Skinfaxi - 01.11.1958, Blaðsíða 12
108
SKINFAXI
SIGURÐUR EINARSSDN:
JC
om mnar
/ • /
neim!
Kom innar og heim!
mælir ásýnd hvers fjalls.
Kom innar og heim!
syngur blærinn í viðum.
Það kveður í ómi
hvers fossafalls
og við flúðir og tanga
í hafrótsins iðum.
Svo mæla við sál vora eilífð og öld,
hinn árfagri morgunn, hið friðsæla kvöld.
Sjálft himinsins mál
yfir háfjallariðum
hvíslar um víðan geim:
Kom innar og heim!
Kom innar og heim!
— I áranna þys
ber oss ólgandi röst
af hjartans vegi.
Þau slokkna í höndum •’;•'
vor heilögu blys, ý:
vort hásumar verður ý;
skuggi af degi. iý
Á vorgróður hugans leggst hversdagsins fönn :’:
í heillandi glaumi, í lamandi önn. v
En innst í hjarta •';:
býr einmana tregi,
sem ómar klökkum hreim: •:•
— Kom innar og heim! X
SIGURÐUR EINARSSUN,
sextugur
Séra Sigurður Einarsson i Holti
undir Eyjafjöllum varð sextugur
29. f. m.
Hann er Rangæingur, fæddist
að Arngeirsstöðum i Fljótshlíð.
Ungur fluttist hann á Suðurnes,
og strax og hann varð fær um
það sakir aldurs og vaxtar tók
hann að stunda sjó, enda sýna
sum af kvæðunum i fyrstu ljóða-
bók hans, að þau hefur ort mað-
Kom innar og heim!
— þín eilífa sál,
fyrr en allt er um seinan
vill ná af þér tali.
Hún er einfari á jörð,
hún á ekkert mál
fyrir iðandi torg
eða glymjandi sali.
í ys þinna daga er hún ein og hljóð,
ber útlagans kross á framandi slóð.
En þín er hún eigin
og þig vill hún fegin
á þegnréttinn minna, í veröldum tveim:
— Kom innar og heim!