Fréttablaðið - 02.05.2009, Side 80

Fréttablaðið - 02.05.2009, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er laugardagurinn 2. maí, 122. dagur ársins. 4.56 13.25 21.55 4.28 13.09 21.53 Í aðdraganda nýafstaðinna kosninga var einn frambjóð- enda spurður hvort hann vildi virkilega fara með íslenskt sam- félag fimmtán ár aftur í tím- ann. Í spurningunni lá að í slíkri afstöðu fælist aðeins rykfallin fortíðarhyggja og heimskulegur fjandskapur í garð hvers konar framfara og framþróunar á öllum sviðum. Enda sór frambjóðandinn það dyggilega af sér að vera slík- ur pólitískur steingervingur að hann teldi eftir nokkru vitrænu að slægjast svo langt aftur í forn- eskjunni. EN þetta fékk mig til að staldra aðeins við og rifja upp liðna tíð. Ég er nefnilega orðinn svo gam- all að ég man ósköp vel fimmtán ár aftur í tímann. Og hvernig sem ég rembist tekst mér engan veginn að fá upp í hugann neina mynd af því sovéska helvíti sem látið hefur verið í veðri vaka að hafi verið á Íslandi árið 1994. Ég man ekki betur en að hægt hafi verið að ferðast til útlanda, gjald- eyrisviðskipti hafi viðgengist og verðbólga hafi verið viðunandi. Að olíuverslun undanskilinni minnir mig meira að segja að við- skiptaumhverfi hafi verið þokka- lega eðlilegt, alltjent voru orðin „ofurlaun“ og „græðgisvæðing“ ekki til í málinu. MENNINGAR- og listalíf var í blóma árið 1994. Söngleikur- inn Hárið gekk fyrir fullu húsi í Íslensku óperunni, Maus vann Músíktilraunir og Hallgrímur Helgason sendi frá sér Þetta er allt að koma. Húmor og bjartsýni réðu ríkjum. Á Kaffibarnum var fullt út úr dyrum öll kvöld vik- unnar. Þótt sjálfur hafi ég dvalið þar langdvölum minnist ég þess ekki að vísitölur, vogunarsjóði, vaxtabætur og verðtryggingar- álag hafi nokkurn tímann borið á góma í samræðum þar. Nei, þar var rætt um menningu, listir og stefnur og strauma í hugsun, við- horfum og gildum. Gott ef hinstu rök tilverunnar voru ekki öðru hvoru tekin til umfjöllunar. Árið 1994 var hagfræði nefnilega talin óáhugavert nördafag. Þá grunaði engan að aðeins fimm tán árum síðar yrði hún alfa og ómega allrar opinberrar umræðu um mannlegt samfélag. ÞEGAR betur er að gáð er ég ekki frá því að ef árið 1994 hefði verið í boði á kjörseðlinum um síðustu helgi hefði ég valið það. Í raun er það eina verulega slæma, sem ég minnist frá árinu 1994, framtíðin sem þá beið okkar. 1994 895,-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.