Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er laugardagurinn 2. maí,
122. dagur ársins.
4.56 13.25 21.55
4.28 13.09 21.53
Í aðdraganda nýafstaðinna kosninga var einn frambjóð-
enda spurður hvort hann vildi
virkilega fara með íslenskt sam-
félag fimmtán ár aftur í tím-
ann. Í spurningunni lá að í slíkri
afstöðu fælist aðeins rykfallin
fortíðarhyggja og heimskulegur
fjandskapur í garð hvers konar
framfara og framþróunar á öllum
sviðum. Enda sór frambjóðandinn
það dyggilega af sér að vera slík-
ur pólitískur steingervingur að
hann teldi eftir nokkru vitrænu
að slægjast svo langt aftur í forn-
eskjunni.
EN þetta fékk mig til að staldra
aðeins við og rifja upp liðna tíð.
Ég er nefnilega orðinn svo gam-
all að ég man ósköp vel fimmtán
ár aftur í tímann. Og hvernig
sem ég rembist tekst mér engan
veginn að fá upp í hugann neina
mynd af því sovéska helvíti sem
látið hefur verið í veðri vaka að
hafi verið á Íslandi árið 1994. Ég
man ekki betur en að hægt hafi
verið að ferðast til útlanda, gjald-
eyrisviðskipti hafi viðgengist og
verðbólga hafi verið viðunandi.
Að olíuverslun undanskilinni
minnir mig meira að segja að við-
skiptaumhverfi hafi verið þokka-
lega eðlilegt, alltjent voru orðin
„ofurlaun“ og „græðgisvæðing“
ekki til í málinu.
MENNINGAR- og listalíf var
í blóma árið 1994. Söngleikur-
inn Hárið gekk fyrir fullu húsi
í Íslensku óperunni, Maus vann
Músíktilraunir og Hallgrímur
Helgason sendi frá sér Þetta er
allt að koma. Húmor og bjartsýni
réðu ríkjum. Á Kaffibarnum var
fullt út úr dyrum öll kvöld vik-
unnar. Þótt sjálfur hafi ég dvalið
þar langdvölum minnist ég þess
ekki að vísitölur, vogunarsjóði,
vaxtabætur og verðtryggingar-
álag hafi nokkurn tímann borið á
góma í samræðum þar. Nei, þar
var rætt um menningu, listir og
stefnur og strauma í hugsun, við-
horfum og gildum. Gott ef hinstu
rök tilverunnar voru ekki öðru
hvoru tekin til umfjöllunar. Árið
1994 var hagfræði nefnilega talin
óáhugavert nördafag. Þá grunaði
engan að aðeins fimm tán árum
síðar yrði hún alfa og ómega
allrar opinberrar umræðu um
mannlegt samfélag.
ÞEGAR betur er að gáð er ég ekki
frá því að ef árið 1994 hefði verið
í boði á kjörseðlinum um síðustu
helgi hefði ég valið það. Í raun er
það eina verulega slæma, sem ég
minnist frá árinu 1994, framtíðin
sem þá beið okkar.
1994
895,-