Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 66
42 2. maí 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> FÉKK AÐ KYSSA BEYONCÉ
Breski leikarinn Idris Elba fékk
óvæntan glaðning á fyrsta tökudegi
kvikmyndarinnar Obsessed. Þá fékk
hann að kyssa mótleikkonu sína,
Beyoncé Knowles. „Þetta var
undarlegt. Það voru ekki
tuttugu mínútur liðnar frá
því við hittumst þar til við
vorum að kyssast. Ég gat
ekki kvartað,“ segir Elba,
sem þekktastur er fyrir
hlutverk sitt í hinum frábæru
sjónvarpsþáttum The Wire.
„Við fengum 995 atkvæði, stefndum alltaf að því að
koma manni inn og fá þannig eitthvað fjármagn í
kassann,“ segir Bjarki Björgúlfsson, nemi í Bret-
landi. Hann var á lista Náttúrlagaflokkans í
Alþingiskosningunum árið 1995 sem boðaði þar
innhverfa íhugun til hjálpar Íslendingum; að lítill
hópur fólks myndi stunda þessa hugleiðslutækni
og ná þannig að virkja kraft þjóðarinnar enn frek-
ar. Þetta hringir kannski einhverjum bjöllum enda
sami boðskapur og bandaríski kvikmyndaleikstjór-
inn David Lynch hyggst flytja á fyrirlestri
sínum í Háskólabíói á laugardaginn.
„Þetta er óneitanlega nokkuð skondið
og eflaust hefði framboð okkur hlotið
meiri hljómgrunn í dag en þá,“ segir
Bjarki.
Hann kveðst í dag ekki vera
dyggur fylgismaður innhverfr ar
íhugunar en grípur til hennar
þegar mikið liggur við. Og
ber henni vel söguna. „Já,
ég get alveg sagt að mér
leið öðruvísi, ég var yfir-
vegaðari og betur í stakk
búinn að takast á við vanda-
mál, það var eins og maður hefði einhverja óútskýran-
lega ró og kraft,“ útskýrir Bjarki. Ekki loku
fyrir það skotið að þessi tækni gæti nýst
íslenskum stjórnmálamönnum þegar þeir
takast á við efnahagsvandann.
Forsvarsmaður hópsins var Jón Hannes
Halldórsson ferðamálafrömuður en hann
lést skömmu eftir kosningar. Framboð-
ið lognaðist í kjölfarið út af og hefur lítið
til þess spurst. Reyndar voru bæði systir
og bróðir Bjarka á lista og hann hlær
þegar hann rifjar upp kosningabar-
áttuna, „Já, já, þau voru send í
þjóðmálaumræðuþætti og ég
veit ekki hvað, þetta var rosa-
lega skemmtilegt og kannski
hefðum við átt að bjóða okkur
aftur fram í ár.“ - fgg
N-listinn aftur í sviðsljósið
DEILA SÖMU HUGSJÓNUM David
Lynch og N-listinn sálugi
deila sömu hugsjónum; að
hugleiðsla lítils hóps geti haft
veruleg áhrif á þjóðarsálina,
virkjað kraftinn.
Krummi Björgvinsson fetar
í fótspor Rúnars Júlíus sonar
á minningartónleikum í
kvöld þegar hann syngur
Am I Really Living.
Sannkölluð veisla fyrir augu og
eyru verður í Laugardalshöllinni
í kvöld þegar minningartónleikar
um Rúnar Júl fara fram. Rjóminn
af íslensku tónlistarfólki kemur
saman til að heiðra minningu Hr.
Rokk og verður af nægu að taka
fyrir alla. Löngu er uppselt á tón-
leikana. Jón Ólafsson verður kynn-
ir á tónleikunum og mun hann fá
viðmælendur uppá svið til að ræða
um ferilinn og lífið með Rúna Júl.
Þá verður til sölu sérstakur Trú-
brots-kassi þar sem finna má
plötur þessarar goðsagnakenndu
hljómsveitar á sérstöku tónleika-
tilboði.
