÞAÐ ER
EKKI ÖLL NÓTT
ÚTI ENN...
LÖGFRÆÐINGURINN MINN SAGÐI
AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ GETA FENGIÐ
10 MILLJÓNIR Í SKAÐABÆTUR
BÚUM VIÐ
EKKI Í FRÁBÆRU
LANDI?
DARA, ÞÚ
HEFÐIR EKKI
ÁTT AÐ KOMA
TIL BAKA
EFTIR ALLT SEM
ÉG HEF GERT
ÞÉR... ÉG GAT
EKKI SKILIÐ
ÞIG EFTIR
OG
NÚNA...
ERTU ALVEG
VARNARLAUS...
LITLA PADDA
ERU ÞETTA
ENDALOKIN?
VILDI ÉG
VIRKILEGA
AÐ ÞETTA
MUNDI ENDA
SVONA?
Velvakandi
ÞAÐ er ekki bara yngsta kynslóðin sem hefur gaman af snjónum. Þessir
nemendur í 1. bekk A í Menntaskólanum á Akureyri gerðu sér það til dund-
urs að búa til þennan glæsilega snjókarl á miðvikudagsmorguninn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Snjókarl við MA
Týnd kisa
ÞESSI steingrái köttur
hefur haldið til í Birki-
grund í Kópavogi í
meira en viku. Þetta er
hinn vænsti köttur, en
hann vill ekki trúa því
að hann eigi ekki heima hér. Hann er
steingrár með hvíta loppu og trýni,
en ólin er týnd. Eigandinn getur haft
samband í síma 554-2540.
Icesave reikningar
NÚ þegar ríkisstjórn Íslands, Seðla-
banki Íslands, Fjármálaeftirlitið og
stjórnendur bankanna í umboði
stærstu hluthafa þeirra hafa rúið Ís-
land algjörlega trausti og virðingu á
alþjóðavettvangi, langar mig til að
leggja orð í belg. Ef ráðherrar og al-
þingismenn samþykkja undir þessum
kringumstæðum að ganga lengra en
íslensk lög kveða á um, í tryggingum
vegna innistæðna á Icesave reikn-
ingum Landsbankans í Bretlandi og
Hollandi og öðrum slíkum reikn-
ingum hinna bankanna tveggja, þá
mun framtíð þeirra stjórnmálamanna
sem að slíkum samþykktum koma
verða til þess, að þeir munu uppskera
ævarandi skömm sinna samtíð-
armanna og eiga jafnvel á hættu alls-
herjar upplausn í samfélaginu um
ókomna tíð.
Sveinn Sveinsson.
Úr tapaðist
Þann 17. október tapaðist gyllt kven-
nmannsúr, sennilega í Kringlunni eða
nálægt Engateigi. Finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja í síma 895-
1985.
Hringar í óskilum hjá FEB
Eftir „Opið hús“ hjá Félagi eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni sem
haldið var 19. september sl. fundust
tveir gullhringar í samkomusal fé-
lagsins. Þar sem enginn hefur gefið
sig fram er hér með lýst eftir þeim
sem týnt hefur gullhringum eftir
þennan fund og sá hinn sami beðinn
að gefa sig fram á skrifstofu félagsins
að Stangarhyl 4 eða í síma 588-2111.
Stígum hægt til jarðar
Mér þótti við-
skiptaráðherra tala
óvarlega í fréttum sjón-
varpsins, 23. október,
þegar hann heimtaði
(mæltist ekki til) að
auðmenn á Íslandi,
flyttu allt laust fé sitt
erlendis til Íslands.
Einkum þótti mér hann
halla á Björgúlfsfeðga,
sem vafalaust hafa tap-
að fé vegna falls bank-
anna. Mér finnst fyrir
neðan allar hellur að
boða þá til fundar í op-
inberum fréttum. Sér-
staklega þegar til
stendur að óska eftir
ölmusu frá þeim.
Ég hélt að við séum búin að tapa
nógu, með gálausum yfirlýsingum
ráðamanna og annarra, sem ættu að
halda kjafti.
Nú ríður á að láta verkin tala.
Númer eitt er að sjá til þess að
sjávarútvegsfyrirtæki fari ekki í þrot,
með því að skuldbreyta lánum og
auka kvóta, sem eftir reynslu þeirra,
sem gjörst þekkja er langt undir
sóknarþoli. Það mætti gjarnan skoða
hvort reiknilíkan Hafrannsókn-
arstofnunar er álíka ónýtt og reikni-
líkan bankanna (Seðlabankinn með-
talinn).
Landbúnaðarráðherra mætti
gjarnan salta „breska riðukjötið“,
sem hann vill endilega flytja inn. Þótt
ríkissjóður standi illa, er ástæðulaust
að selja hæstbjóðandi innflutnings-
kvóta, sem leggst ofan á innflutt verð,
sem greitt er í verðlausum krónum
og er engum Íslendingi til gagns,
enda mun enginn kaupa þetta kjöt.
Við neyðumst víst bara til að
minnka matarskammtinn, sem mundi
hafa ómæld áhrif til bætts heilsufars
þjóðarinnar ogskila sparnaði í heilsu-
gæslugeiranum á komandi árum. Hér
mætti vissulega nefna fleira eins og
framleiðslu köfnunarefnisáburðar á
Íslandi, stuðning við kornrækt til að
minnka innflutning á fóðurbæti, út-
flutning notaðra bíla, það gæti haldið
bílaumboðunum á floti, þangað til við
getum aftur farið að flytja inn bíla og
þá bara rafmagnsbíla, sem gengju
fyrir íslenskri orku.
Hættum að hlusta á fólk, sem vill
vernda hverja hundaþúfu og gerir
ekki greinarmun á því sem ber að
varðveita og því sem má fórna fyrir
bætt lífskjör þjóðarinnar allrar.
Stígum hægt til jarðar - en fast.
Þórhallur Hróðmarsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi
kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga kl. 9-16.30 er fjölbreytt dagskrá,
opnar vinnustofur, spilasalur og fleira. Á
fimmtudag kl. 12.30 er bútasaumur.
Mánudag kl. 9 og föstudag kl. 13 er fjöl-
breytt leikfimi (frítt) og kaffi í ÍR heim-
ilinu v/ Skógarsel, kennari er Júlíus Arn-
arsson íþróttakennari.
Hæðargarður 31 | Fjölskyldugangan alla
laugardaga kl. 10. Ókeypis leiðbeiningar
á tölvur á mánudögum og mið-
vikudögum. Farið verður á Hart í bak
fimmtudag 13. nóvember kl. 14. Miðaverð
er 2.800 kr., skráning er hafin. Skúli Ló-
rentzson; Skyggnilýsing miðvikudag kl.
20, verð kr. 1.500. Uppl. í síma 411-2390.