Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 2. maí 2009
Hönnuð hilla og línuskautar,
unaðsleg kaka og ketill sem fl autar.
Komdu í heimsókn
VIÐURKENNDIR BÓKARAR
RÉTTINDANÁM HAUST 2009
Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík býður áhugasömum að sitja réttindanám fyrir
bókara. Þeir nemendur sem standast prófin fá staðfestingu frá fjármálaráðuneytinu um
að þeir séu viðurkenndir bókarar, skv. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
NÁMIÐ SKIPTIST Í ÞRJÁ HLUTA:
I. HLUTI SKATTSKIL (40 KLST.)
Markmið námskeiðsins er almenn innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu
fyrirtækja og einstaklinga.
II. HLUTI UPPLÝSINGAMIÐLUN OG UPPLÝSINGAKERFI (31 KLST.)
Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning þátttakenda á áhrifum upplýsingakerfa
nútímans á reikningshald og á rafræn samskipti. Áhersla er lögð á notkun Excel við
bókhaldsstörf.
III. HLUTI REIKNINGSHALD (40 KLST.)
Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning þátttakenda á meginreglum reikningshalds
og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á.
Námið hefst 21. ágúst og er alls 110 klst.
Verð kr. 256.000,
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Birna Björnsdóttir
599 6316 / birnabj@ru.is
www.fagmennt.is
PAKISTAN, AP Pakistansher hefur
í vikunni reynt að hrekja sveitir
talibana frá Buner-héraði, sem er
í aðeins hundrað kílómetra fjar-
lægð frá Islamabad, höfuðborg
landsins.
Í síðustu viku lagði um 500
manna lið talibana undir sig
helstu bæi í héraðinu. Stjórnvöld
brugðust hart við og sendu herinn
á vettvang. Asif Ali Zardari for-
seti hvetur þjóðina til að standa
einhuga að baki aðgerðum gegn
talibönum.
Bandaríkjastjórn gagnrýndi
Zardari harðlega þegar hann
ákvað að semja við talibana um
að íslömsk sjaría-lög verði tekin
upp í Swat-dalnum og Malakand-
héraði, en í staðinn lofuðu taliban-
ar að hætta uppreisn sinni gegn
stjórninni, sem kostað hefur fjöl-
mörg mannslíf undanfarin tvö ár.
Í ræðu á miðvikudag sagði Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti að
Pakistanar væru nú að átta sig
á því að áherslan á Indland sem
höfuðóvin Pakistans hafi kannski
verið misráðin. Nú sé að koma í
ljós að hættan innan frá sé mun
meiri. Pakistanski herinn sé far-
inn að líta mun alvarlegri augum
á hættuna sem stafar af herskáum
öfgamönnum. „Ég hef miklar
áhyggjur af ástandinu í Pakistan,
ekki vegna þess að ég haldi að
árás sé yfirvofandi og talibanarn-
ir muni taka völdin,“ sagði Obama,
„heldur vegna þess að borgaralega
ríkisstjórnin þar er mjög brothætt
sem stendur.“
Talibanar njóta mikils stuðnings
meðal pastú-þjóðflokksins, sem
býr beggja megin landamæranna
og hefur í gegnum aldirnar iðu-
lega neitað að lúta ríkisvaldinu,
bæði í Afganistan og Pakistan.
Þessi víðtæki stuðningur meðal
pastúa hefur gert talibönum kleift
að hreiðra um sig Pakistans megin,
og skipuleggja þaðan bæði fjár-
öflun, vígvæðingu og árásir yfir
landamærin á erlenda herliðið í
Afganistan. - gb
Talibanar hafa lagt undir sig helstu bæi í Bunerhéraði:
Stjórnin í Pakistan
spyrnir við fótum
VÍGBÚNAÐUR GEGN TALIBÖNUM Pakistanskir hermenn á leið til vígstöðva í Buner-
héraði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP