Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.07.1968, Side 5

Skinfaxi - 01.07.1968, Side 5
Lúðrasveit Neskaupstaðar vakti hrifningu mótsgesta, stjórnandi er Haraldur Guðmundsson skilning á þeim erfiðleikum, sem voru vegna ýmisst keppniaðstæðna. Frjáls- íþróttavöllurinn var t.d. nokkuð óslétt- ur og því erfiður fyrir hlaup og stökk, og má því segja að afrek hafi verið ó- trúlega góð þrátt fyrir þessar erfiðu að- stæður. Stór og vandaÖUiT sýningarpallur hafði verið reistur úti í tjörn á móts- svæðinu, og þar fóru ýmsar sýningar og dagskráratriði fram og einnig var dansað þar. Þá var og annar minni danspallur, sem byggður var fyrir mót- ið. — aðalstöðvar mótsstjórnar voru í barnaskólanum, og þar fór einnig fram keppni í starfsíþróttum kvenna. Þar var mötuneyti fyrir starfsfólk o. fl. I Alþýðuskólanum var veitingasala, og þar fór einnig fram hin skriflegi þáttur starfsíþróttakeppninnar, svo og sveita- keppni í skák. Á Eiðabúinu var keppt í búfjárdómum, en aðrar greinar starfs- íþrótta fóru frá á íþróttasvæðunum við barnaskólann, t. d. var keppni í drátt- arvélaakstri háð á handknattleiksvell- inum, sem var við hliðina á frjáls- íþróttavellinum. Á sunnudaginn 14. júlí var veður einnig bjart, en nokkuð svalt, einkum þegar líða tók á daginn. Á stórri úti- hátíð sem þessari, þar sem íþróttir skipa öndvegi, skiptir það höfuðmáli að fá gott veður. Og í þetta sinn gerði veðurheppnin mikinn gæfumun, vegna ástandsins í gróðurfarinu, sem áður er lýst. Um langan veg Ekki höfum við fengið nákvæmar töl- ur um það, hversu margir gestir sóttu Eiðamótið, en láta mun næri að þar hafi verið um 10 þúsund manns á sunnudeginum, og má telja það mjög góða aðsókn á þessum stað, sem er svo fjarri helztu þéttbýlissvæðum landsins. Margir keppendur og mótsgestir voru komnir um langan veg, eins og geta má nærri. Allmargir komu með flugvélum til Egilsstaða, en Flugfélag Islands fjölgaði til muna ferðum sín- SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.