Fréttablaðið - 02.05.2009, Síða 1

Fréttablaðið - 02.05.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI2. maí 2009 — 104. tölublað — 9. árgangur Þegar eignar- réttinum er ógnað Um það leyti er vinir syst-kinanna á Kambsvegi 32 voru að læra að hjóla án hjálpardekkjanna voru þau farin að bruna um á litlu mót- orhjóli. Öll hafa þau lært taktana á sömu litlu Hondunni sem var keypt fyrir elsta drenginn þegar hann var fimm ára. Þá var áhugi hans reyndar kviknað- ur fyrir löngu. „Torfi var búinn að kaupa sér fyrsta hjólið þegar Freyr var tveggja ára. Á þeim tíma bjuggum við á Ítalíu þar sem mótorhjól eru á hverju götuhorni. Freyr skreið upp á hvert einasta hjól sem hann sá og fékk að prófa,“ segir mótorhjólamamman Sigur- laug. Þann titil ber hún vel, enda er hún enginn eftirbátur annarra fjölskyldumeðlima þegar kemur að hjólunum. Á sumrin sést hún bruna um götur Reykjavíkur á Ducati-götuhjóli og hún er stuðn- ingsmaður sonar síns númer eitt Öll fjölskyldan á mótorhjólum Hjónin Sigurlaug Jónasdóttir og Torfi Hjálmars- son búa við þann lúxus að þurfa aldrei að glíma við unglingana sína um það hvað eigi að gera í sumarfríinu. Öll fjölskyldan er á kafi í mótor- sporti og þegar frítími gefst eru allir sammála um hvernig er best að eyða honum: Á hjólunum úti í sveit. Barnaafmælið Litríkt barnaafmæli við heima smíðað langborð. SÍÐA 6 maí 2008 fjölskyldan [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] Mótorhjólabörn Sólveig, Sigrún og Freyr. Listasöfn Börn eru skemmtilegir og áhugasamir gestir listasafna. SÍÐA 2 MENNINGARHÁTÍÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA VELKOMIN 9. - 15. MAÍ FRAMHALD Á SÍÐU 4 FR ÉT TA B L A Ð I Ð /V A LL I heimili&hönnun LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009 AFMÆLISÚTGÁFA Framleiðsla á Skötunni eftir Halldór Hjálmars- son hefur verið hafin að nýju í tilefni af 50 ára afmæli stólsins. Hann kemur brátt á markað. BLS. 3 HÖNNUN DALÍS Málaranum Sal- vador Dalí var margt til lista lagt. Meðal annars fékkst hann við húsgagnahönnun í anda súrrealisma. BLS. 4 POTTAR HÚSTÖKUR 22 TÍSKA 40 Á RÖKSTÓLUM 26 36,95% 72,75% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Allt sem þú þarft... Fréttablaðið er með 97% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18-49 ára. Könnun Capacent í nóvember 2008 - janúar 2009. Íþró a- og sýningarhöllinni í Laugardal 8.-10. maí 2009 Kynntu þér ölbrey a dagskrá www.ferdalogogfristundir.is Frábært tækifæri fyrir alla ölskylduna l að skipuleggja sumarið! Silfurlit taska og fiðrildanæla TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG HELGARÚTGÁFA ÁHRIF DAVIDS LYNCH Á TÍSKUNA Á LOKASPRETTI VIÐ GERÐ MYNDARINNAR MÖMMU GÓGÓ VIÐTAL 18 TÍSKA 40 ÖLL FJÖLSKYLDAN Á MÓTORHJÓLI Mótorsport er áhugamál númer eitt hjá þeim Frey, Sigrúnu og Sólveigu Torfabörnum. Öll lærðu þau á mótorhjól þegar þau voru fimm ára. FJÖLSKYLDUBLAÐIÐ VINNUMARKAÐUR Stóru sveitar- félögin hafa ákveðið að ráða sem flesta unglinga í sumarstörf og sums staðar verður vinnutími styttur til að koma fleirum að. Borgaryfirvöld ætla að ráða 5.200 ungmenni í sumar, þar af verða 4.000 ungmenni ráðin til Vinnu- skólans. Aldrei hafa fleiri fengið sumarstörf hjá borginni. Bæjaryfirvöld í Kópavogi ráða 750 manns og er það ríflega tvö- földun frá því í fyrrasumar. Bær- inn ræður auk þess um 900 ungl- inga á aldrinum fjórtán