Skinfaxi - 01.04.1974, Side 13
Ungmennafélögin eru
vettvangur allra þeirra
sem eru ungir í anda. —
Menningarlegustu
tkemmtisamkomur
landsins eru haldnar á
þeirra vegum.
Myndin er af kátu fólki
sem bjó í tjaldbúðum á
hátíðinni VOR í DAL
um hvítasunnuna í
fyrra.
legra verðmæta. Við megum ekki spilla
svo náttúrunni og umhverfi okkar í
stundar gróðaskyni, að ekki verði rúm
til að öðlast andlegan þroska.
Ungmennafélögin skynja þörf manns-
ins til að starfa í samfélagi meðbræðra
sinna að hugsjónum sínum án togstreitu
og samkeppnisspennu. Til þess að treysta
grundvöll þessarar starfsemi er nú lögð
naikil áhersla á að þjálfa alla þá sem
vilja, í almennu félagsstarfi. Með starf-
rækslu félagsmálanámskeiða og með
þátttöku allra félaganna í félagsstarfinu.
Ungmennafélagar hafa ekki lagt niður
bá iðju sína að frambera skemmtiefni
hver fyrir annan í stað þess að kaupa ein-
göngu atvinnuskemmtikrafta. Virðist
þessi skoðun geta fallið vel að þjóðfélagi
nutímans, þarsem kvartað, er undan því
að einstaklingurinn finni sig ekki í
skemmtun með öðru fólki vegna hlut-
leysis í skemmtuninni.
Ef eitthvað í starfsemi ungmennafélag-
anna hentar ótvírætt ekki í dag þá þarf
að breyta þeim liðum í samræmi við nú-
tíðina. Ungmennafélagshreyfingin er
raunverulegur vettvangur allra þeirra
sem ungir eru í anda. G.G.
íþróttahandbók HSÞ
Eysteinn Hallgrímsson hefur tekið
saman íþróttahandbók HSÞ, og var
henni fyrst dreift fjölritaðri á ársþingi
HSÞ í ár. Þetta er lausblaðabók, gefin
út i tilefni 60 ára afmælis HSÞ, sem er á
þessu ári. Handbókin geymir miklar
heimildir urn íþróttir Suður-Þingeyinga
allt frá aldamótum. Þar eru skrár um
bestu afrek í ýmsum greinum, bestu árs-
afrek, HSÞ-met í hinurn ýmsu grein-
um, árangur Þingeyinga í knattleikjum
og Norðurlandsmeistaramótum.
SKINFAXI
13