Skinfaxi - 01.10.1927, Blaðsíða 16
112
SIÍINFAXI
ur garðurinn „Skrúður", með leiðsögn prestshjónanna
— Hjaltlínu og sr. Sigtryggs — er bæði leggja hina
allra mestu ástundun í sífeldar umbætur og gæslu
garðsins. Flestir munu og „Skrúð“ skoða með ánægju
og aðdáun.
Kappreiðar voru um kveldið, en fóru fremur út um
Jnifur. Skiftir það og litlu, því að kappreiðar finnast
mér minst viðeigandi á okkar samkomum.
Við aðkomumenn hcldum heimleiðis, er kvölda tók,
með góðri ánægju og þakklátum huga.
Guðm. Jónsson frá Mosdal.
Líkamsment.
Öld af öld hefir liugsunarháttur amlóðans alið þá
trú hjá fjölmörgum, að við Islendingar séum svo „fáir
fátækir og smáir“ að okkur þýði ekkert að hugsa til
þess að halda í nokkru til jafns.við stærri og voldugri
þjóðir. Enginn veit livað amlóðahugsun þessi liefir átt
mikinn þátt í því að draga úr framförum, frægð og
þreki íslendinga á liðnum öldum. Hitt er vist, að lieig-
ulshugsun þessi hefir víða við komið og haft lamandi
áhrif, ef til vill liefir hún hvergi látið meira til sin taka
en gagnvart nýungum og framfaraviðleitni ungra
manna. pví iiefir t. d. löngum verið haldið fram að
ekki þýddi neitl fyrir iþrótta- og fimleikamenn okkar
að keppa á alheims-íþróttamótum, eða þar sem margar
og frægar þjóðir sýndu listir sínar í þeirri grein, enda
hefir likamsmentun ekki notið mikilla hlunninda hjá
okkur frá hinum svonefndu hærri stöðum. ]?að sem
gert hefir verið fyrir hana, hafa að mestu verið illa
Iaunuð einstaklingsverk, unnin í tómstundum.
Raunar skortir sjaldan áliorfendur þegar haldin eru