Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1970, Síða 12

Skinfaxi - 01.04.1970, Síða 12
Samtíð og framtíð Nýjar íþróttagreinar Skilningur fólks á gildi heilsuræktar með íþróttaiðkunum fer stöðugt vaxandi. Miklu máli skiptir, að sem flestir finni íþróttir við sitt hæfi, og það ættu allir að geta, því að miklu er úr að moða. íþróttagreinar á al- þjóðamælikvarða eru orðnar geysimargar, t.d. ef miðað er við þær íþróttir, sem eru á dagskrá olympíuleika eða heimsmeistara- móta. Mikið vantar á að þær hafi allar numið land hér hjá okkur. Nýjar íþrótta- greinar eiga oft erfitt uppdráttar hér á landi, og veldur fámennið mestu um, þ.e. ekki tekst að fá nægilega fjölmennan hóp til að iðka íþróttina og kosta rekstur henn- ar. Það var ekki vonum fyrr að haldið var íslandsmót í blaki nú í vetur. Þessi íþrótt hefur fyrst og fremst verið iðkuð í skólum, enda voru það skólalið, sem settu mestan svip á þessa fyrstu keppni. Blak hefur marga kosti, sem ættu að tryggja íþróttinni út- breiðslu og vinsældir. Blak má iðka bæði úti og inni. Útbúnaður er ekki svo viða- mikill, að iðkun blaks þurfi að vera kostn- aðarsöm. Þessi íþrótt er jafnt fyrir karla og konur og nýtur mikilla vinsælda víða um lönd. Judo hefur ekki verið iðkað hér á landi nema i rúm 10 ár, og virkir iðkendur munu vera innan við þrjú hundruð. Það sem há- ir útbreiðslu judoíþróttarinnar hér á landi er skortur á þjálfurum, því útilokað er að æfa judo nema undir leiðsögn manna með verulega kunnáttu og reynslu í iðkun iþrótt- arinnar. Judo er mjög „teknisk" íþrótt og krefst mikillar ástundunar og þolinmæði, en þeir, sem leggja erfiðið á sig, fá ríku- lega uppskeru erfiðis síns. Judo er íþrótt fyrir menn á öllum aldri, þótt aðeins þeir yngri æfi með keppni fyrir augum. Judo mun nú aðeins vera iðkað í Reykjavík og í Vestmannaeyjum, en í sumar mun ÍSÍ gang- ast fyrir stofnun sérsambands í judo, og má þá vænta aukinnar sóknar þessarar íþrótta- greinar. Þess skal getið, að í hópi íslenzkra judomanna eru ágætir afreksmenn, en þeir hafa alltof fá tækifæri til keppni. Fyrsta íslandsmeistaramót í judo verður í júlí- mánuði n.k. 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.