Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1973, Qupperneq 6

Skinfaxi - 01.06.1973, Qupperneq 6
Undirbúningur 15. landsmóts UMFÍ er hafinn Hinn 22. maí í vor var haldinn fund- ur fulltrúa UMFÍ og ungmennafélag- anna í Borgarfirði og á Akranesi og full- trúa frá bæjaryfirvöldum á Akranesi. Fundurinn var haldinn í skrifstofu bæj- arstjórans á Akranesi og var rætt um undirbúning og skipulagningu næsta landsmóts UMFÍ sem haldið verður 1975. Á fundinum voru: Hafsteinn Þorvalds- son UMFÍ, Sigurður Geirdal UMFÍ, Garðar Óskarsson Umf. Skipaskaga, Ólaf- ur Þórðarson Umf. Skipaskaga, Jón Guð- björnsson UMSB, Sigurður Guðmundsson Forsetabikarinn er veglegasti verðlaunagripur landsmótanna. Á myndinni sést Jóhannes Sigmundsson form. HSK með gripinn á síða'ta land'móti. Hver hrcpnir hann næst? UMSB, Jóhannes Ingibjartsson bygging- arfulltrúi Akraness og Gylfi Isaksson bæjarstjóri. Gengið var frá samkomulagi um að ungmennafélagshreyfingin fái íþrótta- mannvirki til afnota og aðra mótsaðstöðu sem hér segir: 1) íþróttasvæði á Jaðarsbökkum með 4 hlaupabrautum, þ. e. hringbraut. Gengið verði frá kastaðstöðu og stökkaðstöðu nothæfri fyrir mótið og svæðið girt mannheldri girðingu. 2) Svæði fyrir tjaldbúðir og starfs- íþróttir. 3) Akranesbær gengur frá nauðsynleg- um bílastæðum eftir því sem þörf gerist við tjaldbúðir og íþróttavöll. 4) Samkomulag varð um að leggja til, að keppendabúðir verði í og við barnaskóla og íþróttahúsið og gert verði ráð fyrir bað- og búningsað- stöðu í íþróttahúsinu auk þess, sem samkomur verði haldnar í húsinu. 5) Mótshaldari útvegar salemis- og þvottaaðstöðu og setur hana upp auk nauðsynlegra vatnslagna, sem fengnar verða að láni hjá Vatns- veitu Akraness. 6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.