Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1986, Síða 12

Skinfaxi - 01.06.1986, Síða 12
[| "Blessaður farðu í úlpu" var t.d. einu sinni að við í Víking vorum að fara út í keppnisferð að ég lenti við hliðina á Óla Einars sem lék þá með Víking. Hann var í mikilli mokkaúlpu og segir allt í einu við mig er við erum komnir í loftið "Siggi blessaður farðu í úlpu, það er alveg ófært að þvælast úlpulaus í 4-5 daga í björgunarbátnum eftir að flugvélin ferst". Þetta minnkaði nú ekki flughræðslu mína, og var ég mjög feginn er við lentum, en Óli átti til svona glens og var alltaf mjög gaman að honum. Hvemig fannst þér staðið að undirbúningi fyrir HM? - Eins vel og hægt var þegar tillit er tekið til kringumstæðna, margir leikmenn voru erlendis og gátu verið takmarkað með í undirbúningnum hér heima. Og árangurinn var glæsilegur að mínu mati, þó fannst mér að ég sjálfur hefði getað verið betri, en ég átti í smá meiðslum rétt fyrir keppnina og var ekki alveg búinn að ná mér er hún hófst. Hvemig leið ykkur eftir leikinn við Suður Kóreu? - Okkur leið nú ekkert sérstaklega vel, ég væri að Ijúga ef ég segði annað. En persónulega var ég ekkert hræddur við þetta, en auðvitað urðum við nokkuð skelkaðir eftir þennan leik. Því íslendingar eru það kröfuharðir þegar keppt er við aðrar þjóðir, en það gladdi okkur mikið að fá allan þennan fjölda skeyta sem við fengum eftir leikinn. Þar sem við vorum hvattir til dáða og stappað í okkur stálinu þrátt fyrir þennan ósigur. Þannig að við fundum mikinn stuðning að heiman, og vil ég persónulega þakka öllum þeim er studdu olckur þá og áður fyrir stuðn- inginn. Hvemig hefurþérlíkað við Bogdan sem þjálfara? - Mér hefur líkað ágætlega við hann þrátt við að hann sé harður og noti nú stundum brútal aðferðir við þjálfunina. Hann er mjög fær á sínu sviði og þá sérstaklega í öllu leikskipulagi og skipulagningu í leikjum og leikað- ferðum, og ég hef ekki kynnst neinum betri á þessu sviði. W'Siggi Siggi!!" Kanntu ekki einhverja skemmtilega sögu um hann eða atvik kringum hann? Hann er mjög skemmtilegur og litríkur persónuleiki, t.d. heldur hann mjög fast utan um aurana sína. Það var t.d. einu sinni er við vorum í Los Angeles að hann bað mig að koma með sér til að kaupa ljósmyndavél, en hann var búinn að spekulera mikið í verði á þeirri vél er hann hafði áhuga á. Og hafði skoðað þessa vél á öllum stöðum er hann hafði komið til, og fórum við niður í bæ og hann kaupir vélina. Þegar við förum svo inní rútu stuttu seinna sest hann fremst en ég aftast, og fer hann að taka myndavélina úr pakkanum. Allt í einu heyri ég öskrað "Siggi Siggi!!" og svo kemur karlinn stormandi afturí til mín með látum og segir; (Er machen finta gegen mir!!!!) þ.e. "Hann hefur svindlað á mér kallinn í búðinni, það vantar linsuna á vélina". En vélin var linsulaus og hélt karlinn að hann hefði verið svikinn, en linsan var í pakka inn í kassanum sem vélin var í. Jæja Siggi! Segðu mér að lokum, ætíarðu að spila eitthvað með Austra núna í fríinu? - Nei ætli það. Við verðum hér fyrir austan fram í ágúst eða þangað til við förum út. Og ætli maður reyni nú ekki bara að hvíla sig á öllu íþróttabrölti í sumar. Að þessum orðum töluðum slógum við botninn íþettn stutta samtal okkar, og Sigurðurþaut út í sólina og góða veðrið sem herjaði austfirði þennan dag. Guðmundur Gíslason Mörg sambönd og félög innan UMFÍ gefa út sitt eigið fréttabréf með fréttum af starfinu ásamt ýmsu öðru. Er þessi þáttur í starfi sambandanna mjög mikil- vægur, því það er bráðnauðsyn- legt að koma fréttum af starfinu á framfæri til félagsmanna og svo til fjölmiðla, sveitarstjórnarmanna og annarra er vilja fylgjast með starfseminni. En því miður hefur verið nokkur misbrestur á út- komu þessara fréttabréfa hjá mörgum samböndum, og hefur liðið langur tími á milli bréfa, allt upp í halft ár. Þetta er mjög bagalegt því það á að vera lítið verk að koma út fréttabréfi reglulega. Það þarf ekki að vera að prenta þessi fréttabréf, því þau gera alveg sama gagn þó þau séu fjölrituð eða ljósrituð. En nú til dags hafa allir aðstöðu til að komast í ljósritara eða fjölritara, og er það alveg nægilegur tækja- kostur til að gefa út fréttabréf. Oft heyrist að það sé bara enginn tfmi til að gefa út féttabréf, en það er mjög erfitt að trúa því þar sem þetta ætti ekki að vera nema svona um dagsverk í mesta lagi. Því er það öruggt að margir mikla þetta verk fyrir sér og koma sér þar afleiðandi ekki í það. En hvað um það, nú er kominn tími til að hrista af sér slenið og gera þennan þátt í starfinu sem virk- astan og öflugastan. Það þarf ekki að vera einhvert stórverkefni í gangi til að gefa út fréttabréf, það má alltaf finna fréttir bæði stórar og smáar til að segja frá. G.G. 12 Skinfaxi 3. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.