Skinfaxi - 01.06.1981, Síða 28
Formaður félagsins Hrólfur Ölvis-
son þakkar hlýjar kveðjur og gjafir
sem félaginu bárust.
Ritnefnd afmælisblaðsins: Jónas Jónsson, Gerður Óskarsdóttir, Þórhall-
ur Steinsson, Guðbjöm Jónsson ritstjóri og Trausti Runólfsson.
Umf. Asahrepps varð 70 ára 21. jan. í tilefni af því var
haldið veglegt hófí félagsheimili félagsins Ásgarði 2. maí sl.
Fjölmenni var mikið og komu þarna ungir og aldnir
félagar, einnig margir burtfluttir félagar. Á dagskrá var
meðal annars söngur, kaffidrykkja, ávörp, afmælislag Umf.
Ásahrepps, höf: Tryggvi Sveinbjörnsson, leikþáttur og að
lokum var dansað fram eftir nóttu. I hófinu voru þrír gestir
gerðir að heiðursfélögum, þau Valgerður H. Guðmunds-
dóttir, sem var ritari félagsins í 50 ár, Guðni Guðmundsson
og Haukur Guðjónsson.
Veislustjóri var Olafur H. Guðmundsson Hellatúni.
Félagið lét hanna fyrir sig félagsmerki þar sem félagið
hefur aldei átt neitt félagsmerki, hönnuður þess er Orn
Guðnason.
Núverandi stjórn félagsins skipa: Hrólfur Ölvisson for-
maður, Sigþór Jónsson gjaldkeri og Steinunn Hannesdóttir
ritari.
Umý. Ásahrepps
70 ára
Þ^u vom gerð að heiðursfélögum: Val-
gerður Guðmundsdóttir, Guðni Guð-
mundsson og Haukur Guðjónsson.
Aý útgáýustarji
Umf. Ásahrepps heldur á þessu ári upp á 70 ára afmæli
sitt en félagið v^r stofnað 21. janúar 1911. I þessu tilefni
hefur félagið gefið út afmælisblað er ber nafnið Ylir. Blaðið
er 48 síður, prýtt fjölda mynda og hið vandaðasta í alla
staði.
Efni er fjölbreytilegt og sem dæmi má nefna ýmis viðtöl,
m.a. við Pálma Gíslason formann UMFI. Pættir úr lífssögu
Umf. Ásahrepps í 70 ár, forvitnilegar greinar úr gömlum
tölublöðum af Yli og margt fleira. Auk þess er kynnt fyrir
lesendum merki félagsins sem nýlega var lokið við að hanna.
I ritnefnd eru: Guðbjörn Jónsson, Gerður Oskarsdóttir,
Jónas Jónsson, Trausti Runólfsson og Pórhallur Steinsson.
Skinfaxi óskar Umf. Ásahrepps til hamingju með af-
mælið. S.P.
28
SKINFAXI