Morgunblaðið - 25.10.2008, Qupperneq 56
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 299. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Um 240 milljarða lán
Ríkisstjórnin hefur óskað eftir
láni sem nemur um 240 milljörðum
króna frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
og er stefnt að því að endurgreiða
það á árunum 2012 til 2015. Gert er
ráð fyrir að ákvörðun um lánið liggi
fyrir innan 10 daga og þá verði um
100 milljarðar afhentir. Formaður
sendinefndar sjóðsins segir að
næsta ár verði Íslendingum erfitt
vegna um 10% samdráttar í lands-
framleiðslu og atvinnuleysis. »For-
síða
Peningana heim
Geir H. Haarde forsætisráðherra
skoraði í gær á íslenska auðmenn að
flytja peninga sína erlendis heim til
Íslands til þess að taka þátt í að
byggja upp þjóðfélagið. Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn telur að Íslend-
ingar þurfi á um 760 milljarða króna
fjármögnun að halda á næstu tveim-
ur árum og þar af er gert ráð fyrir
um 240 milljarða láni frá sjóðnum. »
2
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Með köldu blóði
Staksteinar: Ástæðulaus árás
Forystugrein: Traustvekjandi að-
gerð
UMRÆÐAN»
Peningamarkaðssjóðir – hvað fór úr-
skeiðis?
Aðeins ein raunhæf leið – nið-
urfærsla skulda
Fegrun náttúrunnar
Skáldið sem lézt fyrir lífeyrissjóðinn
Má bjóða þér ábót
Veröld sem var
LESBÓK»
3
3 3 3 3 3
4
5#%
. #+
6 "
&"##$#! . # 3
3 3 3 3 - 7 1 %
3
3
3 3 3 3
3
89::;<=
%>?<:=@6%AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@%7#7<D@;
@9<%7#7<D@;
%E@%7#7<D@;
%2=%%@$#F<;@7=
G;A;@%7>#G?@
%8<
?2<;
6?@6=%2+%=>;:;
Heitast -1° C | Kaldast -3° C
Norðvestanátt, víða
á bilinu 10-15 m/s.
Snjókoma fyrir norð-
an, annars úrkomlítið
og víða bjart syðra. » 10
Birgir Örn Stein-
arsson fjallar um
hina pólitísku Björk
Guðmundsdóttur
sem birtist okkur á
árinu. » 52
AF LISTUM»
Pólitísk
Björk
KVIKMYNDIR»
Stone er á kvikmyndahá-
tíð í London. » 55
Garðari Thór Cortes
gengur ágætlega í
lífsbaráttunni.
Það er alltaf nóg að
gera hjá honum er-
lendis. » 48
FÓLK»
Nóg að gera
hjá Garðari
TÓNLIST»
Sigur Rós leikur í Höll-
inni í nóvember. » 53
LEIKHÚS»
Sigga Sunna heillaðist af
brúðuleikhúsi. » 50
Menning
VEÐUR»
1. Bretar selja eignir Landsbanka
2. Mjög erfiðir tímar framundan
3. Efast um fullyrðingar Darlings
4. Hroðalega þröngir kostir
Ástin er
diskó, lífið
er pönk
Þjóðleikhúsinu
NÝR Íslandsmeistari kvenna í skák,
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir,
er 17 ára og nemandi við Mennta-
skólann í Reykjavík. Hallgerður var
hálfum vinningi hærri en Guðlaug
Þorsteinsdóttir, hlaut sex vinninga
af sjö mögulegum. Hún segir sig-
urinn hafa verið langþráðan en í
fyrra tapaði hún naumlega einvígi
við Guðlaugu um titilinn.
„Ég vann hana reyndar ekki á
þessu móti en gerði jafntefli við
hana! Það gekk bara flestallt upp
núna, ég gerði eiginlega engin alvar-
leg mistök,“ segir Hallgerður. „Ég
hef verið mikið í útlöndum að tefla
og þannig undirbúið mig. Þetta nýtt-
ist mér hér heima.“
Hallgerður æfir sig einnig á fiðlu
og sinnir að sjálfsögðu náminu sem
gengur vel, segir hún. Hún var fjög-
urra ára þegar hún lærði að tefla,
var í Ísaksskóla og síðar hefur hún
notið leiðsagnar Helga Ólafssonar
stórmeistara. Eldri bróðir hennar,
Hilmar, teflir líka. Var hann sáttur
þegar hún vann hann í fyrsta sinn?
