Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1958, Síða 28

Skinfaxi - 01.11.1958, Síða 28
124 SKINFAX.I augum til stúlkunnar. „Maður verður svo anzi þyrstur í svona langferðalögum.“ Bóndinn kinkar kolli, og konan réttir flöskuna að þeirri fagureygu og fjörlegu, og hún svalar þorsta sínum. tsinn er brotinn, og nú liefst fjörugt samtal. Lestin skröltir inn á stöðina í Lindarslakka, sem er þorp í útjaðri hinnar brúnsviðnu og auðnarlegu Líkasléttu. Nýr farþegi kemur inn i klefann, liðsforingi i setuliði þeirrar stórþjóðar, sem stýrir böndum stjórnarinnar í þessu landi. Það slær þögn á þremenningana í klef- anum. Bóndinn þrífur flöskuna, sem eklci er nú lengur nema hálf, og stingur henni í vasa sinn; kerlingarlirófið þrýstir þeirri hvítu upp að brjóstinu á sér, og sú svart- eyga lítur undan. „0-gogg,“ segir liænan, og ekki er vandséð, að yfir hana hefur færzt vanliðan. Liðsforinginn sezt, og lestin fer af stað með mási og hvási. Og ferðin heldur á- fram, en nú er dauðaþögn i klefanum. Það er ekki svo, að eitt einasta ogg eða gogg heyrist frá liænu-tötrinu. Liðsforing- inn svipast um í klefanum, lítur á hænuna, tvo lauka í þeim stórköflótta, sem liggur á bekknum — og síðan á granna leggi og þrýstna kálfa hinnar þriflegu stúlku. Gamla konan starir fram undan sér stjörf- um augum. Bóndinn hefur náð flís úr bekkröndinni og sýnist önnum kafinn við að hreinsa á sér neglurnar. Stúlkan dökk- eyga þykist ekki geta slitið augum frá öld- óltu landinu, sem virðist þjóta fram hjá, drifið dökkuxn reykhnyklum úr másandi eimreiðinni. Sú hvíta fær sér sannkallað- an hænublund. Lestin nálgast bæinn Hæðarenda, og allt i einu fer bún inn i jarðgöng. Það verður niðdimmt í klefanum. Svo hevrist þá skyndilega ofurlítill smellur — eins og af kossi, og þvi næst annar ærið liressilegur, ekki um að villast, að einhverjum lief- ur verið gefið rækilega utan undir. Þegar lestin kemur út í dagsbirtuixa, lieldur liðsforinginn um vinstri vangann. Þar getur að líta rauðan blett eftir velúti- látinn kinnhest. Enginn mælir orð af vörum, en þau, sem í klefanum sitja, gei-a sér livert sínar hug- myndir um það, sem gei'zt liefur. Gamla konan með hvítu hænuna í kjöltunni liugs- ar með sér: „Sannai'lega fékk dóninn það, sem liann átti skilið. Hann kyssti stúlkuna, og liún varði sakleysi sitt eins og við átti.“ Og görnlu konunni hitnaði um hjartarætur. Þetta átti við hana. Stúlkan — með augun svörtu og fjör- legu — liugsaði steinhissa: „Þetta er makalaust! Hann kyssir þá gömlu, en lætur mig í friði!“ Liðsfoi'inginn hugsar ai'gur: „Bóndakurfurinn er lieldur betur slung- inn. Hann stelur kossi frá stúlkunni, og svo gefur hún mér utan undir!“ Bóndinn í kuflinum slitna hugsar á- nægður: „Jæja, sjáum til! Það lánaðist þá, bar ekki á öðru. Ég kyssti á handarbakið á mér, gaf liðsforingjaskepnunni duglega á hann og lendi ekki í neinni skömm!“ (Jngmennafélagar! Aukið kaupendatöluna og borgið blaðið.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.