Skinfaxi - 01.11.1958, Side 22
Í18
SKlNFAXl
ritari og Jón Árnason gjaldkeri. Með-
stjórnendur: Stefán Árnason og Baldur
Kristinsson.
Tryggvi Sigmundsson.
Merkisafmæli Ungmennafélags
Stokkseyrar.
Ungmennafélag Stokkseyrar hélt nýlega
myndarlega samkomu í tilefni af fimm-
tugsafmæli sinu, en félagið var stofnað
15. marz árið 1908.
Samkoman var f jölmenn, og sóttu hana
bæði eldri og yngri félagar. Margar ræð-
ur voru fluttar, og framkvæmdastjóri
U.M.F.I., Skúli Þorsteinsson, sem var
boðsgestur á samkomunni, flutti ávarp
frá sambandinu og aflienti að gjöf frá
því borðfánastöng. Blandaður kór söng
á samkomunni, og þar var sýnt leikrit.
Stjórn félagsins skipa nú: Formaður:
Baldur Teitsson; ritari: Frímann Sigurðs-
son; gjaldkeri: Hjörtur Sæmundsson, og
meðstjórnendur: Eyjólfur Eyjólfsson og
Kristín Jónsdóttir.
Félagið hefur gefið út myndarlegt af-
mælisrit, sem flytur margar greinar um
stofnun og starfsemi félagsins. Formála
skrifar núverandi formaður, Baldur Teits-
son. Hann segir svo að lokum:
„Það er trú okkar og von, að félag
okkar megi bér eftir sem liingað til stuðla
að liollu starfi ungs fólks á Stokkseyri
og finna verkefnin, sem alltaf bíða. Ábyrg,
starfsglöð æska, sem þekkir skyldur sínar
við land sitt, tungu og sögu, eru þeir horn-
steinar, sem sjálfstæði og framtíð íslenzku
þjóðarinnar byggist á. Heill fylgi starfi
félagsins um ókomin ár.“
Meðal þess efnis, sem ritið flytur, er
afmæliskvæði eftir Einar M. Jónsson, sem
er Stokkseyringur og gamall ungmenna-
félagi. Skinfaxi birtir nú þetta kvæði.
Frá skrifstofu U.IU.F.Í.
U.M.F. Fjöllunga.
1 2. hefti Skinfaxa var þess getið, að Ung-
mennafélag Hrunamanna væri til fyrirmyndar
og eftirbreytni um söfnun kaupenda Skinfaxa,
og er þar ekkert ofmælt. En vert er að geta
annars ungmennafélags, sem einnig er til
sannrar fyrirmyndar i þessu efni. Það er Ung-
mennafélag Fjöllunga á Hólsfjöllum, en þar
eru keypt fleiri eintök en sem svarar fjölda
bæjanna í sveitinni, og skil á andvirði blaðs-
ins eru sérlega góð.
----------------♦
Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi
hefur lofað að rifja upp fyrir lesendum Skin-
faxa helztu afrek á vettvangi íþróttanna á
vegum ungmennafélaga og héraðssambanda á
árinu 1958. En hann hafði ekki fengið yfirlit
yfir allar helztu keppnir, þegar þetta hefti fór
í prentun.
Ungmennafélagar
hafa ýmsir látið í ljós við ritstjóra Skin-
faxa, að þá skorti tíma og æfingu til að skrifa
skýrslur um merka atburði í félagslífinu eða
greinar um hugðarefni sín. Ritstjórinn tekur
öllu, sem honum er sent og rétt er hermt og
hugsað, með mestu þökkum, og lætur sig ekki
muna um að víkja til orði, ef þess gerist þörf.