Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1927, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.10.1927, Blaðsíða 9
SKINFAXI 105 vera mjög ánægður með kynning sina af þeim. Honum þykir starfsemi þeirra og áhugi fyrir þvi að þúsund ára þjóðhátíðin takist sómasamlega, vera næsta mikilsverð, og þýðingarmest telur hann þjóðdansastarfsemi ung- mennafélaga. Skásheim getur þess að ungmennafélagar buðu hon- um austur í prastaskóg og líka til pingvalla. Hefir hann á ferðum þessum verið mjög hrifinn af islenskri nátt- úrufegurð, einkum á pingvöllum. Telur hann æskilegt að Norðmenn reisi þar minnisvarða Islendingum til heiðurs, mun liann þá einkum hafa í hug hina fornis- lensku menning, sem orðið liefir Norðmönnum ómet- anlega mikils virði. Skásheim sá hér nokkra menn í litklæðum, sem gerð voru eftir fyrirsögn Tryggva Magnússonar listamanns. pykir honum búningurinn fagur og' sóma okkur vel, og um íslenska kvenbúninginn farast honum þannig orð, að vel megi telja hann fegux-sta þjóðbúning í viðri veröld og þykir sem íslenskum konum muni það metn- aður að bera liann við hátíðleg tækifæri. Skásheim ber íslenskri menning ág'æta sögu — ef til vill betur en hún á skilið. ■— Hann getur þess að flestir útlendingar, sem heimsækja okkui*, muni gera það fyrst og freinst vegna fornislenskrar menningar, en honum þykir sem fáir niuni liafa verið hér lengi, áður en nútíðin — þjóðlífið eins og það er — liefir jafn- vel meiri áhrif á þá en fornar minningar. Honum þykir sem íslenska þjóðin muni vera gáfuð, hugmynda- í'ík, og unna landi sinu mjög. Fyrir þvi muni það lík- legt að framtíðarsaga íslendinga vei-ði enn frægari en fornsagan hefir orðið. Svo mikla trú hefir liann á is- lenskri menning, að Iiann getur þess til, að frá rótum liennar muni renna afburðamenn svo miklir, að þeir verði færir um að skapa veruleg framtíðarspor á menn- ingarbraut alheimsins. G. B.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.