Fréttablaðið - 02.05.2009, Síða 78

Fréttablaðið - 02.05.2009, Síða 78
54 2. maí 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. dúkur, 6. í röð, 8. skar, 9. meðal, 11. til, 12. yfirstéttar, 14. vinna, 16. tveir eins, 17. sönghópur, 18. í viðbót, 20. golf áhald, 21. gefa frá sér reiðihljóð. LÓÐRÉTT 1. kvk nafn, 3. skammstöfun, 4. gras- svörður, 5. fiskilína, 7. lengst í suður, 10. ílát, 13. yfirbreiðsla, 15. frjáls, 16. þvottur, 19. gjaldmiðill. LAUSN LÁRÉTT: 2. segl, 6. rs, 8. hró, 9. lyf, 11. að, 12. aðals, 14. starf, 16. tt, 17. kór, 18. auk, 20. tí, 21. urra. LÓÐRÉTT: 1. erla, 3. eh, 4. grasrót, 5. lóð, 7. syðstur, 10. fat, 13. lak, 15. frír, 16. tau, 19. kr. Rúnar Rúnarsson Aldur: 32 ára Starf: Kvikmyndagerðarmaður og nemi. Stjörnumerki: Í kínverskri stjörnu- spá er ég rís- andi dreki en í þeirri venjulegu er ég stundum steingeit og stundum vatns- beri, það fer eftir því í hvaða blaði það er. Búseta: Bý í Kaupmannahöfn. Fjölskylda: Er giftur Claudiu Hausseld og við eigum dótturina Esju sem er tveggja og hálfs árs. Stuttmyndin Anna eftir Rúnar var valin á Cannes-hátíðina í maí, en þetta er í annað sinn sem hann hlýtur þann heiður. „Við munum einhenda okkur í að fá vínveitingaleyfið hið fyrsta. Svo maður þurfi nú ekki að vera hér edrú alla daga. Það hefur aldrei farið mér mjög vel að vera alveg edrú. Mjúkur er ég langbestur,“ segir Ragnar Gunnarsson, öðru nafni Raggi Sót í Skriðjöklunum. Raggi hefur nú vent sínu kvæði í kross. Frægastur er hann fyrir að fara fyrir hinum akureyrsku Skrið- jöklum en hefur samhliða því að vera poppstjarna rekið járnabind- ingafyrirtæki. Nú ætlar Raggi að reyna fyrir sér í veitingarekstri. Hann opnar fiskbúð á mánudag- inn en þar verður einnig veitinga- staður – borð fyrir 20 til 30 gesti. En aðallega er búðin hugsuð fyrir hinar vinnandi stéttir, þær sem starfa í Höfðahverfinu, þannig að þær geti tekið með sér hina ýmsu fiskrétti sem Raggi lofar að verði sannkallað lostæti. Fiskbúð- in/veitingastaðurinn hefur feng- ið nafnið Bryggjuhúsið. „Já, það er nú þannig að ég er fæddur og uppalinn í Bryggjuhúsinu á Akur- eyri. Og þess vegna er nú þetta nafn. Svo býður þessi búð upp á gott útsýni yfir bryggjuhverfið í Reykjavík þannig að nafngiftin var ekki úr vegi.“ Aðspurður tekur Raggi því víðs fjarri að þessi bransi sé sér ókunn- ugur með öllu. „Nei, nei, nei, pabbi var með útgerð. Smábátaútgerð og fiskaði. Svo keypti hann sér gaml- an lögreglubíl og keyrði með fisk- inn út í sveitir. Og seldi á hlaðinu. En það var eitt við þennan lög- reglubíl að pabbi ætlaði aldrei að læra að fara inn í hann að fram- an. Var svo vanur að fara inn aftan megin,“ segir þessi nýjasti fiski- kóngur á höfuðborgarsvæðinu og kímir. Hann bætir því við að þegar frægt karlaathvarf var rekið í Dugguvogi var hann vert, þjónn, kokkur og allt í senn. „Klúbburinn var meðal annars svona vinsæll af því að þar fengu menn svo gott að borða,“ segir Raggi. Og krefst þess að einnig verði sagt frá því að í Bryggjuhúsinu verði útlærð smurbrauðsdama sem sér um að framreiða slíkt fínerí. Á verði sem gerir fólki kleift að leyfa sér það af og til. „Ég mun kaupa hráefni hér og þar, stefni að því að kaupa fisk á markaði og vinna hann. Er með ágæta karla í það í Hafnarfirði. Já, ég fullyrði að þetta verður ein flottasta fiskbúð landsins.