Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1978, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.08.1978, Blaðsíða 11
Málin rædd. Sund Þessu næst lítum við inn hjá sundfólk- inu. Þar gengur allt sem í sögu eins og fyrri daginn og metin falla hvert af öðru. Verð- laun eru afhent jafnóðum, það er tign yfir þeim atburði, þrír lúðrablásarar leika stutt stef, þeir sem til verðlauna hafa unnið ganga að verðlaunapalli en fyrir þeim gengur fánaberi. Verðlaunahafarnir stíga á stokk og fá laun sín afhent í gulli, silfri og bronsi. Frjálsar íþróttir Þá er kominn tími til að huga að frjálsum íþróttum á þessum öðrum degi landsmóts- ins. Þar hófst keppnin kl. 10.00 í 100 m grindahlaupi kvenna, hástökki karla og kringlukasti kvenna. Bergþóra Benónýs- dóttir HSÞ er yfirburðasigurvegari i grindahlaupinu. Karl West gerir sér lítið fyrir og sigrar nokkuð óvænt í hástökki. í kringlukasti ber Guðrún Ingólfsdóttir USÚ höfuð og herðar yfir keppinauta sína. Viöbragð i 400 m hlaupi. Aöalstcinn Bernharðsson, Og erfiðu hlaupi lýkur. JónSverrisson og Jakob Sigurðlason, Þráinsson f hvarfi. SKINFAXI 11

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.