Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1973, Page 17

Skinfaxi - 01.06.1973, Page 17
Danska íþróttafólkið ferðaðist talsvert og skoðaði meðal annars Hjálparfoss í Þjórsár- dal, og það var þessi mynd tekin. höfðu brugðist vel við þegar til þeirra var leitað og boðist til að skjóta skjóls- husi yfir hópinn fyrstu nóttina og sjá um blheyrandi veitingar. Var því íþróttafólk- ið flutt á einkabílum í hið myndarlega samkomuhús þeirra Njarðvíkinga „Stapa“ þar sem ríkulegar veitingar biðu á borð- um, og þar hófust svo kynni þessara tveggja hópa íslenskra og danskra ung- rnennafélaga. Heimamenn buðu gesti vel- homna, kynntu þeim dagskrá sem gerð hafði verið fyrir heimsóknina og síðan var þeim sagt í stuttu máli frá starfsemi þeirra tveggja félaga sem voru gestgjaf- ai' þeirra í augnablikinu. Þess má geta að UMFN og UMFK tóku á sama hátt a móti fimleikaflokknum frá Holstebro °g hafa báðir þ essir hópar síðar lýst því fyrir mér hvað þeim þætti vænt um þess- ar hlýlegu viðtökur sem þeir hlutu og hvað þessi fyrstu kynni af íslenzkum ung- mennafélögum virkuðu jákvætt á hópinn °g eftirvæntinguna til að kvnnast landi °g þjóð. í bítið um morguninn eftir var svo lagt af stað til Laugarvatns, en þar skyldi hópurinn búa, í bamaskólanum á staðn- um og mættum við þar sömu velvild for- ráðamanna og jafnan áður. Á leiðinni austur var staldrað við á Selfossi þar sem Umf. Selfoss bauð til hádegisverðar. Því má skjóta hér inn í að öll ferðin var skipulögð á þann hátt að gestimir sæju ekki aðeins hina ýmsu staði heldur hittu þeir jafnan fólkið sem byggði staðina og kynntust starfi viðkomandi ungmenna- félags um leið. Á Selfossi ávarpaði Hörð- ur Óskarsson fonn. Umf. Selfoss danina og sagði þeim frá staðnum og starfi Umf. Selfoss, en íþróttafólkið átti eftir að koma þarna aftur og sjá meira og hitta fleiri og komum við að því síðar. Að Laugar- vatni var komið síðla dags, en samkvæmt áætlun átti Laugarvatn að vera aðal bækistöð hópsins allan tímann sem gest- irnir væru hér. Það fór vel um danina í barnaskólanum, þar höfðum við til um- ráða rúmgott svefnpláss, ágætis eldhús SKINFAXI 17

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.