“ Nokkuð hefur borið á því að fiskbúðir bjóði upp á aukið úrval og Raggi segir samkeppnina af hinu góða. Verði til þess að menn vandi sig og leiti betra vöruverðs. En þetta hljóta að vera viðbrigði fyrir Ragga að fara í slorið – hann sem sjálfur er náttúrulega fyrst og fremst fræg- ur sem poppstjarna. „Já, en þær þurfa náttúrulega að lifa eins og aðrir. Þannig að við prófum þetta. Annars getur vel verið að maður þurfi að taka fram míkrófóninn með þessu ef ekki verður nóg að gera. Ekki vantar eftirspurnina. Já, eða að vertinn syngi nokkra sjóaraslagara í búðinni.“ jakob@frettabladid.is RAGGI SÓT GUNNARSSON: MJÚKUR ER ÉG LANGBESTUR Poppstjarna opnar fiskbúð „Þú getur spurt hvaða Pólverja sem er um Robert, það þekkja hann allir,“ segir Michal Gier- watowski, vararæðismaður Pól- lands, um pólska sjónvarpskokk- inn Robert Maklowicz. Hann er nú staddur hér á landi í tengslum við pólska daga og hefur hannað pólsk- an matseðil fyrir Brasserie Grand auk þess sem hann tekur upp þrjá þætti fyrir sjónvarpsseríu sína. „Í þáttum sínum ferðast Robert til hinna ýmsu landa, kynnir mat- armenningu hvers lands og eldar á framandi stöðum. Þættirnir hans eru sýndir á stöð 2 í Póllandi tvisvar í viku og eru mjög vinsæl- ir. Hann ætlar að taka upp einn þátt í Reykjavík, einn við Bláa lónið og einn við Gullfoss og Geysi, auk þess sem hann ætlar að heim- sækja Íslendinga og Pólverja hér á landi til að sjá hvað er líkt og ólíkt í matarmenningu þeirra,“ útskýr- ir Michal. Gert er ráð fyrir að þættirnir verði sýndir í Pól- landi í ágúst. Annað kvöld verður stærsti viðburður pólskra daga og þá verður gala-kvöldverður á Grand hóteli með klass- ískum tónleikum, en 3. maí er þjóð- hátíðardagur Pólverja. Stef- án Þór Arnar- son, veitinga- stjóri Brasserie Grand, segir Róbert vera búinn að setja þjóðlega pólska rétti í nýstárlegan búning, en á matseðlinum er meðal annars rauðróf- usúpa, nautakjöt, bleikja, og fjórir mismunandi eftirréttir. „Allir þekkja franska og ítalska matarmenningu, en þarna teygjum við okkur til Austur- Evrópu sem er ekki síður spennandi. Róbert er snilling- ur í sínu fagi og hérna langar hann náttúrulega að vinna úr hráefninu okkar eins og lambakjötinu, fiskinum og svo langar hann að elda hvalkjöt,“ segir Stefán. - ag Pólskur sjónvarpskokkur tekur upp efni á Íslandi FERÐAST UM ALLAN HEIM Sjónvarpskokkur- inn Robert Maklowicz er nú staddur hér á landi í tengslum við pólska daga og tekur upp þrjá sjónvarpsþætti. „Við erum byrjuð að skrifa saman, ég og Björgvin. Hann verður áfram umsjónarmaður þáttar- ins og ég verð svona aukakarakt- er. Svo bregð ég mér í ýmis hlut- verk,“ segir leikkonan Anna Svava Knútsdóttir, sem ráðin hefur verið annar umsjónarmanna Stundar- innar okkar næsta vetur. Anna Svava útskrifaðist úr leik- listardeild Listaháskólans fyrir tveimur árum og hefur síðan tekið að sér hin og þessi hlutverk. Í vetur hefur hún verið hjá Leik- félagi Akureyrar þar sem hún lék meðal annars í Músagildrunni og Földu fylgi. Hún er ánægð með þetta nýja hlutverk sitt. „Auð- vitað er ég kát. Ég horfði alltaf á Stundina okkar þegar ég var barn og fannst Bryndís Schram ógeðs- lega skemmtileg. Þegar ég horfi á þá þætti í dag veit ég hins vegar ekki alveg hvað það var sem mér fannst skemmtilegt,“ segir Anna Svava og hlær. Hún telur ástæðu þessa vera þá að lítið framboð hafi verið á barnaefni þegar hún var krakki. Það sé allt breytt. „Nú skipta krakkarnir bara um rás ef þeim finnst efnið ekki skemmti- legt. Þetta verður því að vera gott.