Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 16
Enginn efast um að Karpov og
Kasparov séu sterkustu skákmenn
heims um þessar mundir og kannski
þeir snjöllustu nokkru sinni að Fischer
einum undanskildum. Framganga
Fischers á sínum tíma var þó með
nokkuð öðru sniði en sovésku skák-
meistaranna. Einn og óstuddur gekk
hann í gegnum hverja eldraunina á
fætur annarri en K-in tvö hafa um sig
vaska sveit aðstoðarmanna og
hjálparkokka, sem brugga banaráð í
eldhúsinu allan sólarhringinn.
Á alþjóðlega skákmódnu í Helsinki í
byrjun júní tefldu tveir sovéskir
stórmeistarar, sem eru í fremstu víglínu
aðstoðarmannasveitarKasparovs,heims-
meistara. Þetta eru Joszif Dorfman og
Gennadi Timóshenkó og þeim fannst
vitanlega kærkomin tilbreyting að fá að
tefla sjálfir eftir margra ára rann-
sóknarstarf í þágu heimsmeistarans.
Dorfman hafði ekki teflt á skákmóti
utan síns heimalands í þrjú ár en
Timóshenkó læddist reyndar á skákmót
í Baden-Baden í fyrra, enda kom í ljós í
Helsinki að hann var í betri æfingu.
Strax að lokinni Helsinkiförinni beið
heimsmeistarinn þeirra félaga í Bakú,
heimaborg sinni og þar skyldi tekið til
við rannsóknir, du stundir á dag, að
sögn Dorfmans, sem annars lét ýmis-
legt flakka um erfitt starf sitt og
aðferðir þeirra við undirbúninginn.
Dorfman sagði m.a. að er stórmeistar-
inn Sveshnikov bættist í aðstoðar-
mannalið óvinarins (Karpovs) hefði
Kasparov strax gert viðhlítandi
varúðarráðstafanir. Sveshnikov þykir
sérfræðingur í einu afbrigði Sikileyjar-
varnarinnar, sem kennt er við c3-reitinn
(1. e4 c5 2. c3). Kasparov óttaðist
að hann myndi leiða Karpov í allan
sannleika þessa afbrigðis og því skipaði
hann Dorfman að rannsaka afbrigðið í
mánuð! Dorfman varð því manna
ánægðastur er Finninn Valkesalmi
beitti því gegn honum á mótínu í
Helsinki - og vann skjótan sigur.
Sá er þetta ritar mun minnast mótsins í
Helsinki með ánægju um ókomin ár,
því að er upp var staðið hafði það
áunnist sem stefnt var að - stórmeist-
araáfangi. Ég tapaði í fyrstu umferð
fyrir Tisdall, sem ber nafnbótina
"alþjóðlegur meistari" með rentu (írskur
faðir, japörtsk móðir, fæddur í
Bandaríkjunum, bjó ár íEnglandi og er
nú sestur að í Noregi). Síðan jafntefli
við Finnann Yijöla, þannig að útlitið
var ekki fagurt. En mér tókst að vinna
sex skákir í röð og eftir æsispennandi
úrslitaskák við danska stórmeistarann
Curt Hansen í síðustu umferð var
stórmeistaraáfangi í höfn og deilt efsta
sæti með Timoshenko.
Ég býst við að skák mín við sænska
alþjóðameistarann Michael Wieden-
keller hafi verið mín besta á mótínu, þó
að lokaskákin við Curt sé mér eflaust
hugleiknari. Svíinn, sem hafði hvítt,
lék "eðlilega" leiki lengi fram eftír
tafli en áður en hann vissi af hafði hann
ratað í ógöngur. "Hvar lék ég af mér?'
spurði hann mig eftir skákina, en ég gat
engin svör gefið. Dularfull skák, eða er
afbrigðið sem hvítur teflir einfaldlega
slæmt?
Hvftt: Michael Wiedenkeller
Svart: Jón L. Ámason
Enskur leikur
1. c4 e5 2. Rc3 d6 3. d4 exd4
4. Dxd4
Svona hefur verið talið best að tefla
fyrir hvítan í mörg ár og leika eftir 4. -
Rc6, 5. Dd2 ásamt b2-b3 og Bb2.
Hvítur tapar leik með drotmingunni en
talið er að það komi ekki að sök.
4. - Rf6! 5. b3
Eftir 5. g3 Rc6 6. Dd2 Be6 7. Rd5
(ef 7. b3 þá d5!) Re5 8. b3 Re4 9.
Dd4 Rc5 10. Bb2 c6 11. Rf4 Rg4!
12. Dd4 Re4!! vann svartur en þannig
tefldist fyrsta einvígisskák Húbners og
Kasparovs í fyrra - sjá Skinfaxa 3. tbl.
1985
5. - g6 6. Bb2 Bg7 7. g3
0-0 8. Bg2 He8 9. Dd2 Rbd7!
Þar kemur í ljós hvers vegna svartur
stuggaði ekki við drottningunni með
riddaranum. Hann stendur mun betur á
c5 þar sem hann hefur augastað á e4-
reimum og styður við framrás a-
peðisins. Hugmyndina má rekja til
tékkneska stórmeistarans Smejkals,
sem tefldi þannig gegn Miles á
skákmóti í Þýskalandi í fyrra. Miles lék
10. Rf3 en eftír 10. - Rc5 11. 0-0 a5
12. Hadl a4 13. Rd4 axb3 14. axb3
c6 15. Dc2 Db6 mátti svartur vel við
una.
10. Rh3 Rc5 11. 0-0 a5 12.
Hadl a4 13. b4 Rce4 14. Rxe4
Rxe4 15. Dc2 Bxb2 16. Dxb2
a3! 17. Db3 Bxh3 18. Bxh3
18. - Df6!
Skyndilega rennur upp fyrir hvítum
ljós: Á drottningarvængnum er hann
berskjaldaður og fær ekki varist innrás
svörtu mannanna. Svartur hótar Re4-c3
og Df6-b2. Riddarinn er mun sterkari í
þessari stöðu en hvíti biskupinn, sem
grípur í tómt og nær ekki að blanda sér
í baráttuna drottningarmegin.
19. Hd3 Db2 20. Hel
Svartur hótaði 20. - Dxe2 og einnig 20. -
Dxb3 21. Hxb3 (21. axb3 gæfi
svörtum ógnandi frelsingja) Rd2 með
skiptamunsvinningi.
20. - c5! 21. f3(?)
Leiðir beint til taps. Nánast þvingað er
21. b5 en þá hafði ég undirbúið
framhaldið 21. - d5! 22. cxd5 Rd6! og
hótanirnar 23. - c4 og 23. - Hxe2 eru
afar sterkar. Sem fyrr er hvíti biskupinn
algjör ónytjungur.
Skinfaxi 3. tbl. 1986
16