Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1973, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.06.1973, Qupperneq 8
Brjóstmynd af Sigurði Greipssyni afhjúpuð i Haukadal í tengslum við sambandsþing Ung- mennafélags Islands, sem haldið var í Haukadal um Jónsmessuhelgina dagana 23. og 24. júní s. 1. fór fram minnisverð athöfn, er afhjúpuð var brjóslmvnd af Sigurði Greipssyni, skólastjóra Iþrótta- skólans í Haukadal. Brjóstmyndina á- kváðu nemendur skólans að reisa í til- efni af 40 ára afmæli skólans og 70 ára afmæli skólastjórans sumarið 1967. Minnisvarðinn er haglega gerður af listamanninum Sigurjóni Ólafssvni, myndhöggvara. Honum var valinn stað- ur inni í Haukadal, skammt þar frá sem æskuheimili Sigurðar stóð. Afhjúpun varðans fór fram kl. 18.00 á laugardag með ávarpi form. undirbún- ingsnefndar nemen’da, Kjartans Berg- manns. Síðan var minnisvarðinn afhjúp- aður af sonar-syni Sigurðar, Sigurði Greipsyni yngra. Þá flutti form. UMFÍ Hafsíeinn Þorvaldsson nokkur ávarpsorð af þessu tilefni. Jónas Ingimundarson, skólastjóri á Sel- fossi, stjómaði almennum söng milli atr- iða. Að lokum flutti Sigurður Greipsson nokkur þakkarorð til nemenda sinna nær og fjær og allra viðstaddra og bauð til kvöldverðar. Eiginkona Sigurðar, frú Sigrún Bjama- dóttir, fjölskyldufólk, fulltrúar nemenda, vinir, og fulltrúar 28. sambandsþings UMFI voru viðstaddir þessa látlausu og virðulegu athöfn, sem fram fór á þess- um fagra stað í hinu fegursta veðri. Ungmennafélagar þakka Sigurði Greipssyni Hér fara á eftir ávarpsorð fonn. UMFI við þetta tækifæri: Sigurður Greipsson og fjölskylda, nem- endur Haukadalsskóla, ungmennafélag- ar og gestir. Ungmennafélagar fagna því framtaki nemenda Iþróttaskóla Sigurðar Greips- sonar að reisa honum hér óforgengilegan minnisvarða í túnfætinum við æsku- heimili hans og skamman veg frá skóla- setri hans á Söndunum, — hér í miðjum gróðurreit þess mikla ræktunarstarfs sem hann hefur dáð og rómað og fylgzt með af einlægum áhuga. Hinir fjölmörgu nemendur, vinir og samstarfsmenn Sigurðar sem ekki eiga þess kost að vera hér í dag, hugsa til hans með virðingu og þökk. Mörgum góðum drengjum hefur Sigurður Greips- son komið til manns með skólastarfi sínu, 8 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.