Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 54
30 2. maí 2009 LAUGARDAGUR
Hvers konar tónlist ert þú að fást
við núna?
Var að ljúka við verkefni sem ég
kallaði „Found Songs“ sem voru
sjö lítil klassísk verk, gefin út
á netinu, eitt á dag í eina viku.
Núna er ég að taka mér smá frí
frá klassíkinni og er að vinna
að verkefninu Kiasmos, sem er
danstónlist.
Hvenær varstu hamingju-
samastur ?
Núna. Kannski ekki akkúrat í
dag eða þessa vikuna, en svona
almennt séð þessa mánuðina.
Ef þú værir ekki tónlistarmaður
hvað myndirðu þá vera?
Fatahönnuður, lögfræðingur,
reka útgáfufyrirtæki, arkitekt...
ég veit það ekki, allt of margt
sem mig langar að gera.
Hvað er það dýrasta sem þú
hefur nokkurn tímann keypt
þér?
Fartölvan mín.
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við þig?
„Nei“ - í ákveðnu samhengi.
Annars held ég að ég hafi slopp-
ið frekar vel.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík
hvar myndirðu vilja búa?
Berlín. Vil samt helst halda mér
í Reykjavík bara.
Uppáhaldstónlistarmaður/-kona
og af hverju?
Má þetta?
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu?
Ég er nú ekki það metnaðarfull-
ur í lífsnautnunum að eiga ein-
hverja sérstaka draumahelgi.
Þarf bara mitt góða fólk í kring-
um mig, þá er ég sáttur.
Hvert er versta starf sem þú
hefur nokkurn tíman gegnt?
Bæjarvinna Mosfellsbæjar? Það
var nú samt ekkert svo slæmt ...
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð-
inni?
Sumarbústaður fjölskyldunnar
við Álftavatn. Helst úti á vatn-
inu á kajak.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag ertu að
hlusta mest á í dag?
Einföld, melódísk, klassísk tón-
list hefur mest áhrif á mig. Og
gott síð-rokk (sem er reyndar
vandfundið...). En þessa dagana
er ég með lagið Time-Lapse Lif-
eline með Maria Taylor á repeat.
Gott popp.
Ef þú ættir tímavél, hvert mynd-
irðu fara og af hverju?
Væri til í að upplifa diskótíma-
bilið, en finnst framtíðin samt
áhugaverðari en fortíðin. Myndi
skella mér nokkur ár fram í tím-
ann og gá hvort ég gæti keypt
mér ódýra ferð til tunglsins í
leiðinni ...
Er eitthvað sem heldur fyrir þér
vöku á nóttunni?
Já.
Ef þú gætir breytt einhverju í for-
tíð þinni, hvað myndi það vera?
Engu. Er sáttur með hvar ég er
í dag, og ef ég breytti einhverju
í fortíðinni væri nútíðin líklega
önnur.
Hvenær fékkstu síðast hláturs-
kast?
Á kosningavöku heima hjá mér,
þegar ég og vinkona mín kom-
umst loks að því, eftir örugglega
2 klukkutíma, að þumalputtinn
í horninu á skjánum stæði ekki
fyrir hversu margir væru búnir
að „læka“ kosningarnar á Face-
book.
Áttu þér einhverja leynda
nautn?
Lagið 7 Things með Miley Cyrus.
Þessi nautn er samt ekkert svo
leynd.
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Var að klára að lesa bók um
afstæðiskenninguna eftir David
Bodanis sem var frábær.
Hvaða núlifandi manneskju lítur
þú mest upp til?
Pabba.
En hvaða núlifandi manneskju
þolirðu ekki?
Ég hef ekki mikla þolinmæði
fyrir Bubba þegar hann byrjar
að tjá sig.
Uppáhaldsorðið þitt?
Forlát.
Hvaða eitt atriði myndi full-
komna lífsgæði þín?
Aðeins meiri metnaður í að drífa
mig fram úr rúminu á morgnana.
Kæmi fleiru í verk.
Hvaða lag á að spila í jarðarför-
inn þinni?
Eitthvað ekki of dramatískt. Eitt-
hvað fallegt, sem lætur mann fá
þá tilfinningu að það verði allt í
lagi.
Hver verða þín frægu hinstu
orð?
„Ha?“
Hvað er næst á dagskrá?
Halda áfram að vinna í plötunni
minni sem kemur út í haust. Einn-
ig nokkrar tónlistarhátíðir á dag-
skrá á næstunni auk tónleika-
ferðalags um Ísland með vinum
mínum í For a Minor Reflection.
Hef litla
þolinmæði
fyrir Bubba
ÓLAFUR ARNALDS TÓNLISTARMAÐUR Fékk síðast hláturskast á kosningavöku þegar hann fattaði að þumalputtar á skjánum
tengdust ekki Facebook. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞRIÐJA GRÁÐAN
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
Mitt aðalstarf hefur verið
hljóðmaður síðustu ár, en það
hefur smám saman verið að
víkja fyrir tónsmíðinni og eigin
tónleikahaldi.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐ-
IST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI:
1986 - Kvikmyndin Top Gun
kom í bíó.
Ólafur Arnalds hefur vakið verðskuldaða athygli
fyrir nýklassískar tónsmíðar en hann er líka ann-
ar helmingurinn af teknó-tvíeykinu Kiasmos.
Anna Margrét Björnsson fékk hann til þess að svara
nokkrum mjög mikilvægum spurningum.
www.tskoli.is
Ráðstefna verður haldin í hátíðarsal Tækniskólans við
Háteigsveg föstudaginn 8. maí frá kl. 13:00 – 17:00.
Ráðstefnugjald er 4000 kr. Ráðstefnugögn verða afhent frá kl. 12:30.
Skráning fer fram í s. 514 9601 eða á netfangið ave@tskoli.is.
Nánari upplýsingar á www.tskoli.is.
• Ávarp samgönguráðherra
• e Airline Industry: Trends, Challenges and Strategies
John Wensveen Ph.D. Dean of School of Aviation
• Air Atlanta Hannes Hilmarsson forstjóri
• Icelandair Birkir Holm Guðnason framkvæmdastjóri
• Flugfélag Íslands Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri
• Flugvélamarkaðurinn Hafþór Hafsteinsson stjórnarformaður
Avion Aircraft Trading hf.
• Flugfélagið Ernir Hörður Guðmundsson framkvæmdastjóri
• Primera Air Hrafn Þorgeirsson framkvæmdastjóri
• Flugmálastjórn Pétur K. Maack flugmálastjóri
Áskoranir og tækifæri
Rekstur f lugfélaga