til sextán ára í Vinnuskóla. Það er þriðjungs aukning frá því í fyrra. Ungmenni sautján ára og eldri verða ráðin í 250 stöður í Hafnar- firði í sumar. Þegar hafa um 800 ungmenni sótt um störf og er það fjórðungs aukning frá fyrra ári. „Það er ljóst að stór hópur fær ekki vinnu nema til komi sérstakt átak. Í fyrra var tekin ákvörð- un um að taka inn um 100 starfs- menn aukalega og er nú verið að skoða með hvaða hætti það verð- ur í ár,“ segir Steinunn Þorsteins- dóttir upplýsingafulltrúi Hafnar- fjarðar. Í Mosfellsbæ fá allir unglingar á aldrinum fjórtán til sextán ára starf í vinnuskóla. Um 400 ungl- ingar eru á þessum aldri í bænum og er gert ráð fyrir að nánast allir sæki um. Krakkarnir verða því helmingi fleiri en í fyrra. Þá verða ungmenni sautján ára og eldri ráðin í minnst 55 stöður, sem er aukning um helming frá fyrra ári. Því til viðbótar er stefnt að því að ráða fólk á aldrinum sautján til tuttugu ára í ýmis sérverkefni. Um 350 ungmenni hafa sótt um sumarvinnu í Garðabæ en sjötíu störf voru auglýst. Allir umsækj- endur fá vinnu í sumar en vinnu- tími verður styttur svo fjölga megi störfum. Veitt verður sjötíu millj- ónum aukalega í þetta atvinnuátak en sambærileg fjárveiting í fyrra var 25 milljónir króna. Í Reykjanesbæ verður Vinnu- skólinn opinn öllum nemendum í fjórar vikur. Um 150 sóttu um störf flokksstjóra, þrefalt fleiri en í fyrra. Búist er við að 30-40 verði ráðnir. Bærinn fer í umhverfis- verkefni í sumar og verða um 200 störf auglýst í byrjun maí. Steinunn Árnadóttir, garðyrkju- stjóri Seltjarnarnesbæjar, segir að allt skólafólk fái vinnu í sumar. Vinnutími verði styttur um hálf- tíma hjá hinum yngstu og klukku- tíma hjá hinum. Krakkar í Vinnu- skólanum fái vinnu í átta vikur. - ghs Vilja ráða sem flesta Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu stefna að því að ráða mörg þúsund nema í vinnu í sumar. Sum hafa stytt dagvinnutíma svo unnt sé að ráða fleiri til starfa. Karlarnir eru að skíttapa alls staðar VEIÐI Elliðavatn var stangveiði- mönnum gjöfult á fyrsta veiði- degi í gær, en í hugum margra hefst veiðisumarið við vatnið ár hvert. Veiðimenn settu bæði í bleikju og urriða, en það var mál manna að fiskurinn væri óvenjulega vel haldinn. Samkvæmt upplýsingum frá Stangveiðifélagi Reykjavíkur voru flestir veiðimenn með einn til þrjá silunga eftir daginn. Veðrið var rysjótt en menn létu ekki mikla rigningu og haglél trufla sig við veiðarnar. - shá Veiðisumarið formlega hafið: Veiði byrjar vel í Elliðavatninu BARÁTTUDAGUR VERKALÝÐSINS Fjöldi fólks tók þátt í hefðbundnum hátíðahöldum um allt land í gær. Í kröfugöngum voru á lofti hefðbundnar kröfur um bætt kjör verkafólks en einnig kom baráttufólk fyrir stöðu hælisleitenda skoðunum sínum skýrt á framfæri. Á Austurvelli voru gerð köll að forseta Alþýðusambandsins. Sjá síðu 10 FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HEILBRIGÐISMÁL Dönsk heilbrigðis- yfirvöld tilkynntu í gær um fyrsta tilfelli svínaflensu í Dan- mörku. Einnig bárust fréttir um smit í Frakklandi og Hong Kong, þar sem hótelgestir voru settir í sóttkví. Haraldur Briem sóttvarna- læknir segir að tilfellið í Dan- mörku breyti ekki stöðunni hvað Ísland varðar og viðbúnaðar- stigið helst óbreytt. - shá / sjá síðu 6 Svínaflensan breiðist hratt út: Smit staðfest í Danmörku

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.