Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1986, Page 30

Skinfaxi - 01.06.1986, Page 30
Æfingaferð til Fuglsö Texti og myndir: Dóra Gunnarsdóttir Dagana 30. maí til 10. júní dvöldust um 20 íþrótamenn frá 10 samböndum og félögum í æfingabúðum í Fuglsö í Danmörku. Þetta íþróttafólk var á aldrinum 17-21 árs og stundar eingöngu frjálsar íþróttir, en aðstaðan í Fuglsö er frábær í alla staði. Krakkarnir æfðu tvisvar á dag, þannig að það má vænta mikils af þeim nú í sumar, ef þau halda æfingum áfram eftir heimkomuna sem þau gera örugglega öll. Með hópnum í þessari ferð voru sem þjálfarar þeir Gunnar Sigurðsson UMSS og Helgi Þór Helgason USAH sem æfði kastarana. Að sögn krakkanna var sól fyrstu dagana en síðan hvarf hún og í staðinn kom dæmigert Reykjavíkur- veður, hiti var þó sæmilegur allan tímann og ekki síst í hinum sigurglöðu dönum er fylgdust með sínum mönnum í Mexíkó. Þessi ferð gekk í alla staði vel og sluppu menn við öll meiðsli og önnur óhöpp, því er það óskandi að svona æfingaferðir verði oftar á dagskrá fyrir sambönd og félög sem ekki hafa bolmagn til að standa fyrir eigin ferðum sjálf. Hópurinn setti upp nokkur mót í Fuglsö fyrir sig auk þess sem hann keppti á móti í Árósum, og fer helsti árangur úr þessum mótum hér á eftir. Aðalfararstjóri í Þessari ferð var Dóra Gunnarsdóttir stjórnarmaður í UMFÍ auk þeirra Helga Þórs og Gunnars. Hér á eftir koma helstu úrslit í móti er hópurinn tók þátt í sem haldið var í Fuglsö. Kringlukast konur Jóna Petra Magnúsdóttir UÍA 35,34 m. Guðbjörg Gylfadóttir USAH 33,46 m. Spjótkast karla Helgi Þór Helgason USAH 49,33 m. Langstökk karlar Friðrik Steinsson UMSS 6,32 m. Hafsteinn Þórisson UMSB 6,25 m. Hörður Gunnarsson HSH 5.95 m. Langstökk konur Halldóra Hafþórsdóttir UÍA 5.oo m. Ólöf Haraldsdótdr UMFK 4,49 m. Guðbjörg Guðbjartsd. UMFK 4,39 m. Sólveig Ása Árnadóttir HSÞ 4,23 m. 200 m. hlaup karlar Friðrik Steinsson UMSS 23, 7 sek. Agnar B. Guðmundss. USAH 23.9 sek Hörður Gunnarsson HSH 24,5 sek. Ellert Finnbogason UDN 25, 8 sek. Haukur Marínósson UNÞ 28.5 sek. Hástökk konur Lillý Viðarsdótdr UÍA 1,45 m. Ólöf Haraldsdótdr UMFK 1,40 m. 800 m. hlaup karlar Gunnlaugur Skúlas.USVH 2:18,1 mín. Ellert Finnbogason UDN 2:21,7 mín. 110 m. grindahlaup karlar Agnar B. Guðmundss. USAH 20,1 se. Bjami Jónsson UMSS 19,9 sek. 100 m. grindahlaup konur Ólöf Haraldsdótdr UMFK 20,1 sek. Lillý Viðarsdótdr UÍA 20,6 sek. 100 m. hlaup konur Sólveig Ása Árnadótdr HSÞ 13,8 sek. Halldóra Hafþórsdótdr UÍA 14,2 sek. Ólöf Haraldsdótdr UMFK 14,6 sek. Guðbjörg Guðbjartsd. UMFK 14,7 sek. 100 m. hlaup karlar Agnar B. Guðmundss. USAH 11,8 se. Friðrik Steinss. UMSS 12,0 sek. Bjarni Jónsson UMSS 12,1 sek. Hörður Gunnarsson HSH 12,1 sek. Spjótkast drengja Guðmundur Ragnarss. USAH 41,82 m Agnar B. Guðmundss USAH 40,28 m Hörður Gunnarsson HSH 37,38 m. Haukur Marínósson UNÞ 34,78 m. 4x100 m. boðhlaup drengir Sveit UMFÍ (Agnar-Hörður Guðmundur Friðrik) 46,6 sek. 4x100 m. boðhlaup stúlkur Sveit UMFÍ (Guðbjörg Guðbjartsd,- Ólöf-Halldóra-Sólveig) 55,5 sek. 400 m. hlaup karlar Friðrik Steinsson UMSS 54,7 sek. Agnar B. Guðmundss. USAH 54,8 sek Ellert Finnbogason UDN 56,3 sek. 30 Skinfaxi 3. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.