Skinfaxi - 01.04.1974, Side 30
52. héraðs-
þing HSK
52. héraðsþing Héraðssambandsins
Skarphéðins var haldið í Aratungu 23.
og 24. febrúar s.l. Þingið sátu um 50 full-
trúar frá 21 félagi.
Meðal gesta þingsins voru: Hafsteinn
Þorvaldsson, formaður UMFÍ, Guðmund-
ur Gíslason úr framkvæmdastjórn UMFÍ,
Sigurður Geirdal frkvstj. UMFÍ, Sveinn
Björnsson, varaform. ÍSÍ, Sigurður Magn-
ússon, útbreiðslustjóri ÍSÍ og Sr. Heimir
Steinsson, skólastjóri lýðháskólans í
Skálholti.
Fyrri daginn var þinghaldið með hefð-
bundnum hætti nema hvað þingfulltrú
um var skipt í 4 umræðuhópa sem ræddu
skýrslu stjórnar og nefnda s.l. starfsár.
Um kvöldið hafði Umf. Biskupstungna
kvöldvöku með blönduðu efni. Fyrst fór
fram verðlaunaafhending á vegum HSK.
íþróttamaður HSK 1973 var valinn
Þráinn Hafsteinsson, Umf. Selfoss. Elín-
borg Gunnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir
besta afrek kvenna í sundi, gefandi Bif-
reiðastöð Selfoss. Þórður Gunnarsson
hlaut verðlaun fyrir besta afrek karla í
sundi, gefandi Verslun Helga Björgvins-
sonar, Selfossi. Guðrún Ágústsdóttir hlaut
verðlaun fyrir besta afrek kvenna í frjáls-
um íþróttum, gefandi HSK. Sigurður
Jónsson hlaut verðlaun fyrir besta afrek
karla í frjálsum íþróttum, gefandi HSK.
Þau eru öll frá Umf. Selfoss.
Hreinn Erlendsson sýndi kvikmynd frá
síðustu Ólympíuleikum og Jón Sigurðsson
sýndi litskuggamyndir frá Biskups-
tungnaafrétti o. fl. Að lokum sýndu
heimamenn stuttan leikþátt við góðar
undirtektir áhorfenda. Seinni daginn
störfuðu þingnefndir fyrir hádegi.
Stjórn sambandsins var öll endurkjör-
in, Jóhannes Sigmundsson, formaður,
Hjörtur Jóhannsson ritari, Kristján
Gíslason gjaldkeri, Björn Sigurðsson og
Baldur Björnsson meðstjórnendur.
Félagsmálafræðsla
í vetur hefur Héraðssambandið Skarp-
héðinn beitt sér verulega fyrir félags-
málafræðslu á sambandssvæðinu. Er þar
um að ræða Félagsmálaskóla UMFÍ. —
Námsefnið er félagsmálamappa I frá
Æskulýðsráði ríkisins. Námstími er um
20 klst. að jafnaði.
Nú er lokið 5 námskeiðum:
1) Námskeið hjá Umf. Selfoss 31. okt.
til 12. des. Þátttakendur 24.
2) Hjá Umf. Samhygð 3. nóv. til 15. des.
Þátttakendur 20.
3) í Laugalandsskóla í Holtum 11. jan
til 1. febr. Námskeiðið var fyrir tvo efstu
bekki skólans og voru þátttakendur 26.
4) Hjá Umf. Biskupstungna 21. jan. til
18. febr. Þátttakendur 20.
5) Umf. Eyrarbakka gekkst fyrir mál-
fundanámskeiði i félagi við Verkal.fél.
Báruna. Þátttakendur 14. Stjórnendur
voru Ársæll Þórðarson og Magnús K.
Hannesson.
Þegar þetta er ritað standa yfir þrjú
námskeið: Hjá Umf. Hveragerðis og Ölf-
uss, hjá mf. Trausta, hjá Umf. Eyfell-
ingi og í Lýðháskólanum i Skálholti.
Kennarar á námskeiðunum hafa verið
Guðmundur Guðmundsson, Sigurfinnur
Sigurðsson, Hafsteinn Þorvaldsson, Jó-
hannes Sigmundsson og Sigvaldi Ingi-
mundarson.
Mikil eftirspurn er eftir námskeiðum
félagsmálaskólans og virðast ungmenna-
félagar og skólafólk á sambandssvæði
HSK kunna vel að meta þessa þjónustu.
GG
30
SKINFAXI