Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1978, Síða 15

Skinfaxi - 01.08.1978, Síða 15
Setningar ávarp formanns UMFÍ Herra forseti íslands, virðulega forseta- frú, hæstvirtur menntamálaráðherra og frú, heiðursgestur séra Eiríkur J. Eiríksson og frú, ágætu mótsgestir, keppendur og starfsmenn. Fyrir hönd Ungmennafélags íslands, landsmótsnefndar og framkvæmdaaðila 16. landsrnóts UMFÍ — Héraðssambands- ins Skarphéðins, býð ég ykkur öll velkomin til Selfoss. Á sl. ári varð UMFÍ 70 ára. 16. lands- mótið sem hér er að hefjast er þvi eins konar afmælismót, þótt ekki beri það upp á afmælisárið. Ungmennafélagshreyfingin á íslandi stendur nú á merkum tímamótum í marg- víslegum skilningi. Forráðamönnum hreyfingarinnar hefur lengi verið það ljóst, að hún á sterkar rætur i íslenzku þjóðlífi, hefur verulegu uppeldis- legu og menningarlegu hlutverki að gegna, og er vissulega voldug og sterk. Eftir víðtækt útbreiðslustarf UMFÍ undanfarin ár þar sem höfuðáherzla hefur veirð lögð á innri uppbyggingu, og að skapa sem bezt tengsl og kynni milli höfuðstöðv- anna og hins almenna félaga, samfara stór- aukinni fræðslustarfsemi, er nú uppskeru- timinn hafinn. Félagakeðjan er nú óslitin kringum allt land, ný félög hafa verið stofnuð og skipu- lagsmálin eru stöðugt undir smásjánni. Á 30. Sambandsþingi og 70 ára afmælis- hátíð samtakanna sl. haust, ákvað félags- forystan einum rómi að nú skyldu heildar- samtökin UMFÍ uppskera af þessum ódáins akri íslenzkra ungmennafélaga, og eignast eigið þak yfir höfuðstöðvar samtak- anna i Reykjavík. Og félagarnir létu ekki sitja við orðin tóm eða stuðningsmenn sam- takanna, þvi fyrr í þessum mánuði flutti UMFÍ þjónustumiðstöð Samtakanna í eigin húsnæði, 150 ferm hæð í nýju húsi að Mjölnisholti 14 í Reykjavík. Á þessu hefur sannast samtakamáttur hreyfingarinnar, sem telur nú yfir 20 þúsund félagsmenn. 16. landsmót UMFÍ, — það sem hér er að hefjast — mun sýna alþjóð styrk ung- mennafélagshreyfingarinnar, félagslegan og íþróttalegan. Aldrei fyrr í sögu lands- mótanna hefur íþróttafólk okkar lagt jafn mikla alúð og rækt við að undirbúa sig fyrir þá hörðu keppni sem hér verður háð í öll- um greinum íþrótta. Aldrei hefur félgsfor- ystan á hverjum stað lagt jafn mikið að sér á öllum sviðum við undirbúninginn, og aldrei hefur landsmót UMFÍ verið haldið við jafn glæsilegar aðstæður og nú. Ungmennafélagshreyfingin stendur í mikilli þakkarskuld við þá aðila sem á ell- eftu stund tóku að sér framkvæmd þessa móts, eftir að sýnt var að UMSE gat ekki að þessu sinni haldið mótið. Þá vil ég hrærðum huga og stoltur í senn þakka sveitingum mínum sem gerðu það kleift að HSK gat með svo stuttum fyrir- vara tekið mótið að sér. Mér er til efs að margir staðir á íslandi hefðu náð samstöðu um að gera það, sem hér hefur gerzt á svo skömmum tíma, — verklegri þátturinn er SKINFAXI 15

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.