Skinfaxi - 01.10.1927, Page 8
104
SKINFAXI
lagalög og skipulagsskrár. Annað vegur miklu meira,
og fjöldi, ef til vill mestur hluti ungmennanna, sem
hæst bera merki hreyfingarinnar, eru í engu skipulags-
bundnu félagi. J?eir starfa saman i flokkum; fclagslög
tengja þá ekki saman heldur sameiginlegar hugsjón-
ir og andi. J?eir eru úr öllum stéttum þjóðfélagsins.
Hið ytra er hagur þeirra oft býsna ólíkur. En það gerir
ekkert til. Að eins ef þcir vilja lifa og starfa í anda
æskunnar og leita með henni, berjast með henni og
líða með henni — þá fær ekkert aðskilið þá.
þ’annig eru þessir ungu menn og konur!
J?eir eru misskildir af mörgum og enn fleiri Iiæðast
að þeim eða reyna að þegja þá í hel.
En þetta cru mennirnir, sem eru að reyna að bjarga
þjóð sinni og vilja gefa henni nýtt líf, dýrara og auð-
ugra líf.
petta eru mennirnir, sem vilja skapa Norðurálfunni
nýja, sannari menningu en þá, sem hún átti og nú er
að hrynja í riistir.
Skásheim.
Skásheim, ungmennafélaginn norski, sá er flutti fyr-
irlestur í vor á sambandsþingi U. M. F. I. hefir ritað
um ferð sina hingað í norsk lilöð, bæði „Gula tidende“
og „Bergens tidende“. Greinum þessum fylgja fjórar
myndir. par er mynd af móti ungmennafélaga i Al-
mannagjá. Mót þelta var baldið í vor og var Skáshcim
þar staddur. Önnur mynd er af íslenskri konu í skaut-
húningi. priðja mynd er af glímuflokki i glímubúningi
og fjórða myndin er al' Helga Vallýssyni.
A. Skásheim lýsir sambandsþingi U. M. F. í. og starf-
semi ungmennafélaga liér allnákvæmlega og virðist