Þau Eiríkur Hauksson, Shady
Owens og Helgi Björnsson fljúga
sérstaklega til landsins til að taka
þátt í þessari miklu veislu. Eirík-
ur mun syngja GCD-syrpu, Helgi
verður með Unun en Shady Owens
tekur sér auðvitað bara sína stöðu
með Hljómum og Trúbroti.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun Páll Óskar hefja
dagskrána með lögunum Rokk og
Ról og Söng um lífið og svo kemur
einvalalið listamanna koll af
kolli. Nægir þar að nefna Hjalta-
lín, Björgvin Halldórsson og Sál-
ina hans Jóns míns. Meðal þess
sem áhorfendur fá að sjá og heyra
er þegar Krummi fetar í fótspor
Rúnars og syngur með Trúbroti
og Karlakór Keflavíkur hið ódauð-
lega lag sveitarinnar, Am I Really
Living. Mezzoforte-liðarnir Jóhann
Ásmundsson og Gunnlaugur Briem
munu spila með sveitinni.
freyrgigja@frettabladid.is
KRUMMI SYNGUR
MEÐ TRÚBROTI
MIKIL VEISLA
Rjóminn af íslenskum tónlistarmönnum
verður samankominn í Laugardalshöll
á laugardaginn þegar minning Rúnars
Júl verður heiðruð. Páll Óskar flytur
fyrstu tvö lögin og Krummi syngur Am
I Really Living með Karlakór Keflavíkur
og Trúbroti.
Leikkonan Meryl Streep fær afhent heiðurs-
verðlaun fyrir æviframlag sitt til leiklistar-
innar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Róm sem verður haldin í október.
Tékkneski leikstjórinn Milos Forman
verður formaður dómnefndar á hátíðinni.
Hann hefur aldrei leikstýrt Streep en lék
þó aukahlutverk í mynd hennar Heart-
burn árið 1986. Streep hefur oftast allra
leikkvenna verið tilnefnd til Óskarsverð-
launa, eða fimmtán sinnum. Tvívegis hefur
hún hlotið styttuna, fyrir myndirnar Kramer
vs Kramer og Sophie´s Choice.
Meryl Streep
heiðruð í Róm
MERYL STREEP Bandaríska leikkonan
fær afhent heiðursverðlaun fyrir ævi-
framlag sitt til leiklistarinnar í Róm.
Breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Rit-
chie og bandaríska poppdívan Madonna
hafa náð samkomulagi um að strákarnir
þeirra, hinn átta ára gamli Rocco og
hinn fjögurra ára gamli David Banda,
verði hjá honum yfir sumartímann.
Madonna er að halda í tónleikaferðalag
um Evrópu og sættist á þau rök fyrrver-
andi eiginmanns síns að skynsamlegast
væri fyrir strákana að vera hjá pabba
sínum í stað þess að vera á stanslausum
þvælingi.
Þetta er nokkuð óvænt vopnahlé
að mati fréttaskýrenda því stutt er
síðan Madonna fékk þann úrskurð
að lögheimili David og Rocco væri
í Bandaríkjunum. Guy leist ekkert á
þá niðurstöðu og lýsti því yfir að hann
væri hundfúll. Nú getur hann aftur
á móti tekið gleði sína á ný og hyggst
leikstjórinn breyta nokkrum hlutum á
heimili sínu í Ashcombe í tilefni af komu
strákanna sinna. Guy hyggst meðal
annars byggja sundlaug, sem
Madonna lagðist gegn á hjúskap-
arárum þeirra. „Hann ætlar að
gera þetta að sumri sem þeir
gleyma seint eða aldrei,“ sagði
einn heimildarmaður breska
blaðsins The Sun.
Og Guy virðist njóta pipar-
sveinalífsins því hann hefur sést í
örmum ungra kvenna. Náinn vinur
Guy sagði við The Sun að hann hygð-
ist ekki gera sömu mistök aftur; að
stofna til sambands við sér
eldri mey. „Þær konur sem
Guy hefur verið að hitta
eru á svipuðu reki eða
aðeins yngri en hann.“
Guy Ritchie fær strákana í þrjá mánuði
MEÐ PABBA David
og Rocco verða með
pabba. Lourdes situr
hins vegar eftir heima
í Bandaríkjunum með
móður sinni, Madonnu.
Gjöfin þín*
Ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 4.500 eða meira í Debenhams dagana 30. apríl – 6. maí.
Gjöfin inniheldur:
Soft Clean Cleanser – 30ml froðuhreinsi,
Advanced Night Repair – viðgerðardropa 7ml
Advanced Night Repair Eye recovery – augnkrem 5ml
High Gloss – litur Pearl
Pleasures – ilmvatn
Fallega bleika snyrtibuddu
Verðgildi gjafarinnar er 7.900 kr.
*meðan birgðir endast
Þú setur hann bara af stað, burstinn sér sjálfur um verkið.
kynnir
Nýtt: TurboLash
All Effects Motion Mascra
Sjálfknúinn titrandi burstinn þéttir augnhárin, lengir þau, aðskilur og sveigir fallega.
Og gerir þetta allt í einu. Annað eins hefur ekki áður sést.
Sótt hefur verið um einkaleyfi á þessari heimsnýjung í Bandaríkjunum og heim allan.