“ Anna Svava er ekki feimin við að viðurkenna að það sé nokk- ur pressa á henni vegna þessa. „Það er allt öðruvísi að fram- leiða efni fyrir börn en fullorðna. Við munum gera fjóra þætti til að byrja með og spyrja krakkana hvað þeim finnst. Þá getur vel verið að þau fíli mig ekki neitt og þá þurf- um við að gera eitthvað allt annað. Þau segja nefnilega það sem þeim finnst, annað en fullorðna fólkið.“ - hdm Nýtt andlit í Stundinni okkar Frábærri sýningu blaðaljósmyndara í Gerðarsafni lýkur nú um helgina og ætti enginn að láta hana fram hjá sér fara. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaút- gefenda, gaf út bók sem byggir á myndum á sýningunni. Kristján var nýverið á bókasýningu í London og kynnti bókina fyrir nokkrum útgefendum í Evrópu. Í kjölfarið er verið að undirbúa sérstaka kreppumyndabók, enda eru þegar bækur um íslensku kreppuna í undirbúningi erlendis, til að mynda í Þýskalandi, svo búast má við að næsta árið muni koma út bækur jafnt á Íslandi sem annars staðar um hrunið. Ljóst er að myndir af brennandi fánum, óeirðum, brennum og skyrslettum muni greipast í huga heimsbyggð- arinnar sem mynd af Íslandi, hvort sem Íslendingum líkar það betur eða verr. Eurovision-hópurinn með Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur í broddi fylkingar leggur upp í ferð sína til Moskvu á morgun. Að ýmsu þarf að huga fyrir svo langa og stranga för en það sem Jóhanna hugsar eflaust mest um er hvernig kjóllinn sem hún klæðist á sviðinu muni að endingu líta út. Kjóllinn er hannaður af Anderson & Lauth og er blár að lit. Hönnuðirnir hafa lagt nótt við nýtan dag og eru enn að gera breytingar á hönnun hans. Sú vinna á þó að klárast í dag en ef allt fer á versta veg verður búninga- hönnuðrinn Margrét Einars í fylgdarliði Jóhönnu. - jbg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI RAGGI SÓT FER ÚR POPPINU Í SLORIÐ Opnar á mánudag stórglæsilega fiskbúð og veitingastað uppi á Höfða og fullyrðir vitaskuld að staðurinn sá verði sá flottasti á höfuðborgarsvæðinu og þótt víðar væri leitað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KREFJANDI VERKEFNI Anna Svava Knútsdóttir telur að hlutverk sitt í Stundinni okkar verði erfitt, enda séu börn óhrædd við að gagnrýna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI skipta um dekk Umfelgun og ný dekk á góðu verði Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu stálfelgum 6.458 kr. Kauptu sumardekkin hjá Max1 á góðu verði. Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig. Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Skoðaðu www.max1.is Sparaðu, láttu Ný sumardekk Dekkjaskipti hjá Max1 Opið í dag frá 9 til 13 á öllum Max 1 stöðvum Lokað í Knar rarvogi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.