Skinfaxi - 01.06.1986, Síða 15
Framkvæmdastjóranámskeið UMFÍ
Hið árlega vomámskeið fyrir starfs-
menn hreyfingarinnar var haldið 6.-8.
júní að Varmalandi í Borgarfirði. Að
venju var farið yfir helstu atriði í starfi
framkvæmdastjórans, helstu verkefni
framundan, kynningar og útgáfustarf-
semi ofl. Námskeiðin hafa oftast
einhvern aðal áherslupunkt eftir því
hvaða verkefni eru framundan hjá
hreyfingunni í heild og hvar á sérstak-
lega að efla starfið.
Að þessu sinni var starfræksla ung-
mennabúða eitt af þeim verkefnum sem
við vildum sérstaklega efla, og var því
góðum tíma varið til að ræða þau mál
og miðla upplýsingum milli sambanda.
Á vegum ungmennafélagshreyfingar-
innar voru reknar 7 slíkar búðir s.l.
sumar, en útlit er fyrir að sumarið í
sumar slái öll fyrri met á þessum
vettvangi þar sem 12 sambönd munu
standa að ungmennabúðum á 10
stöðum, en þrjú sambönd eru saman
um ungmennabúðir í Reykjaskóla í
Hrútafirði. Þetta er ánægjuleg þróun og
mjög í anda þess uppeldisstarfs sem við
viljum vinna.
Starfsmenn UMFÍ gáfu stutta skýrslu
um starfsþætti eins og skýrslugerð,
Göngudag fjölskyldunnar, Þrastaskóg,
Skinfaxa og erlend samskipti sumars-
ins. Þá var að vanda sérstaklega farið í
innkaup sumarsins og skiptust menn á
upplýsingum og reynslu varðandi verð,
gæði og hvar hitt og þetta væri
fáanlegt. Þá eru jafnan upplýsingar um
vörur og verð frá ýmsum þeim sem við
höfum mest viðskipti við, til staðar á
þessum námskeiðum. Þá var 19. Lands-
mót UMFÍ og undirbúningur þess á
dagskrá, fjáröflun sambandanna og
margt fleira.
Einn aðalkostur þessara námskeiða er
sá, að þarna hittast og kynnast starfs-
menn hreyfingarinnar, svo það verður
auðveldara fyrir þá að leita hvor
til annars varðandi störfin í sumar,
nýjir starfsmenn komast strax inn í
hópinn og kynnast Starfsfólki UMFÍ.
Menn læra hver af öðrum og skiptast á
skoðunum og reynslu. Þá er jafnan
fléttað inn í dagskránna léttara efni,
einkum íþróttum, enda var frábær
aðstaða á Varmalandi, salur, sundlaug
og íþróttavöllur. Harðsnúin keppnislið
verða til á staðnum og ekki óalgengt að
nýjar efnilegar íþróttastjörnur uppgöt-
vist, t.d. vakti frammistaða formanns
HVÍ við markvörslu mikla athygli.
Hann sést raunar á mynd sem fylgir
þessum pistli þar sem hann
undirbýr sig undir að grípa inn í
homspyrnu með úthlaupi á réttu
augnabliki. Dómgæsla þótti að vísu
heldur léleg í úrslitaleik knattspyrn-
unnar, og má því segja að lið Harðar S.
Óskarssonar hafi unnið frækilegan sigur
þótt markatalan væri 2-2 í úrslita-
leiknum, enda var lið hans skipað
gamal reyndum harðjöxlum eins og sjá
má af meðfylgjandi mynd.
Alls vom þátttakendur á námskeiðinu
um 20 talsins, frá 10 héraðssambönd-
um, en það er alltaf mjög bagalegt
þegar marga vantar í hópinn, ekki bara
fyrir þá sem missa af námskeiðinu,
heldur einnig hina. Við þurfum á þeim
að halda til að miðla af reynslu sinni og
segja frá hugmyndum og starfi á sínu
svæði.
Aðstaðan á Varmalandi var frábær og
viðurgjörningur allur Þóri Jónssyni
gjaldkera UMFÍ og þeim borgfirðingum
eru færðar bestu þakkir fyrir aðstoð við
undirbúning og framkvæmd námskeiðs-
ins.
Sigurður Geirdal
Skinfaxi 3. tbl. 1986
15