Skinfaxi - 01.04.1974, Side 17
þarf að aukast, hvernig sem það tekst.
Einnig þarf starf félaganna að vaxa, svo
ekki verði reist háhýsi án undirstöðu.
Þannig er starf félaganna forsenda að
starfi HSÞ. Samvinna þarf að vera traust
milli skóla í héraði og ungmennafélag-
anna varðandi uppbyggingu húsnæðis og
aðstöðu svo skipuleggja megi sem hag-
kvasmust afnot.
— Hvað getur þú sagt mér um aðstöðu
til íþróttaiðkana á svæði HSÞ í dag?
— Aðalaðsetur hefur verið á Laugum,
enda Laugaskóli byggður að frumkvæði
engmennafélaganna um 1925. Á Laug-
um verður væntanlega áfram aðalaðstaða
en jafnframt þarf að nýta alla aðstöðu í
héraðinu til afnota fyrir félögin. Nú þeg-
ar eru hafnar framkvæmdir við byggingu
íþrótta- og félagsaðstöðu viða í héraðinu.
Þannig er unnið að gerð íþróttaaðstöðu
við Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði og
félags- og íþróttamiðstöð við Hafralækj-
arskóla í Aðaldal. Unnið er að byggingu
fullkomins íþróttavallar á Húsavík og þar
er hafinn undirbúningur veglegs íþrótta-
húss. I byggingu er stórt íþróttahús á
Laugum og mun HSÞ fá þar 60 ferm.
húsnæði, sem breyta mun verulega fé-
lagsaðstöðu HSÞ. I Mývatnssveit eru í
undirbúningi sundlaugaframkvæmdir.
Allt þetta mun gjörbreyta aðstöðu til lík-
amsræktar og heilsuverndar.
— Hver er þinn óskadraumur, Arn-
a!dur?
— Minn óskadraumur er að sjá ár-
angur af starfinu, og ég óska að ung-
mennafélagshreyfingin fái öruggan
rekstrargrundvöll og að fjárskortur þurfi
ekki ætíð að vera starfinu fjötur um fót,
því að verkefnin eru óþrjótandi og margt
þyrfti að framkvæma sem ekki hefur tek-
ist enn vegna fjárskort. Jafnframt óska
ég þess að hver einasti félagsmaður í
ungmennafélagi sé virkur þátttakandi í
starfinu, hver á sína vísu, og vinni ötul-
lega samkvæmt kjörorðinu sigilda: ls-
land allt.
G.G.
Laugar í Reykjadal er
helsta íþróttamið'stöð
HSÞ. Myndin er tekin á
íþróttavellinum þar á
landsmóti UMFÍ árið
1961.
SKINFAXI
17