Skinfaxi - 01.12.1971, Síða 13
ÞORSTEINN EINARSSON
SEXTUGUR
Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi varð
sextugur 23. nóvember s.l. Um leið og við
sendum honum hamingjuóskir, birtum
við þetta kvæði, sem ekki hefur áður
birzt. Það er að vísu ort um hann fimm-
tugan, en á ekki síður við afmælisbamið
nú en þá.
Þorsteinn Einarsson.
ÞORSTEINN EINARSSON
íþróttafulltrúi
fimmtugur.
Fimmtugur, frækinn,
fimur, brattsækinn,
stæltur, knár, sterkur,
stórhuga, merkur.
Snjall fetar fjöllin,
fælast bergtröllin
orku, svip, anda,
afl styrkra handa.
Þrótt kveikir, kynngi
kappinn verkslyngi,
sókn vekur sanna,
sæmd hraustra manna.
Dugmikill, dáður
drengur, hollráður,
traustur, ])jóð þarfur,
þrekmenni, djarfur.
Vökull í vanda,
— vömm skal ei granda, —
heill, tiginn, tryggur,
tápmikill, dyggur.
Æska ann landi,
ax vex úr sandi.
Þjóð vex til þrifa.
Þorsteinn skal lifa.
Skúli Þorsteinsson.
SKINFAXI
13