Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1973, Page 14

Skinfaxi - 01.06.1973, Page 14
Mótsgestum gafst kostur á að skemmta sér við körfuboltaiðkun á danspallinum, og reynd- ist það góð upphitun í norðangjóstinum. eru það æði mörg dagsverk á skömmum tíma. Hjálparsveit skáta vann einnig mjög mikið starf við eftirlit og slysahjálp í sam- ráði við tvo lækna sem voru á staðnum. Á staðnum var nokkurt lið lögreglumanna við eftirlitsstörf. Vissulega væri hægt að tíunda ótal atriði fleiri varðandi framgang „Vor í Dal“ en það verður ekki gert hér, þó er vert að geta um nokkur atriði í fari samkomugesta sem minnisstæð eru. Yfir- leitt var fólkið ákaflega elskulegt og á- nægt með tilveruna, brá á leik og spark- aði úr klaufunum við hentug tækifæri. Þó var nokkuð um ótuktarskap og þá sér- staklega skemmdarverk og þjófnaði. Voru meðal annars eyðilögð 4 borðtennisborð o. fl. Er næsta óskiljanleg sú ónáttúra sem í slíkum fúlmennum býr. Varðandi áfengisneyslu er það að segja að hún var hvorki meiri né minni en almennt gerist í þjóðfélaginu í dag, en gleðiefni er það að þeir virtust skemmta sér best sem létu bakkus lönd og leið. Á mánudag gekk sólin til viðar hjá Vormönnum dals og fólk tók saman pjönkur sínar og hver hélt til sín heima hossandi í blikkbeljum eftir dvöl í heil- næmu fjallalofti við rætur elddrottning- arinnar miklu í austri. Guðm. Gíslason. Skömmu eftir útihátíðina fór vinnuhópur skólafólks úr Kópavogi austur í Þjórsárdal og dreifði þar grasfræi og áburði. Þannig er hægt að bæta landinu þann átroðning sem það verður fyrir á siíkum skemmtunum. 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.