Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 6
6 2. maí 2009 LAUGARDAGUR Opið málþing með hinum heimskunna kvikmyndaleikstjóra » David Lynch « Heiti málþingsins: Heilbrigði, farsæld og framfarir Samstillt átak Íslendinga um kennslu í innhverfri íhugun „Íslenska þjóðin mun upplifa framfarir sem erfitt er fyrir hana að ímynda sér í dag.” David Lynch Háskólabíó (stóra salnum) í dag laugardag, 2. maí, kl. 14:00 Aðgangur er ókeypis Lay Low leikur nokkur lög að loknum pallborðsumræðum Áætlun Lynch miðar að því að bjóða öllum Íslendingum að læra innhverfa íhugun á lágmarksverði ásamt því að leggja grunninn að stöðugum friðarhópi 200 iðkenda sérstakrar framhaldstækni sem skapa mun samstillingu í þjóðarvitundinni og færa íslensku þjóðinni áður óþekkt lífsgæði á öllum sviðum. www.ihugun@ihugun.is VIÐSKIPTI Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhann- esar Kristinssonar, verður tekið til gjaldþrotaskipta, samkvæmt samþykkt Héraðsdóms Reykja- víkur frá því á miðvikudag. Morgunblaðið greindi frá þessu. Helstu eignir Fons á Íslandi eru Securitas og Plastprent en auk þess á félagið hlut í versluninni Hamleys og ferðaskrifstofunni Ticket. Gjaldþrotið hefur engin áhrif á Iceland Express, sem er eign annars félags í eigu Pálma. Í samtali við Vísi.is, en vefmið- illinn greindi fyrstur frá beiðni félagsins um gjaldþrota skipti, segir Pálmi að rekstrarumhverfið í dag geri félaginu ókleift að starfa áfram. Skuldir Fons eru taldar um tuttugu milljarðar en eignir um fjórtán milljarðar, þar af fjórir milljarðar í reiðufé. - shá Enn eitt stórfyrirtækið í þrot: Fons tekið til gjaldþrotaskipta Ýsa hækkar um 13 prósent Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri ýsu, sem ráð- stafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um þrettán prósent. Verð á óslægðri ýsu var hækkað um sautján prósent. Ákveðið var að hækka verð á karfa um 13 prósent. Verð þetta gildir frá og með 1. maí 2009. SJÁVARÚTVEGUR ÖRYGGISMÁL „Það var ólýsanleg til- finning og meiri upplifun en ég hefði getað ímyndað mér,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Land- helgisgæslunnar, en nýtt fjölnota varðskip Íslendinga var sjósett í ASMAR-skipasmíðastöðinni í Chile á miðvikudag. Skipinu var gefið nafnið Þór og verður afhent á fyrra hluta næsta árs. Georg segir tilkomu nýja varð- skipsins vera sögulega stund fyrir íslenska þjóð og með þeim stærri í rúmlega 80 ára sögu Landhelgis- gæslunnar. „Aðstæður okkar í björgunar- og öryggismálum almennt séð umbyltist við komu þessa nýja skips sem er það full- komnasta sinnar tegundar á Norður-Atlantshafi.“ Að undanförnu hefur mikið verið rætt um aukna þýðingu þess að strandgæslustofnanir á N-Atl- antshafi starfi nánar saman á sviði öryggis- og eftirlitsmála á hafinu. Verður hið nýja varðskip mikil- vægur hlekkur í því samstarfi þar sem gert er ráð fyrir gagnkvæmri aðstoð við öryggiseftirlit og björg- unarþjónustu, að sögn Georgs. Georg tiltekur sérstaklega hversu mikilvægt það sé að fá til landsins öflugt dráttarskip, sem ekki hefur verið til að dreifa til þessa. Einnig er um borð sér- stakur búnaður til mengunar- varna og búnaður sem veitir aukna nákvæmni í stjórn skips- ins við erfiðar aðstæður. Hægt er að taka stórtækan björgunarbún- að um borð sem og fjölda manns sem getur skipt sköpum við björg- unaraðgerðir. Skipið er búið öflug- um slökkvibúnaði og getur gefið þyrlum á flugi eldsneyti. Smíði þessa fjölhæfa og fjölnota hátækniskips hefur vakið gríðar- lega athygli og fylgjast strandgæsl- ur víða um heim með gangi mála. Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, gaf varðskipinu nafn við sjósetn- inguna. svavar@frettabladid.is Nýtt varðskip sjósett og gefið nafnið Þór Eftirlits- og björgunargeta Landhelgisgæslunnar eykst til muna við komu nýs varðskips á næsta ári. Skipið er eitt best búna varðskip heims. Georg Lárusson, forstjóri LHG, segir það ólýsanlega tilfinningu að sjá skipið sjósett. ÞÓR SJÓSETTUR Skipið er 4.250 brúttótonn, tæpir 94 metrar að lengd og sextán metra breitt. MYND/LHG Hefur þú áhyggjur af fyrirsjáan- legri fækkun lögreglumanna? Já 77,5% Nei 22,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Ert þú félagi í golfklúbbi? Segðu skoðun þína á Vísir.is HEILBRIGÐISMÁL Staðfestum tilvik- um svínainflúensu í heiminum fjölgar áfram og voru alls 481 í gærmorgun, þar af 312 í Mexíkó. Alls hafa þrettán látist úr veik- inni þar af tólf í Mexíkó og einn í Bandaríkjunum, samkvæmt nýj- ustu upplýsingum Sóttvarnastofn- unar Evrópu. Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin er áfram með viðbúnað sinn á fimmta hættustigi af sex. Á samráðsfundi sóttvarnalækn- is og almannavarnadeildar Ríkis- lögreglustjóra í gær kom fram að á Íslandi hefur enginn verið greind- ur með svínaflensuna eða lagður inn á Landspítala vegna gruns um smit. Viðbúnaður er því óbreyttur hér á landi og ekki er talin ástæða til frekari aðgerða að sinni. Veiru- lyfjum hefur verið dreift og lækn- ar ávísa lyfjum til sjúklinga sem talið er líklegt að séu smitaðir. Skipaður hefur verið viðbragðs- hópur ráðuneyta og ákveðið að hvert ráðuneyti geri áætlun um hvernig brugðist skuli við far- aldri. Unnið er að því að koma á raf- rænni skráningu inflúensutil- fella hérlendis til að hraða upplýs- ingamiðlun í heilbrigðiskerfinu þannig að yfirsýn um stöðuna sé sem skýrust á hverjum tíma, segir á heimasíðu landlæknisembættis- ins. - shá Alls 481 staðfest tilvik svínainflúensu í heiminum, meirihlutinn í Mexíkó: Enn enginn greindur hérlendis STAÐFESTUR FJÖLDI SMITAÐRA 1. MAÍ* Bretland 8 Kanada 28 Holland 1 Þýskaland 3 Austurríki 1 Spánn 13 Ísrael 2 Sviss 1 Bandaríkin 109 Mexíkó 312 Nýja-Sjáland 3 *Tilkynnt um smit í Danmörku, Hong Kong og smit á milli manna í Bretlandi. Lögreglumessa á Selfossi Lögreglumessa var haldin á Selfossi í gær, í fyrsta skipti utan höfuðborgar- svæðisins. Ræðumaður var Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður á Litla-Hrauni. Margt um manninn Töluverður fjöldi fólks skemmti sér í miðborginni í fyrrinótt. Nokkuð var um ölvun en almennt fór skemmt- anahald vel fram. Sex voru þó grun- aðir um að keyra undir áhrifum. LÖGREGLUFRÉTTIR TAÍVAN, AP Taívanir hafa sann- fært Kínverja um að leyfa þeim að sækja ráðstefnu Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar í Genf í maí. Þetta þykir mikill sigur fyrir Ma Ying-jeou forseta, sem hefur barist fyrir aukinni alþjóð- legri viðurkenningu ríkis síns. Kínversk yfirvöld hafa staðið gegn þátttöku Taívana í alþjóða- samstarfi allt frá því að eyja- skeggjar klufu sig frá Kína í borgarastyrjöldinni 1949. Þeir líta enn á Taívan sem sitt yfir- ráðasvæði. Ma forseti, sem hefur setið í ellefu mánuði, hefur hins vegar einsett sér að bæta sam- skiptin við Kínverja. - sh Andstaða Kínverja minnkar: Taívönum leyft að vera með ÞÝSKALAND, AP Bandaríkin vilja hjálp Evrópuríkja við lokun á hinum alræmdu Guantanamo- fangabúðum á Kúbu. Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, óskaði eftir því við fulltrúa Evrópuríkja á miðviku- dag að ríkin samþykktu að taka við einhverjum þeirra fanga sem vistaðir hafa verið í Guantanamo og ekki er lengur talin stafa ógn af. „Ég veit að Evrópuríki opnuðu ekki Guantanamo, og að raunar voru margir í þessari heimsálfu and- snúnir búðunum,“ sagði Holder í Berlín á miðviku- dagskvöld. „Til að loka Guantanamo verðum við öll að færa fórnir og við verðum að vera tilbúin að taka óvinsæl- ar ákvarðanir,“ sagði Holder enn fremur. Í dag er 241 fangi í Guantanamo-fangabúðunum. Holder sagði bandarísk stjórnvöld hafa samþykkt að sleppa þrjátíu þeirra. Barack Obama Bandaríkja- forseti hefur fyrirskipað að loka skuli Guantanamo innan níu mánaða. Herta Daubler-Gmelin, fyrrverandi dómsmála- ráðherra Þýskalands, sagði að landið myndi að öllum líkindum taka við fyrrum föngum frá Guantanamo. Aðrar Evrópuþjóðir hafa einnig tekið vel í að taka við fyrrverandi föngum, þar á meðal Portúgal og Litháen. Frakklandsforseti hefur samþykkt að taka á móti einum fanga. Litið er á það sem táknrænan stuðning. - bj Bandaríkin vilja aðstoð Evrópuríkja við lokun á Guantanamo-fangabúðunum: Fangar geti flutt til Evrópu VILJA AÐSTOÐ Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, bað ríki Evrópu um aðstoð við að finna föngum í Guantanamo nýjan samastað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.