Skinfaxi - 01.06.1981, Qupperneq 18
íð skuluni
inna næsia mói
Sigurvegarar ó Landsmótum UMFÍ
Senn líður að Landsmóti og
héraðssamböndin standa nú í
ströngu við undirbúning. Allt
þeirra starf miðast við hann enda
kappkosta þau að þátttaka þeirra
verði sem glæsilegust á þessu
stærsta íþrótta— og æskulýðsmóti
sem haldið er hérlendis. Að sjálf'-
sögðu dreymir flest samböndin
um að vinna Landsmótið en ef við
lítum á lista yfir sigurvegara á
Landsmótum UMFI, eftir að þau
voru endurvakin, sést að það eru
fá sambönd er geta státað af því
að hafa sigrað.
Haukadal 1940 UMSK
Hvanneyri 1943 UÍA
Laugum 1946 HSÞ
Hveragerði 1949 HSK
Eiðum 1952 HSK
Akureyri 1955 HSK
Þingvöllum 1957 HSK
Laugum 1961 HSK
Laugarvatni 1965 HSK
Eiðum 1968 HSK
Sauðárkróki 1971 HSK
Akranesi 1975 UMSK
Selfossi 1978 HSK
Akureyri 1981 P
Á þessari upptalningu sést að
HSK hefur sigrað æði oft enda
kannski ekki f'urða þar sem það
hefur verið stærst héraðssam-
banda innan UMFI um áraraðir.
Árið 1975 gerist það að UMSK
GÖNGUDAGUR
FJÖLSKVLDUNNAR
UMFÍ
GÖNGUDAGUR
FJÖLSKYLDUNNAR
Er blaðið kemur út er göngudagurinn um garð genginn.
Búist er við mikilli þátttöku um land allt þar sem þetta er í
annað sinn sem gengið er, en í fyrra tókst dagurinn mjög vel.
Ætlunin er að gera göngudeginum skil síðar í Skinfaxa,
því eru þau félög er gengu hvött til að senda myndir og
skýrslur um þær sem allra fyrst til UMFÍ.
stoppar sigurgöngu HSK sem
hafði þá unnið Landsmótin 8
sinnum í röð. Kjalnesingar urðu
að sjálfsögðu hinir ánægðustu (og
rúmlega það að sumum fannst),
varð þá m.a. þessi vísa til er Sig-
urður Gcirdal samdi.
Kjalnesinga kappa lið,
kom í hóp á Landsmótið.
SkalJ á heinum Skarphébinn,
skeljdist allur lýðurinn.
En Jóhannes Sigmundsson var
ekki lengi að svara fyrir Skarphéð-
insmenn.
Ekki vantar ojlátið,
þeir unnu að vísu Landamólið.
En Skarphéðinn ei skeljdist hót,
við skulum vinna mzsta mót.
Og svo sannarlega stóðu þeir
við það á Selfossi. Að öllum ólöst-
uðum verður að segjast eins og er
að þeir eru mjög sigurstranglegir
á Landsmótinu r háð verður í
sumar. Það sem gerir gæfumun-
inn hjá HSK er hið sterka sundlið
þeirra en þar hafa þeir verið í al-
gjörum sérflokki á Landsmótum.
Annars er mjög erfltt að spá um
röð sambandsaðila á Landsmót-
inu. Til þess að lesendur Skinfaxa
geti fengið einhverja hugmynd
um röð sambanda höfum viðfeng-
ið aðila til að spá um úrslit í frjáls-
íþróttum en þar verður keppni
einna jöfnust ef að líkum lætur.
Spá þessi er á öðrum stað í blað-
inu. I öðrum greinum liggja úr-
slitin mun ljósar fyrir nema þá
kannski í starfsíþr. en mjög erfitt
er að vera með nokkra spádóma í
sambandi við þá keppni.
Yfir höfuð cr kannski algjör vit-
leysa að vera með nokkra spá-
dóma, enda hér meira gert til
gamans, skemmtilegast er að
mæta á mótið sjálft og fylgjast
með öllu því sein þar fer frant.
Sem betur fer er ekki aðalatriðið
að sigra heldur fyrst og fremst að
vera með.
Fjölmennum á 17. Landamót
UMFÍ á Akureyri.
S.P.
18
SKINFAXI