Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1986, Page 17

Skinfaxi - 01.06.1986, Page 17
21. - Dxb3! 22. Hxb3 Eða 22. axb3 Rg5 og síðan 23. - cxb4 með vinningsstöðu. 22. - Rd2 23. Hd3 Eða 23. Hc3 cxb4 o. s. frv. 23. - Rxc4 24. Hc3 Rb2! 25. bxc5 dxc5 26. Hb3 Ef 26. Hxc5? þá 26. - Rd3! og vinnur skiptamun. 26. - He7 27. e4 c4 28. Hb5 c3 29. Hcl Hc7 30. Hc2 Rdl 31. Hb3 Hd8 32. Bfl Hd2 33. Hcl Nú væri 33. - c2? bráðráðið vegna 34. Hd3! og frelsinginn framsækni er dauðans matur. Svartur leggur út síðasta trompið. 8 7 6 5 4 3 2 1 abcdefgh 33. - Hxa2! 34. Hxdl c2 35. Hcl Hb2 36. Hb5 Svartur vinnur létt eftir 36. Hxa3 Hbl 37. Hal Hxal 38. Hxal cl=D 39. Hxcl Hxcl o. s. frv. 36. - Hxb5 37. Bxb5 a2 38. Kf2 Hc3(!) Einnig hefði 38. - al=D unnið taflið létt en textaleikurinn er fljótvirkari. 39. Ke2 Hb3 40. Kd2 Hxb5 Næst leikur svartur 40. - Hbl sem vitanlega var einnig mögulegt í síðasta leik. En hvítur á enga björgun: Ef 41. Kxc2, þá 41. - Hc5+ og vinnur. Hvítur gafst upp. Ætlum að fjölmenna á næsta landsmót Helgi Þór Helgason framkvst. USAH Það var í mörgu að snúast á skrifstofu USAH þegar ritstjóri Skinfaxa leit þar við fyrir stuttu. Framkvæmdastjórinn Helgi Þór Helgason sem er nú sitt þriðja sumar í starfinu hafði mikið að gera. Þó gaf Helgi sér tíma til að segja mér stuttlega frá starfinu í sumar. Frjálsar íþróttir eru í miklum uppgangi og eru tveir þjálfarar fyrir utan Helga, það eru þau Þórhalla Guðbjartsdóttir og Indriði Jósafatsson íþróttakennarar. USAH stefnir á góðan áranur í 2. deild FRÍ sem verður á Egilsstöðum í sumar. Þá sagði Helgi að markið væri sett á mikla þátttöku á Landsmót UMFÍ 1987. Verið er að byggja völl hjá Umf. Vorboðanum og byrjað hefur verið á velli hjá Umf. Geisla, og er mikil gróska hjá ungmennafélögunum á svæðinu. A-stigs námskeið FRÍ var haldið á Blönduósi 27.-29. júní s.l. og var þátttaka mjög góð. USAH tekur einnig þátt í mörgum mótum í sundi. Þegar hér var komið var ekki hægt að trufla Helga lengur því það var að byrja fundur sem hann átti eftir að undirbúa. íþróttanefndar- fundur hjá USAH Það var góð mæting á fund hjá íþróttanefnd USAH eitt kvöldið í byrjun júlí, þar sem átti að skrá í unglingamótið í frjálsum íþrótt- um. Voru allir nefndarmenn mættir þó ekki kæmust þeir á meðfylgjandi mynd, enda vörpulegustu menn. Þetta er eitt dæmið um mikla grósku í starfi USAH um þessar mundir og áhuga manna fyrir starfinu. Skinfaxi 3. tbl. 1986 17

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.