Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 19

Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 19
Sumarhátíð UÍ A Texti og myndir: Guðmundur Gíslason Sumarhátíð UÍA 1986 var haldin dagana 11.-13. júlí að Eiðum eins og venju- lega. Þessi hátíð er orðin fastur liður í starfi UÍA og einn sá glæsilegasti. Á þessari hátíð var margt á dagskrá eins og keppni í frjálsum íþróttum og urðu úrslit þar eins og hér segir: 14 ára og yngri 1. Höttur 255 stig 2. Huginn 162 — 3. Súlan 140 - 15 ára og eldri 1. Höttur 292 stig 2. Súlan 207 3. Leiknir 88 4. Austri 73,5 -- Þá var sú nýlunda að keppt var í nokkrum greinum starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, lagt á borð, starfshlaupi og línubeitningu. í línu- beitningunni kepptu tvær stúlkur og stóðu sig mjög vel ásamt ungum dreng er keppti líka og gaf þeim eldri lítið eftir. Setti þessi nýbreytni mjög skemmtilegan svip á hátíðina og gaf henni nteiri fjölbreytni. Yfirdómari í frjálsfþróttakeppninni var Jón ívarsson úr HSK. Hátíðardagskáin hófst svo kl. 14.oo á sunnudeginum með því að öll félögin er tóku þátt í hátíðinni gengu fylktu liði inná völlinn, hvert undir sínum fána og röðuðu sér upp. Þá gengu einnig inná völlinn knattspymulið frá Færeyjum, íþróttafólk frá USÚ og unglingalandsliðið í knattspyrnu, þessir aðilar voru gestir UÍA á hátíðinni. Eftír að liðin höfðu gengið út af vellinum aftur bauð Adólf Guðmundsson form. UÍA, gesti velkomna með stuttu ávarpi. Eftir það rak hvert atriðið annað og má þar nefna að Sigurður Geirdal fram- kvæmdastjóri UMFÍ, heiðursgestur hátíðarinnar flutti stutt ávarp, Bessi Bjarnason og Ragnar Bjamason fluttu skemmtiþátt. Og ekki má gleyma því að sjálfur Bjössi bolla kom og skemmtí yngri kynslóðinni og jafnvel þeim eldri. Á milli atriða lék Lúðrasveit Neskaupstaðar létt lög. Það er óhætt að segja það að' þessi hátíð hafi tekist miklum ágætum og er UÍA til sóma og sýnir hið nrikla og blómlega starf sem er innan UÍA. Og er vonandi að ekki verði látið deigan síga heldur sótt fram og reynt að fá fleiri til starfa heldur en eru í dag, þótt þeir séu margir. Skinfaxi 3. tbl. 1986 19

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.