Skinfaxi - 01.08.1978, Page 11
Málin rædd.
Sund
Þessu næst lítum við inn hjá sundfólk-
inu. Þar gengur allt sem í sögu eins og fyrri
daginn og metin falla hvert af öðru. Verð-
laun eru afhent jafnóðum, það er tign yfir
þeim atburði, þrír lúðrablásarar leika stutt
stef, þeir sem til verðlauna hafa unnið
ganga að verðlaunapalli en fyrir þeim
gengur fánaberi. Verðlaunahafarnir stíga á
stokk og fá laun sín afhent í gulli, silfri og
bronsi.
Frjálsar íþróttir
Þá er kominn tími til að huga að frjálsum
íþróttum á þessum öðrum degi landsmóts-
ins. Þar hófst keppnin kl. 10.00 í 100 m
grindahlaupi kvenna, hástökki karla og
kringlukasti kvenna. Bergþóra Benónýs-
dóttir HSÞ er yfirburðasigurvegari i
grindahlaupinu. Karl West gerir sér lítið
fyrir og sigrar nokkuð óvænt í hástökki.
í kringlukasti ber Guðrún Ingólfsdóttir
USÚ höfuð og herðar yfir keppinauta sína.
Viöbragð i 400 m hlaupi. Aöalstcinn Bernharðsson, Og erfiðu hlaupi lýkur.
JónSverrisson og Jakob Sigurðlason, Þráinsson f hvarfi.
SKINFAXI
11