Skinfaxi - 01.04.1974, Blaðsíða 3
S SKINFAXÍ 1
----------------------
Tímarii Ungmennafélags íslands — LXV árga ígjr — 2. hef.i 1974 — Ri'.stjóri Eysteinn
Þcrvaldsron — Út koma 6 hefti á ári hverju.
SAMKOMUHALD
Eitt af megin markmiðum ungmennafé-
lagshreyfingarinnar var og hefur verið að
efla heilbrigt skemmtanalíf. Vafalaust
telja margir að við þau markmið hafi ekki
verið staðið. Þær raddir eru til dæmis há-
værar sem fully;oa ao félagsheimilin sem
ungmennafélög'n eiga yfirleitt aðild að,
hafi ekki þjónað því æiiunarhlutverki að
bæta skemmtana'ífið og efla menningar-
starf. Auðvitað mæfti ýmislegt betur fara
i sambandi við starísemi félagsheimil-
anna, en ég vil benda á að oftast ber
hneira á því sem úrskeiðis fer en því sem
vel er gert. Félagsheimilin eru jafnan að
verulegu leyti starfsvettvangur þeirra fé-
laga sem að þeim standa. Þar fara fram
m. a. fundahöld, fjölbreytt námskeið, list-
æfingar, leiksýningar, söngskemmtanir,
íþróttastarfsemi og margskonar innan-
sveitarsamkomur. Opinbert dansleikja-
hald er yfirleitt lítill þáttur í heildarstarf-
semi félagshe'milanna, en þann þátt þarf
vissulega að bæta verulega svo sómi
verði að. Almenn áfengisneysla er alvar-
lega mikil á opinberum dansleikjum og
'nn í húsin er oft á tíðum troðið allt of
mörgu fólki, jafnvel svo að leg'ð hefur við
stórsiysum. Á vissum svæðum er þetta
atriði þó í lagi. í þessu sambandi vil ég
harðlega átelja það framkvæmdaleysi hjá
löggjafavaldinu að samræma ekki reglur
\arðandi fjölda gesta í samkomuhúsum.
Ég skora á ö'.l ungmennafélög og aðra
aði.'a sem standa fyrir samkomum, að
gera stórátak til að bæta skemmtanahald-
ið og þá íyrst og fremst með því að veita
öflugt viðnám gegn áfengisneyslu á
skemmtunum. Sú viðleitni væri gott fram-
lag til menningarauka á þjóðhátíðarári.
Þ. J.
skinfaxi
3