Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 20
I ungmennabúðum UMSB
Texti og myndir: Guðmundur Gíslason
Fastur liður í sumarstarfi margra
sambanda UMFÍ er rekstur ungmenna-
búða fyrir böm og unglinga. Nú í ár eru
nokkuð fleiri sambönd sem reka
ungmennabúðir enn á síðasta sumri, í
hópinn hafa bæst HSS, USVH og
USAH sem reka ungmennabúðir á
Reykjum við Hrútafjörð. Ritstjóri
Skinfaxa fór í heimsókn í ungmenna-
búðir UMSB sem voru að Varmalandi í
byrjun júní og spjallaði þar við nokkra
krakka og tók myndir. í búðunum voru
um 55 krakkar á aldrinum 7-14 ára og
skemmtu sér hið besta við iðkun
íþrótta og kvöldvökur. En stór þáttur í
dagskrá ungmennabúða eru íþróttir, og
voru 4o þeirra sem voru í þessum
búðum í ungmenna- og íþróttafélögum,
þannig að þau hafa eflaust fundið margt
við sitt hæfi að Varmalandi. Stjóm-
endur búðanna voru þær Agnes
Guðmundsdóttir, Guðbjörg Sigurgeirs-
dóttir og Sólborg A. Pétursdóttir, og
sögðu þær að þetta hefði gengið mjög
vel þessa viku sem búðirnar hefðu
staðið, og krakkamir unað sér vel, og
ekki komið til neinna árekstra þó
aldursmunur væri nokkur.
Hér á eftir koma stutt viðtöl við nokkra
krakka sem voru í búðunum.
Edda Kristjánsdóttir
9 ára
Er búið að vera gaman hérna?
- Já alveg svakalega.
Ætlarðu að fara aftur næsta sumar?
- Jákannski.
Hvað er búið að vera mest gaman?
- Ég veit það ekki, jú það var gaman á
kvöldvökunni í gærkvöldi.
Hver er uppáhalds hljómsveitin þín?
- Duran Duran og Rikshaw og svo
finnst mér gaman að Eiríki Haukssyni í
ICY. Svo held ég með FH og
Liverpool, og uppáhalds íþróttamaður-
inn minn er Kristján Arason.
Dansaðirðu við strákana á diskótekinu í
gær?
- Nei!
Afhverju ekki, voru þeir svona feimnir?
- Nei, ég var svo feiminn.
Fylgistu með íþróttum?
- Já ég horfi alltaf á þær í sjónvarpinu.
Komstu ein hingað ?
- Nei, ég kom með vinkonu minni, og
við vorum fjórar í herbergi. Svo voru
strákarnir alltaf að reyna að komast inn
til okkar með fíflalæti.
Björgvin Guðbjartss.
11 ára.
Ert þú í ungmenna- eða íþróttafélagi?
- Já ég er í Umf. Dögun sem er í
dölunum.
Ertu eitthvað ííþróttum?
- Já ég er í frjálsum, og það er mest
gaman í langstökki.
Er búið að vera gaman hérna?
- Já voðagaman, og mest gaman í
fótboltanum, en ég held með Fram og
Liverpool í fótboltanum, og svo er
Asgeir Sigurvinsson uppáhalds íþrótta-
maðurinn minn.
Fóruð þið ekki lfka ísund héma?
- Jú, en það var ekki kennsla heldur
bara verið að leika sér.
Áttu uppáhalds lag?
- Já, það er Tóti tölvukall.
Fóruð þið snemma að sofa?
- Já svona um kl. 11.
Andrea Magnúsdóttir
8 ára.
Ert þú í ungmenna- eða íþróttafélagi?
- Já ég er í Umf. Stafholtstungna.
Er búið að vera mjög gaman?
- Já alveg ágætt.
Finnstþér gaman ííþróttum?
- Já! Mest gaman af fótbolta og ég held
með Man. Utd. og UMSB.
Hlustarðu mikið á tónlist?
- Já og uppáhalds hljómsveitin mín er
Stuðmenn og Duran Duran og líka
Madonna og Eiríkur Hauksson.
Horfirðu mikið á sjónvarp?
- Já stundum, og mest á fótbolta.
Áttu einhvem uppáhalds íþróttamann?
- Já! Einar Vilhjálmsson
Ætlarðu að koma hingað næsta sumar?
- Já!
Til gamans efndi Skinfaxi til
skoðanakönnunar meðal krakk-
anna í ungmennabúðunum um
fþróttir og tónlist. Hér á eftir
koma niðurstöðurnar úr þessari
könnun, en alls tóku 54 þátt í
henni af 55 sem voru í ungmenna-
búðunum.
Og eru niðurstöðurnar úr þessari
könnun á næstu síðu.
20
Skinfaxi 3. tbl. 1986