Skinfaxi - 01.07.1968, Blaðsíða 32
Félagar úr HSÞ að hefja starfið.
dreifðu 10 lestum af áburði og 400
lestum af grasfræi á Auðkúluheiði,
skammt norður af Helgufelli. Um
þessa ferð ritaði Bjöm Bergmann á
Blönduósi grein í Morgunblaðið
þann 25. júlí, og fylgdu henni marg-
ar ágætar myndir.
8. Þann 28. júlí var komið að Þingey-
ingum. Þann dag fóru 39 Norður-
Þingeyingar í landgræðsluferð. —
Þetta var stærsti landgræðsluhóp-
urinn í sumar, og voru þetta allt
ungmennafélagar úr Kelduhverfi. —
Þórarinn Haraldsson í Laufási var
frumkvöðull fararinnar þar í hér-
aðinu. Landgræðslustaðurinn var
við Vesturdal skammt frá Hljóða-
klettum. Þarna var sáð 600 kg. af
grasfræi og 8 lestum af áburði í um
20 hektara lands. Þess ber að gæta,
að í þessari ferð var ekki meðferðis
traktor með áburðardreifara.
9. Héraðssamband Suður-Þingeyinga
fór svo í síðustu landgræðsluferðina
á þessu sumri hinn 29. júlí á Hóla-
sand, sem er sunnan við Þeysta-
reykjasvæðið. I ferðinni voru 23 fé-
lagar, og forgöngumenn voru þeir
Indriði Ketilsson á Fjalli og Ketill
Þórisson í Baldursheimi, sem er for-
maður landgræðslunefndar HSÞ,
Suður-Þingeyingar sáðu 10 lestum
af áburði og 800 kg. af grasfræi í
um 25 hektara lands.
Af framangreindu yfirliti má sjá, að
ungmennafélagar hafa ekki látið sitja
við orðin tóm. Samtals hafa á þriðja
hundrað manns tekið þátt í þessum
ferðum. Dreift var samtals 67 lestum af
áburði og 5 lestum af grasfræi í um 170
hektara lands. Allir vona að þetta starf
beri góðan ávöxt, en þess ber að gæta,
að ennþá er þessi starfsemi á tilrauna-
stigi, og að hún á eftir að aukazt og
batna, þegar haldið verður áfram og
byggt á þeirri reynzlu, sem fengizt hef-
ur í skipulagningu og starfsaðferðum.
Sú upplýsingastarfsemi, sem Ingvi
Þorsteinsson og samstarfsmenn hans
hafa rekið á undanförnum árum, og sú
athafnasemi, sem þeir hafa sýnt, hafa
leitt til vakningar um allt land. í öllum
héruðum er skorin upp herör á margs-
konar vettvangi, og félög og einstak-
lingar bjóða fram krafta sína til þess
að hefta uppblásturinn og klæða land-
ið gróðri.
Ungmennafélagarnir frá Egilsstöðum flytja
áburð yfir vatnsfall.
32
SKINFAXI