Skinfaxi - 01.11.1958, Qupperneq 9
SKINFAXI
105
°9-____________
TÓMSTIJIVDIRNAB
Viðtal við séra Braga Friðriksson, fram-
kvæmdastjóra Æskulýðsráðs, og Jón Pálsson,
kennara og starfsmann við tómstundaheimilið
í Reykfavík.
1 nokkur ár hefur nú starfað í Reykja-
vík æskulýðsráð, sem stofnað var til haust-
ið 1955 með því að borgarstjórinn í
Reykjavík skipaði sjö manna nefnd „til
þess að beita sér fyrir umbótum i félags-
og skemmtanalífi æskufólks í hænum, m.
a. með því að stofna til hollra og rnennt-
andi skemmtana og athuga leiðir til þess
að koma á tómstundaiðju.“
Ráðið réð sér á árinu 1956 framkvæmda-
stjóra. Yarð fyrir valinu séra Rragi Frið-
riksson. Þá var og ráðinu leigð skrifstofa,
og er hún nú á Lindargötu 50. Þar hef-
ur og verið komið upp tómstundaheimili.
Ráðið og framkvæmdastjóri þess hafa
komið á samvinnu við fjölmarga aðila
í hænum, sem að einhverju leyti fjalla
um æskulýðsmál, og hefur starfsemi á
vegum þess, heint og óbeint, farið hrað-
vaxandi.
Ritstjóri Skinfaxa hitti að máli séra
Braga Friðriksson og spurði liann um
starfsemina, minntist meðal annars á lií-
býla- og tómstundasýninguna, sem stofn-
að var til nýlega í Listamannaskálanum
og vakti geipimikla atþygli bæjarhúa.
Séra Bragi kvað hana liafa tekizt mjög
vel. Hún hefði gert hvort tveggja, að auka
skilning unga fólksins á því, hve margt
mætti gera af litlum efnum og með litl-
um tækjum til þess að prýða umhverfi
sitt og vistarverur og skýra fyrir öllum
þorra manna, að tómstundastarf þyrfti
ekki að vera lítilsvert dútl.
Séra Bragi var frekar fáorður, en hann
afhenti ritstjóra Skinfaxa fjölritaða
skýrslu um starf æskulýðsráðs, og sýnir
sú skýrsla, að liann og ráðið hafa liaft
samstarf við skóla, þjóðkirkjuna, æsku-
l>rðs- og íþróttafélög og raunar mörg fleiri
samtök, svo sem Félag áhugaljósmynd-
ara og Taflfélag Reykjavíkur.
„Allir, sem til hefur verið leitað, liafa
viljað veita aðstoð sína,“ mælti séra Bragi,
„en þó að talsvert hafi unnizt, er þetta
samt enn á hyrjunarstigi og í mótun og
því ekki rétt að hafa um það stór orð.“
„En unga fólkið, — finnst þér það ekki
fúst til að ldíta leiðsögn og fræðslu.“
„Jú, við liöfum þegar haft beinlínis á
okkar vegum að meira eða minna leyti
til náms eða einhvers konar leiðsagnar,
tvö þúsund börn og unglinga, og áhugi
þeirra hefur verið ánægjulegur. En eins
og ég er búinn að segja, er þetta allt til-
tölulega lítið mótað, enn sem komið er,
og nær til miklu færri en æslcilegt væri.“
Það er auðsætt á séra Braga, að þetta