Skinfaxi - 01.04.1970, Side 3
SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXI árgangur — 2. hefti — 1970 — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju, hvert 32 síður.
Skemmtilegra félagslíf
Eins og margir ungmennafélagar muna var
hér fyrr á árum til nokkurt safn leikrita og
skemmtiþátta hjá UMFÍ til útlána og sölu.
þessi starfsemi hefur nú legið niðri um skeið,
en nú hefur stjórnin ákveðið að kanna málið
að nýju og athuga, hvort ekki sé grundvöllur
fyrir verulegri aukningu á þessum nauðsynlega
Þætti í starfsemi okkar.
Stjórn UMFÍ vill koma á fót þjónustu af
Þessu tagi, sem nái til sem flestra, er sinna
félags- og upeldismálum. Þess vegna óskar
UMFi sérstaklega eftir samstarfi við alla skóla
'andsins um þetta mál og telur, að með því
móti verði skólunum auðveldað að þjálfa börn
' Þessari mjög svo nauðsynlegu „námsgrein"
°9 Þá um leið undir þátttöku í félagsstarfi að
lokinni skólagöngu.
Allir þeir, sem eitthvað hafa starfað að fé-
lagsmálum, hvort heldur í félagi eða skóla,
Þekkja erfiðleikana á að útvega skemmtiefni.
Hér er um að ræða stutta þætti af ýmsu tagi,
sem notaðir væru sem dagskráratriði á kvöld-
vökum og fundum eða í samþandi við ferða-
og heimsóknir til skemmtunar og sjálf-
sögðu til æfingar í framkomu og framsögn.
Við þessar athuganir vaknar spurningin um
Það, hvar við eigum að fá slíkt efni. Skemmti-
efni er afar víða til en e.t.v. ekki mikið á
hverjum stað. Það er hugmynd stjórnarinnar,
aÞ ungmennafélagar, skólastjórar, kennarar
°9 forráðamenn í ýmsum félagasamtökum
gerist samstarfsmenn okkar um að safna og
benda á margskonar efni af þessu tagi og
senda UMFÍ. Hér skulu tilgreindir nokkrir efn-
isþættir: 1. Gamanþættir af ýmsum stærðum,
2. Sígildar gamanvísur, 3. Skrautsýningar, 4.
Ýmsir leikir, er hæfa á kvöldvökum, 5. Ábend-
ingar um gerð spurningaþátta.
UMFÍ sér um að vinna úr því efni, sem
berst, og að flokka það. Síðan verður gerð
skrá yfir þættina og send þeim, er þess óska.
Þættirnir verða síðan fjölritaðir og seldir á
kostnaðarverði þeim, er um þá biðja.
Það er von UMFÍ að þetta megi vel tak-
ast, og þar með verður hægt að gera félags-
lífið fjölbreyttara og skemmtilegra.
Sig. R. Guðmundsson.
skinfaxi
3