Skinfaxi - 01.06.1981, Qupperneq 4
Þormóður Ásvaldsson, formaður HSÞ í ræðustól.
FKÉITIIÍ
AF ÞLVOIM
HSÞ
68. ársþing HSÞ var haldið í
barnaskóla Bárðdæla sunnudag-
inn 5. apríl í boði Umf. Einingar-
innar.
Þingforsetar voru Jónas Sig-
urðsson, Lundarbrekku og
Tryggvd Óskarsson, Þverá og
þingritarar Svanhildur Her-
mannsdóttir og Hinrik Arni Bóas-
son. Gestir þingsins voru Sigurð-
ur Geirdal framkv.stjóri UMFÍ
og Jón Ármann Héðinsson stjórn-
armaður ISI og úr héraði Þórður
Jónsson Laufahlíð.
I skýrslu stjórnar sem formaður
HSÞ Þormóður Ástvaldsson,
ílutti kom fram að ýmislegt var
gert á vegum sambandsins á síð-
asta ári og skal hér minnst á það
helsta:
1. íþróttastarfíð var að sönnu
langstærsta verkefni HSÞ.
Haldin voru héraðsmót í eftir-
töldum greinum: Frjálsum
íþróttum, knattspyrnu, blaki,
skák, bridge, borðtennis,
glímu og sundi. Samtals mun
keppni hafa farið fram í um
það bil 50 daga á árinu, sem
mun vera heldur með meira
móti og þátttaka var oftast
góð. Auk þessara móta fóru
keppendur á fjölmörg mót sem
haldin voru utan héraðs í ýms-
um íþróttagreinum. Þar bar
hæst þátttaka í Íþróttahátíð
ÍSÍ 1980.
2. Frjálsíþróttaþjálfari var ráð-
inn s.l. sumar Vigfús Helga-
son. Sá hann um þjálfun hér-
aðsliðsins, en auk þess fór
hann út í félögin og þjálfaði
þar.
3. Sumarbúðir fyrir unglinga
voru starfræktar að Laugum
undir stjórn Haraldar Þórar-
inssonar.
4. HSÞ hefur hin síðari ár verið
að endurbyggja Laugavöll. Er
þar mikil og fjárfrek fram-
kvæmd. Var á síðasta ári stigið
stærra skref en áður í þeirri
framkvæmd og unnið fyrir 24
millj. g.kr. Það er álit margra
að það sé ekki í verkahring hér-
aðssambanda að byggja upp
dýr íþróttamannvirki heldur
ríkis og sveitarfélaga. Héraðs-
samböndin eigi frekar að verja
sínum peningum í að efla sitt
starf og reyna á þann hátt að
nýta scm bcst þessi mannvirki.
Fulltrúar Umf. Geisla á þingi HSÞ. T.f.v.: ívar Ketilsson, Guðný Gests-
dóttir, Halldór Skarphéðinsson, Hanna Guðnadóttir og Eysteinn Hall-
grímsson.
4
SKINFAXI