Morgunblaðið - 25.10.2008, Page 47
Menning 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
SALURINN
Í NÓVEMBER 2008
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER KL. 17
LÖG UNGA FÓLKSINS Í TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR
JÓN SVAVAR JÓSEFSSON · ÁSTRÍÐUR A. SIGURÐARDÓTTIR
Tónleikar í samstarfi við BM VALLÁ, SKIPTI OG SAMTÖK IÐNAÐARINS
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER KL. 17
LÖG UNGA FÓLKSINS Í TÍBRÁ: GÍTARTÓNLEIKAR
ÖGMUNDUR ÞÓR JÓHANNESSON
Tónleikar í samstarfi við BM VALLÁ, SKIPTI OG SAMTÖK IÐNAÐARINS
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER KL. 20
SÖNGBÓK JAZZINS Í TÍBRÁ
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR · GUNNAR HRAFNSSON
KJARTAN VALDEMARSSON · PÉTUR GRÉTARSSON
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER KL. 17
TÖFRAR Í TÍBRÁ: TEREM OG DIDDÚ
SKRÁNING Á BIÐLISTA HAFIN
Tónleikar í samstarfi við BM VALLÁ, SKIPTI OG SAMTÖK IÐNAÐARINS
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER KL. 17
TÖFRAR Í TÍBRÁ: AUÐUR GUNNARSDÓTTIR · GUNNAR
GUÐBJÖRNSSON · JÓNAS INGIMUNDARSON
Tónleikar í samstarfi við BM VALLÁ, SKIPTI OG SAMTÖK IÐNAÐARINSÖRFÁ SÆT
I LAUS
UPPSELT
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
TÓNLEIKAR í minningu söng-
konunnar Engel Lund verða í Ís-
lensku óperunni á morgun, sunnu-
dagsköldið 26. október. Á
tónleikunum kemur fram alþjóð-
legur hópur átta söngvara ásamt
píanóleikaranum James Southall.
Listrænir stjórnendur tónleikanna
eru Norbert Meyn tenórsöngvari
og listrænn stjórnandi London
Lieder Theatre og Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir. Á efnisskrá eru
þjóðlög frá tólf löndum. Lögin
verða flutt á tungumáli hverrar
þjóðar fyrir sig og í þeirri útgáfu
sem Engel Lund var þekkt fyrir
að flytja þau.
Grípandi lög
Tónleikarnir í Íslensku óperunni
eru eins konar framhald af geisla-
disk sem Nibus Records í London
gaf út fyrir ári með söngbók En-
gel Lund en þar sungu ungir
söngvarar frá fjórtán löndum,
hver á sínu tungumáli, þjóðlög frá
ýmsum löndum. Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir, sem er í söngnámi
í London, var í hópi þeirra söngv-
ara. „Þegar diskurinn var kominn
út sagði ég við hópinn að við yrð-
um að halda tónleika á Íslandi því
fólk hefði gaman af því að heyra
þessi lög. Við höfum unnið að því í
eitt ár að halda þessa tónleika,“
segir Sigríður. „Þetta eru þjóðlög
sem eru einföld og grípandi. Við
erum átta í hópnum, þrír Íslend-
ingar og fimm útlendingar, og
hver syngur á móðurmáli sínu.
Engel Lund skilaði fallegu ævi-
starfi og var hugrökk kona. Ég er
viss um að þetta verða sérstakir
tónleikar og þessi tónlist mun
höfða til mjög margra. Þjóðlög eru
svo óháð því hvort það sé stríð í
heiminum eða hvort þjóðir eigi í
kreppu. Við í sönghópnum erum
mætt til að syngja falleg lög og
þjóðerni okkar er algjört auka-
atriði. Allt sem við gerum á þess-
um tónleikum er í anda Engel
Lund.“
Sönghópinn skipa Hannah
Morrison, sópran, Sigríður Ósk
Kristjánsdóttur, mezzó-sópran,
Norbert Meyn, tenór, Håkan Eke-
näs, barítón, Vojtech Safarik,
bassa-barítón, Bragi Bergþórsson,
tenór og Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir, sópran. Verkefnið var
styrkt af Minningarsjóði Mar-
grétar Björgólfsdóttur og er unnið
í samstarfi við Íslensku óperuna.
Tónleikarnir hefjast klukkan
átta en fyrr um kvöldið, klukkan
sex, verður Engel Lund minnst í
anddyri Íslensku óperunnar. Þor-
gerður Ingólfsdóttir, kórstjóri,
Birgir Sigurðsson rithöfundur,
Kjartan Ragnarsson, leikstjóri og
leikskáld, og Guðrún Ásmunds-
dóttir, leikkona, minnast Engel
Lund í nokkrum orðum. Hlutir úr
hennar fórum verða til sýnis, þar
á meðal konsertkjóll hennar, ljós-
myndir, bréf og fleiri persónulegir
munir, og sýndur verður hluti úr
heimildarmynd um listakonuna.
Alþjóðlegur hópur í Íslensku óperunni
Í minningu Engel Lund
Morgunblaðið/Ómar
Ein af átta Sigríður Ósk Kristjánsdóttur kemur fram, ásamt átta öðrum söngvurum, á tónleikum til minningar um
söngkonuna Engel Lund sem fara fram í Íslensku óperunni á morgun. Lund bjó á Íslandi til ellefu ára aldurs.
ENGEL Lund, oft kölluð Gagga
Lund, fæddist á Íslandi árið 1900
og bjó hér á landi til ellefu ára ald-
urs ásamt dönskum foreldrum sín-
um. Hún lagði stund á söngnám í
Kaupmannahöfn, París og Þýska-
landi. Árið 1929 kynntist hún pí-
anóleikaranum Ferdinand Rauter
og þar hófst ævilöng samvinna.
Engel Lund var heimsþekkt
þjóðlagasöngkona. Á efnisskrá
hennar voru þjóðlög sautján landa
og hún söng þau ævinlega á móð-
urmáli hverrar þjóðar fyrir sig. Hún
hafði fyrir sið að ljúka tónleikum
sínum á íslensku þjóðlagi, oft með
Litlu börnin leika sér.
Söngbók Engel Lund kom út hjá
Oxford University Press árið 1936
og inniheldur fjörutíu og níu lög
frá fjórtán löndum, sungin á móð-
urmáli hverrar þjóðar.
Engel Lund fluttist til Íslands ár-
ið 1960 þegar hún hætti að syngja
opinberlega. Hún var lengi kennari
við Tónlistarskólann í Reykjavík og
kenndi fram undir nírætt. Hún lést
árið 1996.
Engel Lund
SÝNINGARGESTIR skoða hér tvær dansandi beinagrindur úr gerviefni
eftir listamanninn Javier Perez á opnunarkvöldi listkaupstefnunni FIAC
sem opnuð var í París í vikunni.
Þetta er í 35. skipti sem FIAC er haldin og eru þar kynnt 189 nútíma- og
samtíma listagallerí. Kaupstefnan stendur frá 23. til 26. október.
Reuters
Dansandi beinagrindur