Skinfaxi - 01.10.1970, Blaðsíða 6
innar, sem fundarmenn fengu í hendur
fjölritaða. Af skýrslunni má glöggt sjá,
að stjórnin hefur tekið mjög röggsamlega
á málefnum hreyfingarinnar á liðnu ári
pg hrint mörgum málum í framkvæmd,
m. a. málum, sem áður höfðu verið lengi
á döfinni. Má þar nefna endurskipulagn-
ingu skrifstofu samtakanna og ráðningu
fasts framkvæmdastjóra, stofnun félags-
málaskóla, íþróttamannvirkjagerð í
Þrastaskógi, samninga um aðild UMFI
að íþróttagetraunum, stóraukinn erind-
rekstur og þjónustu við sambandsaðila,
byrjun á endurskipulagningu erlendra
samskipta UMFÍ o. m. fl.
Viðfangsefni fundarins
Framsögur um hin ýmsu mál, sem lögð
voru fyrir fundinn, voru sem hér segir:
1. 14. landsmót UMFÍ. Framsögumaður:
Guðjón Ingimundarson.
2. Reglugerð landsmótsins. Framsögu-
maður: Pálmi Gíslason.
3. Skinfaxi, málgagn UMFÍ. Framsögu-
maður: Eysteinn Þorvaldsson.
4. Erlend samskipti UMFÍ. Framsögu-
maður: Sigurður Geirdal.
5. Félagsmálaskóli UMFÍ. Framsögu-
maður: Hafsteinn Þorvaldsson.
6. Tekjumöguleikar ungmennafélaganna.
Framsögumaður: Gunnar Sveinsson.
Þessum málum var siðan vísað til um-
ræðuhópanna og var öllum framsögu-
ræðum dreift fjölrituðum til fulltrúanna,
og varð það mjög til að efla málefnalegar
umræður. í lok framsöguræðna var dreift
bréfi til fundarmanna um leikritasafn
UMFI, sem fulltrúar héraðssambandanna
áttu að dreifa til félaganna á sambands-
svæðum sínum. Hafði Sigurður Guð-
mundsson, ritari UMFÍ, stutta framsögu
um það mál.
I
Þessi mynd af stjórn
UMFÍ og f ramkvæmda-
stjóra var tekin í Iok
sambandsráðsfundar-
ins. Frá vinstri: Guð'-
jón Ingimundarson,
Gunnar Sveinsson,
Hafsteinn Þorvaldsson,
Siguröur Guðmunds-
son, og Sigurður Geir-
dal. Á myndina vantar
Valdimar Óskarsson
meðstjórnanda.
6
SKINFAXI