Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 51
rir börnin
Þær bláu bragðast betur Gísli
Garðar er alveg viss um að bláar
pönnukökur bragðast best.
Flott afmæliskerti Öðruvísi afmælis-
kerti setur skemmtilegan brag á
kökuna.
að mestu um veitingarnar en eldri
sonurinn er liðtækur aðstoðar-
maður. „Hann skreytir möffinsin
fyrir mig, ég geri smjörkrem og
set í það matarlit og hann setur
kremið á. Einnig er fastur liður að
hann geri ostapinnana og stingi í
greipávöxt.“
Matarlitur er leynivopn Lindu er
kemur að því að gera veisluborð-
ið litríkt og skemmtilegt. Nú síð-
ast prófaði hún að setja grænan og
bláan lit í venjulegar pönnukökur
og það sló alveg í gegn. „Eins og
sonur minn sagði þá smakkast þær
bláu betri en venjulegar.“
Linda dró einnig fram gamalt
bollastell sem hún átti og lagði
á fína veisluborðið. „Þetta var
stell sem ég fékk gefins frá pabba
mínum en er eiginlega of lítið
fyrir fullorðna. Það hentar hins
vegar fullkomlega fyrir börn og
þau höfðu mjög gaman af því að
drekka eplasafa úr bollum,“ segir
Linda sem leit við í Fríðu frænku
og bætti könnu í stellið.
„Svo er Partýbúðin vinsæll
áfangastaður áður en veisla er
haldin, þar má fá alls kyns afmælis-
skraut,“ segir Linda.
- sbt
Fiðrildakaka
Skreyttar kökur gleðja
augu og maga.
SAMVERA
Litríkar og hljómfagrar
Föndur þarf ekki að vera flókið og
jafnvel mestu klaufabárðar geta búið
til ýmislegt skemmtilegt með
börnunum sínum á rigningardögum
þegar notalegt er að vera inni með
fjölskyldunni. Með einföldum hætti
er til dæmis hægt að búa til sýlófón,
þá þarf ekki annað en nokkrar
glerflöskur sem í er sett mismikið
vatn. Til að gera hlutina skemmti-
legri er tilvalið að setja matarlit út í
vatnið. Síðan er ekki annað en að slá
laust í flöskurnar með skeið eða
blýanti til þess að spila lag. Þessa
hugmynd og fleiri er að finna í bók sem heitir Kids‘ Art & Crafts.
Easy Projects og fæst í Eymundsson.
Fjöruferð Fátt er skemmtilegra en
að fara með fjölskylduna í fjöruferð
og á eyjunni Íslandi er aldeilis af
nægum fjörum að taka. Ekki þarf að
vera sól og sumar til að fjöruferð
hitti í mark, það er bara hægt að
klæða sig vel ef veðrið leikur ekki við
landið. Svo er um að gera að taka
sandakassadótið með, leggja vegi,
byggja stíflur og kastala. Listina að
fleyta kerlingar er líka um að gera að kenna öllum börnum og
efna svo til fjölskyldukeppni í henni. Þegar sæmilega hlýtt er í
veðri er hægt að vaða í sjónum og þeir hughraustu geta jafnvel
skellt sér til sunds, henti aðstæður til þess.
LEIKGLEÐI OG SKÖPUNARKRAFTUR Leiklist, spuni,
hiphop, afródans, myndlist og jóga er á boðstólum í sumarskóla
Kramhússins. Hann er opinn börnum á aldrinum sjö til tólf ára,
námskeiðin taka fimm daga og kosta tæpar tuttugu þúsund krónur.
Sími: 456 5111, info@vesturferdir.is, www.vesturferdir.is
- þinn áfangastaður -
Vestfirðir
Firðirnir, fjöllin og fjaran.
Náttúran, mannlíf og sagan.