Skinfaxi - 01.04.1974, Blaðsíða 29
rnagni af áburði og fræi dreift. íbróttir
voru mikið stundaðar á sambandssvæð-
inu og verður nú getið þess helzta:
íþróttafólk HSÞ tók þátt í 154 mótum
og vo:u þátttakendur í þeim 1656, og
skiptist það þannig milli íþróttagreina:
Frjálsar íþróttir 27 mót 357 kepp
Glíma 7 — 26 —
Blak 2 — 36 —
Handknattleikur 38 — 380 —
Knattspyrna 64 — 704 —
Badminton 3 — 28 —
Skíði 9 — 80 —
Sund 4 — 45 —
Prjálsíþróttafólk HSÞ keppti á mörgum
mótum utan héraðs og sigraði m. a. í
Noiðuriandsmeistaramóti með 212,5 stig-
um, bikarkeppni FRÍ II. deild með 107,5
st. Haldið var héraðsmót í knattspyrnu
fyrir eldri og yngri flokka, ennfremur bik-
arkeppni fyrir þá yngri. Völsungur og
Magni tóku þátt í íslandsmótunum í
knattspymu. Glímumenn HSÞ tóku þátt
í öllum stærri glimumótum, m. a. ís-
landsglímunni, Sveitaglímu GLÍ, Bikar-
glímu GLÍ í báðum flokkum, Norður-
landsglímunni og fleiri. Skíðaíþróttin er
aðallega stunduð á Húsavík og tóku þeir
bátt i mörgum mótum, m. a. Skiðalands-
uióti íslands, Unglingaskíðamóti íslands,
Þar sem Völsungur fékk 1 íslandsmeist-
ara í svigi 15—16 ára, Böðvar Bjarnason,
auk þess í mörgum fleiri mótum. Sund-
meistaramót Norðurlands var haldið á
Húsavík og var þátttaka mjög mikil. Blak
er hér vaxandi íþróttagrein, og var hald-
i3 hér héraðsmót í þvi í fyrsta sinn, auk.
Þess sem lið frá HSÞ tók þátt í íslands-
^hótinu. Handknattleikur er hvergi stund-
3-ður nema á Húsavik, en þar er mikill
ahugi fyrir honum. Völsungur varð ís-
iandsmeistari í handknattleik í III. deild.
Badminton er stundað hér á nokkrum
stöðurn og fer áhugi vaxandi.
Arngrímur Geirsson gjaldkeri HSÞ
iagði fram reikninga sambandsins. Niður-
l. 002.665,00. Helztu tekjuliðir voru þessir:
Skattar og styrkir 455.761,00, íþróttamót
og samkomur 142.328,00 og aðrar tekjur
341.000,00. Helztu gjaldaliðir voru þessir:
Kennslukostnaður 272.420,00, ferðakostn-
aður íþióttamanna 188.127,00, stjórnar-
kostnaður 322.602,00. íþróttamót og sam-
komur 102.442,00 og önnur gjöld 91.649,00.
Rekstrarhalli varð kr. 63.415,00. Eignir
sambandsins voru 424.185,00.
Verður nú getið nokkuira tillagna sem
samþykktar voru á þinginu:
Þingið beinir þeirri áskorun til sveitar-
stjórna að þær láti raunverulegt ve-ð-
gildi framlags síns til sambandsins hald-
ast með þvi að miða framlag sitt í ár
við 75,00 kr. á hvern íbúa.
Þingið beinir því til stjórnar sambands-
ins að hefja nú þegar undirbúning að
útgáfu á segulbandsspólum með alþing-
eysku efni.
Þingið beinir því til stjórnarinnar að
kanna hvort rétt sé að koma á Þingey-
ingahátíð og þá sem árlegum viðburði.
Þingið fagnar því, að í vetur var haldið
héraðsmót í skíðagöngu og beinir því til
skíðaráðs, að áframhald verði þar á.
Samþykkt var breyting á lögum
HSÞ og var hún í þá átt að fjölga i stjórn
HSÞ úr 5 í 7 menn.
31. október 1974 verður HSÞ 60 ára.
Afmælisins verður rninnst á margan hátt,
m. a. með afmælismótum og afmælis-
hátíð á afmælisdaginn.
Úr stjórn HSÞ áttu að ganga Arngrím-
ur Geirsson og Indriði Ketilsson, sem ekki
gaf kost á sér til endurkjörs.
Stjórn Héraðssambands Suður-Þing-
eyinga skipa nú: Óskar Ágústsson, Laug-
um, formaður, Vilhjálmur Pálsson Húsa-
vík, varaformaður, Sigurður Jónsson
Yztafelli, ritari, Arngrímur Geirsson
Skútustöðum, gj aldkeri og meðstjórnend-
ur Jón Illugason Reynihlíð, Völundur
Hermóðsson, Álftanesi og Jónas Sigurðs-
son, Lundarbrekku.
sKINFAXI
29