„Hann tók því ágætlega en ég var
ekki nema níu ára, held ég,“ segir
hún hlæjandi. 43
kjon@mbl.is
Lærði að
tefla fjög-
urra ára
Meistari Hallgerður Helga
SNJÓRINN og kuldinn undanfarna
daga hefur orðið til þess að fólk
dregur fram kuldaflíkurnar sem
því miður eru stundum aðeins
óásjálegri þegar þær finnast innst í
fataskápnum en þær voru í minn-
ingunni. Þannig höfðu dúnúlpur
fjölskyldunnar látið töluvert á sjá
eftir nánast daglega notkun síðustu
tvo vetur nú þegar grípa átti til
þeirra í snjókomunni. Ein var sýnu
verst, rennilásinn bilaður, franskir
rennilásar orðnir svo loðnir að þeir
virkuðu ekki, saumspretta á ann-
arri hliðinni.
Framleiðandinn, 66 gráður norð-
ur, bjargaði þessu öllu snagg-
aralega, tók úlpuna í viðgerð eig-
andanum að kostnaðarlausu með
þeim skilaboðum að þessum flíkum
fylgdi ókeypis viðhaldsþjónusta.
Svo sannarlega til fyrirmyndar,
úlpurnar kosta talsvert og mik-
ilvægt að vita til þess að þær endist
vel. fbi@mbl.is
Auratal
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
SUMIR reyna sem betur fer að sjá
spaugilegu hliðarnar á daglega líf-
inu, meira að segja á þessum síð-
ustu og verstu. Þeirra á meðal eru
starfsmenn Hæfingarstöðvarinnar
við Skógarlund og Birkilund á Ak-
ureyri.
Starfsfólkið opnaði í fyrradag
banka í snjóhúsi á baklóðinni og í
þeirri stofnun eru innstæðurnar
frystar umsvifalaust þegar við-
skiptavinurinn kemur í bankann, af
augljósum ástæðum!
Hæfingarstöðin er dagþjónusta
sem Akureyrarbær starfrækir fyrir
fullorðna fatlaða og húsbyggingin
byrjaði í raun þegar ákveðið var að
notendur þjónustunnar færu í úti-
vist þar sem snjórinn yrði þema.
Hugmyndin var starfsfólksins en
allir lögðu auðvitað hönd á plóginn.
Svo þegar gefa þurfti húsinu nafn
kom einn starfsmannanna, Tómas
Bergmann, með þá bráðsnjöllu hug-
mynd, í ljósi umræðunnar í þjóð-
félaginu, að þarna yrði banki – Nýi
Ice Bank Group – og leist öllum
strax vel á það. Viðskiptin hafa
reyndar ekki verið mikil ennþá
enda lítið lausafé í umferð.
Vert er að geta þess að merki
hins nýja banka, sem málað hefur
verið á skilti fyrir ofan dyrnar, er
mörgæs á hvolfi; bæði vegna þess
að þær skepnur búa á suðurskaut-
inu, og vegna þess að allt er á hvolfi
í þjóðfélaginu, eins og Tómas komst
svo skemmtilega að orði í gær.
Innstæður frystar
Nýr banki, Nýi Ice Bank Group, tók til starfa í vikunni í
snjóhúsi á lóðinni við dagþjónustu fatlaðra á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlýjar móttökur Guðný Bachmann „bankastjóri“ tekur við peningum Tóm-
asar Bergmann og ákvað þegar í stað að frysta innstæðu hans í bankanum.
FIMM hundruð einstaklingum, sem eiga um sárt að
binda yfir komandi jólahátíð, verður boðið á sjöundu
Frostrósatónleikana sem haldnir verða í Laugardals-
höll í desember. Einnig verða gefnar jólagjafir með
hverjum seldum miða þeim sem þurfa mesta aðstoð við
jólainnkaupin í ár. | 48
Sjöundu Frostrósatónleikarnir í bígerð
Bjóða á tónleika og gefa jólagjafir
Morgunblaðið/Kristinn
Frostrósir Hera Björk, Garðar Cortes og Margrét Eir koma fram á tónleikunum ásamt fleiri listamönnum.