Skinfaxi - 01.10.1970, Side 24
eldri verður að koma til, ef vel skal fara.
Þá höfum við raunalega mörg sama sjón-
armið og fréttamaðurinn, sem taldi frá-
leitt að telja það fréttnæmt þótt nokkur
hundruð unglingar á erfiðasta aldursskeiði
skildu svo við mótsstað eftir tveggja daga
dvöl, að löggæzlumenn virtu til fyrirmyndar.
Hitt er alkunna, að fréttir fljúga, hvenær
sem áfátt verður um hegðun ungmenna,
hvað oft vill við bera við þá skemmtana-
hætti sem mest tíðkast.
Sönnu mun nær að áfallalaust skemmt-
anahald hundraða ungmenna, sem hér er
um rætt, er fágætt og ágætt og það væri
eðlilegt, sanngjarnt og skynsamlegt, að slíku
væri á lofti haldið, þeim ungmennum til
sóma sem það eiga skilið. Öðrum til hvatn-
ingar og eftirbreytni. Hvorki fréttamenn
né aðrir, sem vel vilja og eiga að vita, mega
skerast úr leik, þegar um það er að tefla,
að halda höfðinu réttu á bolnum.
Það unga fólk sem við hjálpum til að
leita lífsgleði með göngu á vit íþróttaiðk-
ana mun áreiðanlega horfa hiklaust til
réttarar áttar. Hinum mun hættara að
hverfa höfði sem hallast frá íþróttalífi,
starfi og heilgrigðum leik.
Þeim sem rétt horfa getum við vissulega
fjölgað, jafnvel með því einu, að gera það
sem okkur sjálfum er líka fyrir beztu. Að
mæta sem oftast til leiks þótt við keppum
ekki. Með því hjálpum við líka mörgum
ágætum skilningsgóðum velunnurum íþrótta
og æsku, í borgar-, bæjar- og sveitarstjórn-
um.
Þeir þurfa að vita ljóslega um hug almenn-
ings til þess að veita réttilega fé til íþrótta-
iðkana og aðstöðu-
Fá eru þessi orð og fátækleg túlkun á
textanum hans Sigurðar Greipssonar. Um
sinn bíður hann þó frekari túlkunar, marg-
ræður og margvís eins og þjóðsagan og eld-
huginn í Haukadal.
------—-----------------
Ágæt afrek
Gimnars Kristinssonar
í Noregi
í afrekaskrá þessa árs i frjálsum iþrótt-
um, sem Ólafur Unnsteinsson hefur tekið
saman, rákumst við á frábær afrek hins
góðkunna Þingeyings Gunnars Kristins-
sonar í millivegalengdahlaupum. Hefur
Gunnar hlaupið 1500 m. á 3.56.0 min. og
3000 m. á 8.30.0. Árangri þessum náði
Gunnar á fjöl-
mennum mótum
í Noregi, og hef-
ur hans verið
lofsamlega getið
í norskum blöð-
um. Fyrir 3—4
árum var Gunn-
ar í fremstu
röð millivega-
lengdahlaupara
okkar, og þótti
óvenju glæsilegt
hlauparaefni, en
síðustu árin hef-
ur hann æft lítið þangað til nú i sumar.
Fyrir hálfu öðru ári fór hann til Noregs
og stundar þar nú nám í verzlunarskóla í
Drammen skammt frá Osló. Við vonum
að Gunnar komi til fósturjarðarinnar að
sumri, og trúlega mun HSÞ leggja áherzlu
á að slíkan liðsmann vanti ekki i sveit
sambandsins á landsmótinu. Skinfaxi
hefur haft fregnir af því að Gunnar æfi
vel og þarf þá ekki að efast um góðan
árangur í framtíðinni.
24
SKINFAXI